Litli Bergþór - 01.03.2008, Blaðsíða 24

Litli Bergþór - 01.03.2008, Blaðsíða 24
Torfastöðum sem hökti um með hækjuna var enginn eftirbátur yfirstressaðra kórlima. Við vopnaleit öryggisvarða Vatikansins blöstu við okkur heljarins biðraðir. Vorum við að missa af einu glæstasta tækifæri íslensks kórs til tónlist- arflutnings??? Halla Margrét dó ekki ráðalaus og óð í gegnum þvöguna og innan skamms veifaði hún til okkar að flýta okkur áfram því hún væri búin að fá leyfi fyrir okkur að troðast fram fyrir röðina, svo við kæmumst nógu fljótt til að syngja fyrir páfann. Og við hlupum. Ruddumst fram fyrir gamla kalla og kellingar, konur og börn, munka og nunnur. Dómkirkjukór Skálholtskirkju var að verða of seinn að syngja fyrir páfann. Þegar inn í Páfagarð var komið var okkur vísað inn í gríðarstóran sal þar sem þúsundir aðdáenda páfans höfðu tekið sér bólsetu. Kórnum var stórum létt þegar þeir fundu sér hentug sæti. Nú var ekki lengur hætta á að söng- fall yrði í Páfagarði. Hilmar og Halla Margrét hurfu hins vegar á braut til að þjarka við undirsáta páfa. Sést hafði til einmana orgels úti í horni sem Hilmar hafði hug á að komast með puttana í og svo þurfti að semja um hvenær Skálholtsdómkirkjukór ætti að syngja, hve mörg lög og hvar hann skyldi standa. Þó var útséð að hann fengi ekki að halda æfingu á söng- palli. Til þess voru allt of margir mættir á svæðið. Hilmar og Halla Margrét snéru til baka heldur súr á svip. Eitthvað voru svör undirsáta páfa loðin, þó var ljóst að við fengjum ekki að standa á tröppun- um við hlið orgelsins á hægri hönd Benedikts páfa heldur yrði kórinn að sitja í sætum sínum og mætti þar að auki einungis flytja eitt lag páfa til dýrðar. Kórstjóri lét þó ekki slá sig út af laginu við svona ótíðindi og fann fljótt stað þaðan sem hann gæti stjórnað kórnum. Páfinn skyldi sko fá að heyra Ó, guðs vors lands í allri sinni dýrð! A meðan þessu stóð sátum við hin alveg dolfal- lin yfir dýrð móttökusalarins. Þó alveg sérstaklega yfir hinum gestunum. Ljóst var að þessa viku myndi mikill fjöldi skáta heilsa upp á páfa gamla auk lúðrahljómsveitar, barnakórs, stúlknakórs, japanskra fiðlusnillinga auk ótölulegs fjölda af brúðhjónum og nunna auk „venjulegs“ fólks. Ljóst var að mikil eftirvænting ríkti er fólkið beið komu páfans. Bæði lúðrasveitin og skátarnir æfðu sig af kappi og fljótlega var hávaðinn og spennan orðinn svo mikil að maður átti á hverri stundu von á að sjá bæði handboltalandslið íslands og Svíþjóðar spretta upp og hefja úrslitaleik um heimsmeistaratitilinn í handbolta. Svo kom Benedikt páfi! Allt ætlaði um koll að keyra í fagnaðarlátunum. Eftir að hafað blessað mannfjöldann hélt páfi ræðu sem hann svo endurtók á nokkrum tungu- málum auk þess sem ýmsir prelátar hófu upp raust sína á óskiljanlegum tungumálum. Þá kom að því að ungur enskumælandi prestur með möppu í höndunum tók sér stöðu við hljóðnemann og byrjaði að kynna gestkomandi „enskumælandi“ hópa í salnum. „From Iceland. The Lutherian-Catholic Cathedral choir of Skalholt." - las prestur fyrst upp af öllum gestkomandi. Kurteisislegt klapp fylgdi og landinn fylltist stolti yfir því að vera les- inn svona fyrstur upp af öllum. Nú var bara beðið eftir að kórinn væri kallaður upp til söngs, páfa til dýrðar. Síðan hélt upptalningin áfram á ýmsum tungumálum. Nú fóru hins vegar að renna tvær grímur á kór- félagana því að hóparnir sem lesnir voru upp stukku sumir hverjir upp með söng, klappi og látum líkt og á fótboltaleikvangi. Borðum var veif- að, nunnurnar stukku upp á stóla og einstöku hópar náðu að koma tónlistarflutningi á framfæri á meðan sjónvarpsmyndavélarnar gutu auga sínu að þeim enda sendi sjónvarpsstöð Vatikansins beint út um gervallan heim. Eftir að hóparnir höfðu verið lesnir upp tók Benedikt páfi til við að lesa upp nöfn mættra og blessa þá og aðstandendur þeirra. Að lokum gekk hann út í salinn og til að blessa brúðhjón, sjúka og ýmsa aðra gripi. Uti í sal sat þrumulostinn kór og niðurbrotinn kórstjóri og söngkona. En hópurinn var mættur til að syngja fyrir Hans Heilagleika og söng skyldi hann fá! I skyndi var kórnum stillt upp og brátt ómaði söngurinn innan um hljóðfæraslátt og annan hávaða hjá hópum sem svipað var ástatt fyrir. I þann mund gekk páfi út og þannig varð kórinn þess heiðurs aðnjótandi að söngur hans varð útgöngulag páfa við dynjandi lófatak við- staddra! I kjölfarið urðu til þessar vísur: í höll hjá páfa var hörkustuð þó hátíðlegar gloríur. Nú ég sé, minn náðar Guð, að nunnur eru grúppíur. HPH Um Rómarborg erum búin að ráfa rústirnar skoða; þukla og káfa. En kórinn sat fastur og kantor aftastur á skátaskemmtun hjá páfa. KH og HJ Næst tóku við tónleikar í gulli skreyttri kirkju í miðborg Rómar. Kórinn tók strax til við æfingar með aðstoð Steingríms Þórhallssonar organista sem nú hafði slegist í för með kórnum en mak- arnir könnuðu barina í næsta nágrenni og löbbuðu sér m.a. út á eyjuna Tiber í samnefndu fljóti - umkringd hringiðum af rusli. Makarnir ráku sig nú á nokkuð sem þeir þekktu ekki frá íslandi. ítalska siestað tröllreið flestöllum börum, búðum og veitingastöðum u.þ.b. kl. 14:00- 16:00. Annað var það sem grátklökkir makarnir urðu að láta sig hafa, var að borga 9 € (~750 kr.) fyrir bjórglas og aðstöðu við borð úti á torgi fyrir Litli Bergþór 24

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.