Litli Bergþór - 01.03.2008, Blaðsíða 20

Litli Bergþór - 01.03.2008, Blaðsíða 20
tvö vond vor til skógræktar, þíðukafli í mars og april en frost í maí. Þær plöntur sem ekki drápust strax eftir plöntun virðast hafa drepist vorið eftir. Þrátt fyrir að herfingin væri víða farin að gróa plöntuðum við u.þ.b. 1000 stafafuruplöntum í annan hluta spildunnar vorið 2006. Ekki er endanlega ljóst með afdrif þeirra plantna, en lifun virðist þokkaleg. A liðnu sumri fengum við á Gýgjarhóli í vinnu nýja skógræktarvél sem hefur verið nefnd Græni Drekinn. Við vélina er hægt að tengja plöntunarhaus sem er í eigu Suðurlandsskóga. Með hausnum er rist upp torfa og henni snúið alveg á hvolf. Um leið og vélin stingur fyrir plöntunni í gegnun torfuna og niður í svörðinn fyrir neðan og kemur plöntunni fyrir í hol- unni, ber hún áburð og vökvar plöntuna. Vonir standa til að þessi plöntunaraðferð reynist vel, eink- um þar sem grasvöxtur er mikill. Að vetrinum verður megin verkefni Drekans grisjun skóga. Fyrirliggjandi skógur og innfluttar tegundir Birkið. Heita má að birkið sé samfellt meðfram fjöll- unum frá Þingvöllum inn fyrir Haukadal. Það er hvergi hávaxið og má segja kjarr víðast hvar. Birkiskógurinn er samt fallegur og aðdáunarvert hve vel hann hefur þraukað þrátt fyrir hve hart var að honum sótt. Torfa, varin af stórgrýttri urð, er t.d. í Heljarkinninni austan í Gýgjarhólsfjalli með þokka- lega fallegum birkihríslum. Harðast hefur sauðfjárbeitin gengið að birkiskógin- um. Fram á miðja síðustu öld tíðkaðist að beita sauðfé allan veturinn. Féð klippti nýsprotana af hríslunum og hreinsaði sprota sem voru að endur- nýja hríslur. Það varð til þess að nýliðun kom ekki í stað þeirra trjáa sem féllu. Þá komu venjulega rjóður í skóginn. Heyrði ég aldinn og fróðan bónda í Laugardalnum halda því fram að á því svæði yrðu birkihríslur að jafnaði ekki eldri en u.þ.b. hundrað og fimmtíu ára. Birkiskógurinn var mikið notaður sem eldiviður og var oft sóttur um langan veg. Endurnýjun fór svo eftir því hvernig að skógarhöggi var staðið og hvort ungviðið fékk næði til að vaxa upp. Minnist ég þess að faðir minn, Karl Jónsson, sem var í 23 ár bóndi í Efstadal í Laugardal, var strangur með að skógurinn væri þannig grisjaður að hann hefði möguleika á að endurnýja sig. Um miðja síðustu öld hélt vélvæðingin innreið sína inn til fjalla í Laugardal og Biskupstungur. Búpeningi fjölgaði mikið og ofbeit var gengdarlaus. Þá var mörgum fallegum skógarreitnum fórnað til að rækta tún. Sagnir eru um víðáttumikla skóga á Biskupstungnaafrétti. Enda þótt meginhluta fram- afréttarins hafi blásið upp má víða finna leifar kola- grafa í rofabörðum sem eftir eru í Sandvatnshlíð, inn með Grjótá og í torfum Brunnalækjanna. Torfastaða- og Bræðratungukirkjur áttu þarna skógarítök og þangað mun hafa verið leitað þegar þrengdist um með skóga í byggð. A stöku stað á þessu svæði má einnig finna skógarleifar og helst svolítið reisulegar hríslur á stöðum þar sem sauðfé hefur ekki átt greiða leið að þeim. Fyrir u. þ. b. átján árum var girt af svæði umhverfis Rótarmannatorfur. Þar hefur verið plant- að ýmsum gerðum trjáa sem eru í sprettu. Fróðlegt verður að fylgjast með hvernig þeirri trjárækt vegn- ar á komandi árum. A innafréttinum hefur varðveist svolítið skógar- kjarr og þá helst í hlíð Karlsdráttar, Fróðárdals og Hrefnubúða. Þetta kjarr er vestan Fúlukvíslar og hefur því ekki verið greitt fyrir sauðfé né menn að ásækja staðinn. Birkikjarrið á þessu svæði er lágvaxið en þegar ofar kemur í hlíðar Karlsdráttar má sjá eina og eina birkihríslu gnæfa yfir kjarrið. Kjarr finnst í Þverbrekkunum sem eru innundir Kili austur af hinu fagra Hrútfelli. „A nokkrum stöðum, ekki langt undir 600 m hæðarlínunni er birkikjarr í runnum. Hríslurnar liggja yfirleitt nokkuð undan hallanum, en væri vel úr þeim rétt gætu þær teygst um eða yfir 3 m upp. Runnamir eru hvorki margir né stórir en þekja þó nokkra tugi fer- metra samtals“. 7) í Bláfellshólma, sem er í Hvítá á móts við sunn- anvert Bláfell, er góður birkireitur. Pjaxi er ill- aðgengilegur hvammur í gljúfri Hvítár rétt sunnan Gullfoss. Þar er fallegur skógarlundur. Birkikjarr og runna er hægt að finna frá Brunnalækjum suður með Hvítá og allt niður í Kálfsholt, sem er tals- verður birkiskógur, en það svæði er fjær fjöllum. Reyniviður. í Efstadalsskógi og sjálfsagt víðar hefur mátt finna eina og eina ágætlega vöxtuga reyniviðar- hríslu inni í birkikjarrinu. Sprotar reyniviðarins eru eitthvert mesta sælgæti sem sauðkindin getur fengið og endurnýjun hans hefur því verið mjög erfið. Þessar hríslur eru oft í hlíðum gilja þar sem fé nær ekki til þeirra. Einir. Þetta eina upprunalega barrtré okkar á íslandi er ekki áberandi inn til fjalla í Bláskógabyggð. Ef vel er að gáð má samt finna eini víða en hann er all- staðar skriðull í þéttum runnum. Slíkir fallegir runn- ar ættu fyllilega heima í okkar skógrækt og myndu auka fjölbreytni flórunnar. Innfluttar trjátegundir. Til þess að við getum stundað árangursríka skógrækt hér á landi þarf að flytja inn tegundir sem ekki voru á landinu fyrir. Rannsóknir og reynsla verða svo að skera úr um hvaða tegundir og kvæmi henta. Vandamál er hve Litli Bergþór 20

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.