Litli Bergþór - 01.03.2008, Qupperneq 7
Sveinn Kristjánsson
Minning
Hann var fæddur að Langholtsparti í
Hraungerðishreppi 20. desember 1912. Foreldrar
hans voru Guðríður Sveinsdóttir, f. á Rauðafelli
undir Eyjafjöllum, og Kristján Diðriksson, f. í Króki
í Hraungerðishreppi. Sveinn var næstyngstur 12
alsystkina. A fjórða ári fór hann í fóstur að
Bergsstöðum til móðurbróður síns, Sigurfinns
Sveinssonar og Guðrúnar Þorsteinsdóttur, konu
hans. Þar eignaðist hann fjögur uppeldissystkini.
Barnafræðslu fékk hann í farkennslu en var veturinn
1930 - 1931 í íþróttaskólanum í Haukadal hjá
Sigurði Greipssyni.
I æsku fór hann að vinna bústörf, sem fólust aðal-
lega í að gæta kúa, hesta og kinda. Þá var enn fært
frá ám og þær mjólkaðar í kvíum á vorin. Hann
náði þá góðu sambandi við húsdýrin og fór ungur að
temja hesta. Ungur mun hann hafa eignast hest og
eitthvað af kindum og refarækt stundaði hann um
skeið með öðrum ungum mönnum í nágrenninu.
Þegar hann gat komist frá búi fósturforeldra sinna
leitaði hann sér vinnu annars staðar, var m. a. á
vertíð í Grindavík.
Vorið 1937 hófst fjárvarsla á Kili til að koma í
veg fyrir samgang sauðfjár að sunnan og norðan
vegna smitsjúkdóma. Sveinn starfaði við þetta
ásamt fleirum, og var hann þar einnig sumarið 1938.
Þeir höfðu aðsetur vestan við Þegjanda skammt fyrir
ofan þar sem hann sameinast Seyðisá. Fyrra árið
var hann matreiðslumaður og bakaði þá rúgbrauð í
heitum sandi á Hveravöllum. Síðara árið var hann
varðstjóri. Tvær frásagnir Sveins frá þessum árum
hafa birtst í Litla-Bergþóri. „Með 17 klyfjahesta á
Kjöl“ í 1. tbl. 13. árg. 1992 og „Frásögn frá Kili“ í
1. tbl. 15. árg. 1994. Á verðinum var líflegur
félagsskapur, þar sem menn skemmtu sér við sögur,
ljóð, lausavísur og söng.
Vorið 1941 giftist Sveinn Magnhildi Indriðadóttur
í Arnarholti, sem fædd var í Efstadal í Laugardal
1914, og sama vor fóru þau að búa í vesturbænum á
Drumboddstöðum, sem þau höfðu þá keypt. Þau
bjuggu við kýr, kindur, hesta og varphænur. Einnig
voru þau með garðrækt til heimilis og skrúðgarð til
yndisauka.
Börn þeirra eru fimm og afkomendur hátt á þriðja
tuginn.
Eftir 31 árs búskap stofnuðu þau félagsbú með
syni sínum og tengdadóttur en brugðu svo búi árið
1982 og fluttu í Bergholt í Reykholti hér í sveit, eina
af fjórum nýbyggðum íbúðum fyrir aldraða, sem
þau höfðu stutt byggingu á með ráðum og dáð.
Magnhildur var Ijósmóðir og studdi Sveinn hana
mikið í því starfi, og óskaði hún stundum eftir því
Sveinn við Hjúkrunarheimilið Ás sumarið 2003
að hann væri viðstaddur fæðingu þegar hún óttaðist
að hún yrði erfið, svo sem fyrsta fæðing konu. í
þessu sem fleiru voru þau ákaflega samhent, enda
báru þau bæði mikla virðingu fyrir lífinu og létu sér
annt um velferð fólks. Sveinn tók sjálfur á móti
tveimur börnum þeirra hjóna. Hann var oft fenginn
til að hjálpa kindum og kúm nágranna sinna við
fæðingu og fleira þar sem hann gat lagt lið.
I Bergholti voru þau með ýmiskonar starfsemi
svo sem hænsnarækt og garðyrkju. Einnig unnu þau
ýmislegt í höndunum, og útbjó Sveinn nytjahluti, m.
a. hnakkgjarðir og gólfmottur úr hrosshári, sem
hann spann.
Magnhildur dó haustið 1992 og var Sveinn í
Bergholti nokkur ár eftir það, hafði nokkra viðdvöl
hjá syni sínum og fjölskyldu hans í Flóa en fór síðan
á Hjúkrunarheimilið Ás í Hveragerði og dvaldi þar
síðustu 9 árin.
Sveinn var mjög félagslyndur, gekk ungur í
Ungmennafélagið og tók þátt í leiksýningum á þess
vegum, var félagi í stúkunni Bláfelli meðan hún
starfaði hér og í nokkur ár starfaði hann í
Lionsklúbbnum Geysi. Hann var einn af stofn-
endum Hestamannafélagsins Loga og lét land undir
athafnasvæði þess við Hrísholt. Hann var um árabil
formaður sóknarnefndar Bræðratungukirkju og
meðhjálpari þar.
Sveinn lést á Hjúkrunarheimilinu Ási í
Hveragerði 13. janúar sl. Útför hans fór fram frá
Skálholtskirkju og hann var jarðsettur í
Bræðratungukirkjugarði.
A. K.
-------------------------------- 7 Litli Bergþór