Litli Bergþór - 01.03.2008, Qupperneq 18

Litli Bergþór - 01.03.2008, Qupperneq 18
rákum og þar voru sett niður barrtré. Seinna var svo einnig plantað niður á jafnlendi allt austur að Tungufljóti. Að mestu var plantað sitkagreni, stafafuru, lerki, rauðgreni, blágreni og ösp. Sitkagrenið vex vel í Haukadal, eða um fimm rúmmetrar á hektara á ári. Lerkið virðist einnig hafa vaxið nokkuð vel og skil- að u.þ.b. þremur rúmmetrum á hektara á ári. 5). Eitthvað mun samt hafa gengið illa að fá lerkið til að lifa til að byrja með. í Svartagili stendur hæsta tré skógarins sem er sitkagreni út af fræi frá Alaska. Fjölskyldumeðlimir fá sér hressingu á Launfit að lokinni plöntun. Skógræktin í Haukadal var til að sjá sem nokkuð reglulegir reitir í birkivaxinni hlíð Sandfells, en smám saman hefur þetta verið verulega lagfært. Talsvert var um að vinnuhópar kæmu, einkum frá Noregi og Islendingar færu í staðinn utan í plönt- unarstörf. Af þessu fékkst mikill fróðleikur til landsins. Haukadalsskógur ýfði áhuga okkar nágrannanna á skógrækt og varð til þess að margir í uppsveitum Arnessýslu fóru að fikta við að planta skógi. Helludalsskógur. Jarðinar Haukadalur og Hellu- dalur liggja saman og öll hlíðin ofan við túnin er vaxin birkiskógi. Steinar Tómasson, bóndi í Helludal, hreifst af skógræktinni í Haukadal og girti af góða spildu í landi sínu og plantaði í hana skógi. Þar er nú fallegur reitur með vöxtugri furu, greni og lerkitrjám. Nýir eigendur að þessum hluta jarðar- innar hafa byrjað þar myndarlega skógrækt. Vinaskógur. Gott framtak sem vakti áhuga okkar uppsveitabúa sem og annara landsmanna var stofnun Vinaskóga í landi Kárastaða í Þingvallasveit. Fyrstu plönturnar gróðursettu þar Vigdís Finnbogadóttir þáverandi forseti íslands og Elísabet Englands- drottning 26. júní 1990. 6) Okkar skógrækt Launfitarskógur. Sumarið 1980 girtum við átta af níu systkinum ásamt mökum af u.þ.b. tuttugu og sjö hektara spildu úr landi Gýgjarhólskots. Þessi land- spilda var að meginhluta örfoka melar og mosa- þemba við Hvítá og liggur að landi Brattholts. Staðurinn var valinn með það í huga að skerða sem minnst búgæði jarðarinnar Gýgjarhólskots, sem elsti bróðir okkar og sonur hans stunduðu á hefðbundinn búskap. Okkar fyrsta verkefni var að undirbúa landið fyrir skógrækt. Við plöntuðum lúpínuhnausum dreift um melana og sáðum jafnframt birkifræi. Lúpínan dreifði sér fljótlega um allan melinn, en hefur verið óþægilega ágeng að dreifa sér út í mosaþembuna og skemma takmarkað berjalandið. Birkihríslurnar komu strjálar upp úr lúpínubreiðunni, en hafa dafnað vel. Lúpínan gekk ákaflega í augun á rollunum. Þær smokkuðu hausnum inn á milli möskva netsins og það henti margsinnis að þegar þær fóru til baka slitu þær möskvaþráð í netinu og höfðu þannig búið til gat sem þær notuðu til að smjúga í gegnum inn í lúpínubreiðuna. Til þess að bæta úr þessu var ekki um annað að ræða en að strekkja smámöskvað og sterkt net utan á girðinguna. Þetta hefur dugað vel. Við ákváðum að efna til eins plöntunardags á hverju vori, en plöntuval hefur verið nokkuð handahófskennt og árangur fyrstu árin eftir því. Reynslan hefur samt kennt okkur hvað lifir helst á þessum hrjóstuga og vindasama stað, en það er lerkið og birkið sem best hefur staðið sig og nú er ásýnd Launfitar óðum að breytast. Þannig hagar til að samhliða Hvítá í u.þ.b. hundr- að metra fjarlægð frá henni hefur náttúran myndað lægð eftir næstum endilöngu svæðinu, sem hækkar þó til beggja enda. Lægðin sem er hin raunverulega Launfit er með u.þ.b. fimmtíu metra breiðan sand- borinn, láréttan og nokkurn vegin sléttan botn. Þarna héldum við að væri nokkuð gott skógræktar- land þvf í botninum myndast skjól fyrir austanátt, sem er mesta vindáttin. í þessari lægð myndast sennilega kuldabolli því illa gengur að fá skógar- plöntur til að lifa í botni hennar. í brúninni ofanvið lægðina hefur einhverntíma verið skógarkjarr og þegar landið var friðað komu upp angar sem eru blendingar af birki og fjalldrapa og við höfum nefnt birkibróður. Ekki ná þessir angar neinum verulegum vexti en eru þó uppréttari en fjalldrapi. Suðurlandsskógar. Stærsta átakið í skógrækt á Suðurlandi var stofnun Suðurlandsskóga. Fyrsta verklega framkvæmd á vegum Suðurlandsskóga var gróðursetning í Skálholti 16. maí 1998. Litli Bergþór 18

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.