Litli Bergþór - 01.03.2008, Side 21
Duglegustu tíu ára lerkihríslurnar eru farnar að vaxa bændunum á
Gýgjarhóli I yfir höfuð.
svæða getur e.t.v. ráðið úrslitum um lífs- og
þroskamöguleika hverrar tegundar eða kvæmis.
„Til íslands hafa verið fluttar a.m.k. 150 trjátegundir
til skógræktar undanfarna öld. Af þeim er vitað til
að a.m.k 18 hafi „numið land“, þ.e þroskað fræ og
og fest rætur með sjálfsáningu. Meðal innfluttra
trjátegunda, sem víða hafa fundist sjálfsánar hér á
landi hin síðari ár, eru: stafafura, sitkagreni, rússa-
lerki, alaskaösp, viðja, selja og alaskavíðir, en þetta
eru jafnframt algengustu, innfluttu trjátegundir sem
hér eru í ræktun“. 8)
Val á plöntum. Mikill vandi er að velja réttar
tegundir og kvæmi af plöntum með hliðsjón af stað
og aðstæðum. Skógræktarfólk sem hefur reynslu og
þekkingu getur nokkuð séð hvaða plöntur henta
miðað við land og landslag. Breytileg veðrátta getur
verið erfiðari og hef ég svolítið reynt að skoða
upplýsingar sem fyrir liggja um það síðustu fimm
sumur.
Þessar tölur eru unnar úr skýrslum frá Veðurstofu
íslands. 9). Tekinn er meðalhiti í júlí til og með sept-
ember og meðalúrkoma í þessum sömu mánuðum.
Leitin stefndi að því að finna út hvers vegna lerki
sprettur þokkalega vel á Gýgjarhólstorfunni en illa á
sumum jörðum sem ekki eru í mikilli fjarlægð.
Ljóst er að upplýsingarnar eru ófullnægjandi. Þær
þyrftu að ná yfir lengra tímabil og vera bundnar við
viðkomandi plöntunarsvæði. Það er t.d. greinilega
mun úrkomusamara á Hjarðarlandi en á Gýgjarhóli.
Nytjar skógræktar
A næstu árum er ekki hægt að reikna með miklum
fjárhagslegum nytjum af skógrækt okkar á
Gýgjarhólstorfunni. í náinni framtíð er það helst
að skógurinn nýtist til afþreyingar og augnayndis.
Eftir nokkra áratugi geta svo sumar tegundirnar
farið að gefa eitthvað af sér og þá helst í girðingar-
staura. Svo er einnig möguleiki á að einhverjir
noti grisjunarvið til þess að tálga úr.
Undirritaður innti Ragnhildi Magnúsdóttur,
handverksmann ársins 2006, eftir hvaða trjáte-
gundir hún velji sér helst til að skera gripi úr og
hverjir séu kostir eða gallar hverrar tegundar.
Ragnhildur telur birki góðan efnivið, sem skerst
hreint, en galli að það er kvistótt.
Ösp, segir hún mjúka og góð að tálga, en mer-
gur í miðju trésins er fremur til leiðinda. Sama er
að segja um alaskavíði. Reyniviður er harður og
erfiður að tálga, en fallegur ef það tekst.
Gráöl segir Ragnhildur mjög skemmtilegan og
fallegan við, en galli að hann er talsvert kvist-
óttur.
Einnig hefur hún tálgað gullregn sem hún segir
hart og erfitt efni en fallegt og gaman að sjá
hvernig það kemur út. Hún tálgar mikið úr
amerísku linditré og dálítið úr maghony. Þó að
talið hafi verið að fura henti ekki til tálgunar hefur
Ragnhildur einnig reynt hana með nokkrum
árangri, því hún hefur gaman að því að prófa sem
flestar tegundir. io>
Utlit og umhverfí
Fjölbreytni trjáa. Þegar ekki er eingöngu ræktað
með nytjaskógrækt að meginmarkmiði, er mikil-
vægt að plantað sé sem fjölbreyttustum trjám eftir
því sem aðstæður leyfa. Samt verður að hafa í
huga að vissar tegundir plantna eru hentugri á
einun stað en öðrum. Einnig þarf, vegna hættu á
ryðsveppasmitun, að halda ösp og lerki sem mest
aðskildum.
Veðurathugunarstöð HITI í júlí til og með sept. ÚRKOMA í iúlí til og með sept.
Hallormsstaður 10,2°C 60,0 mm
Eyrarbakki 10,9°C 119,6 mm
Hjarðarland 10,2°C 99,9 mm
21 Litli Bergþór