Litli Bergþór - 01.03.2008, Síða 25
framan kirkjuna í stað þess að sitja á loftkældum
barnum!
Tónleikar kórsins með Höllu Margréti tókust
merkilega vel. Ekki síst þar sem Steingrímur
organisti átti ekki möguleika á að sjá kórinn né
kórstjórann þaðan sem hann sat og spilaði á
margra alda gamalt orgelið. Eftir að viðkomandi
lag hafði verið kynnt taldi hann í hálfum hljóðum,
1 - 2 - 3, og byrjaði. Og hitti á innkomu kórsins!
Annars var orgelið svo fornt og þar að auki
friðlýst að hætta þurfti við kraftmesta orgelverkið
af ótta við að hljóðfærið hryndi saman.
Kvöldið endaði svo í Frascati við borðhald í
Villa Tuscolana við ræður, brandara og vísur borð-
félaga að vanda. Mikið var spáð í sambýli Björns
Sigurðssonar og Braga Þorsteinssonar annars
vegar og Halldórs Páls Halldórssonar og Jóhanns
Stefánssonar hins vegar:
Björn og Bragi eru svona og svona
en auðvitað ég ætla rétt að vona
að undir hverjum manni liggi kona.
HPH
Sælunni’ í páfans sal, herma kvæði frá
en segja um leið að hann bagi þó kvenmannsleysið.
Hér fara nú karlar í bólið hver öðrum hjá
en hinum finnst svoleiðis ástalíf ekki beisið!
KK
Fimmtudagur 2. ágúst. Dagur 5
Frídagur. Margir ætluðu sér hvorki meira né
minna en að nýta þennan dag í að skoða allar
fornminjar Rómar sem eftir lágu ókannaðar á
meðan aðrir vildu frekar slappa af í Frascati og
við sundlaug hótelsins.
Dagurinn var tekinn snemma líkt og endranær
því starfsmenn hallarinnar voru mættir kl. 07:00
með múrhamrana til að breyta og bæta. Þessir
friðarspillar nutu svo einnig á stundum aðstoðar
villisvína við ruslatunnurnar um miðjar nætur.
Eftir morgunmatinn var hoppað upp í rútu hjá
Hringanóra. Ætlunin var að láta hann setja minni
hluta hópsins út í miðbæ Frascati en síðan yrði
keyrt með alla hina á lestarstöðina þar sem ætlun-
in var að prófa almenningssamgöngurnar þennan
daginn. Bilstjórinn brást ekki nafngiftinni frekar
en fyrri daginn. Hringsólaði svo oft um lestar-
stöðina að þegar hann loksins setti hópinn út var
það orðið of seint! Þegar við komum á harða-
hlaupum á lestarstöðina, - og þrátt fyrir að við
svindluðum meira að segja á því að borga, - þá
sáum við bara í rassgatið á lestinn þar sem hún
sigldi út frá „Rassgati“. Um ólík hlutskipti þessara
tveggja hópa var því ort.
Er með sólskinsbros á bekk ég sat
á breiðu rassgati,
annað fók það ekkert gat
en ekið hringi í Frasgati.
KH
Sem sjá má var höllin sem við gistum í stórglæsileg í alla staði. F.v. Áslaug Rut Kristinsdóttir, Hilmar Örn Agnarsson, íris Inga
Svavarsdóttir, Páll Magnús Skúlason, Hólmfríður Bjarnadóttir, Aðalheiður Helgadóttir, Skúli Sæland, Ellisif Malmo Bjarnadóttir,
Dröfn Þorvaldsdóttir.
25 Litli Bergþór