Litli Bergþór - 01.04.2009, Page 6
um hann í þeim efnum. Hann var í hreppsnefnd
Biskupstungnahrepps í um 16 ár eða frá 1970 til
1986. Hann tók frá unga aldri ötullega þátt í starfi
Ungmennafélags Biskupstungna, var í stjórn þess
um tíma, þar af formaður um skeið. Hann var
heiðursfélagi Ungmennafélagsins. Hann hefur
um langan tíma, ásamt öðrum, haldið úti blaði
Ungmennafélagsins, Litla-Bergþóri og hefur lengi
verið formaður ritnefndar þess merka blaðs.
Arnór starfaði mikið að félagsmálum bænda.
Hann lét mjög að sér kveða í þeim efnum er hann
var formaður Landssamtaka sauðfjárbænda á
árunum 1991 til 1997, en þá voru miklir umbrots-
og mótunartímar varðandi málefni þeirra. Hann
starfaði með Björgunarsveit Biskupstungna og var
fengur fyrir Björgunarsveitina að hafa mann sem
gjörþekkti landið á þann hátt sem Arnór gerði. Arnór
var einnig í Landgræðslufélagi Biskupstungna og
Sauðfjárræktarfélagi Biskupstungna. Að sjálfsögðu
var hann alla tíð í Hestamannafélaginu Loga, en
hann vann við að skrá sögu þess félags þegar hann dó.
Arnór starfaði einnig mikið fyrir kirkjuna.
Hann var í sóknarnefnd Torfastaðasóknar og
lagði mikla rækt við starfið þar. Hann sá um
fjárreiður sóknarinnar og kirkjugarðsins. Hann
mætti árlega á héraðsfundi Arnesprófastsdæmis
og var leiðandi í nánu samstarfi hinna fjögurra
sókna Skálholtsprestakalls og sá um sameiginlegar
fjárreiður þeirra.
Arnór stundaði alla tíð fræðimennsku og ritstörf.
Hann ritaði ásamt öðrum um Biskupstungur í
bókina og byggðalýsinguna Sunnlenskar byggðir
sem Búnaðarsamband Suðurlands gaf út 1980 en
ljóst er að það hefur verið mikið verk. Hann er
höfundur meginefnis í árbók Ferðafélags íslands
árið 2001 og nefnist þáttur hans „Á Kili“ en þar
leiðir hann lesandann mjög ýtarlega um töfraheima
hálendisins, auk þess sem hann lagði til fjölmargar
ljósmyndir í bókina. Einnig setti hann saman
smáritið Fótgangandi um fjallasali, tólf gönguleiðir
á Kili sem ferðafélagið gaf út 1998, en Arnór lagði
til allar ljósmyndir í það rit. í Litla-Bergþóri er eftir
hann urmull pistla og greina sem hann hefur birt þar.
Auk þess hefur hann skrifað og flutt á mannamótum
fjölda merkra fræðsluerinda sem ekki hafa komið út.
Arnór var með fróðustu mönnum um hálendið,
Biskupstungurnar og nærliggjandi sveitir. Var þá
sama hvort um var að ræða þekkingu á örnefnum,
jarðfræði, dýralífi eða sögu byggðarinnar. Það er því
engin furða að ferðahópar sóttust eftir að fá hann til
að veita leiðsögn. Fór hann bæði með hópum upp á
hálendið og yfir Kjöl auk þess sem hann veitti fólki
leiðsögn um Biskupstungur og nærliggjandi sveitir.
Þær ferðir voru ógleymanlegar þeim sem í þær fóru.
Arnór var ókvæntur og barnlaus. Samt má segja að
hann hafi átt feiknastóra fjölskyldu sem hann lagði
rækt við. Þar á ég ekki eingöngu við ættfólk hans,
systkini og systkinabörn heldur einnig allt það fólk
sem hann tengdist í gegnum félagsstörf sín. Hann
bjó yfir mikilli greind og vegna yfirburða þekkingar
og reynslu hans af félagsmálum, var hann einkar
ráðagóður. Hann var mjög nákvæmur í öllu og gat
myndað sér mjög sterkar og ákveðnar skoðanir á
málum. Virtist þeim sem ekki voru á sama máli
og hann þá oft sem gjörsamlega ómögulegt væri
að hagga honum. Fannst mönnum hann þá jafnvel
einstrengingslegur og þver. En reynsla mín var sú
að þær skoðanir sem Arnór myndaði sér voru jafnan
byggðar á rökum, yfirvegun og innsæi. — Hann var
traustur og hreinskiptinn og þess vegna var gott að
sækja til hans styrk og ráð. Er ég þakklátur fyrir þá
vináttu, hlýju og stuðning, sem Arnór hefur veitt
mér þau ellefu ár sem ég hef verið sóknarprestur í
Biskupstungunum.
Arnór sinnti skepnunum sínum af mikilli alúð, en
hann var ekki eingöngu í hirðishlutverkinu gagnvart
þeim, heldur líka nemendum sínum, kirkjunni sinni,
sveitinni sinni, menningararfleifðinni og landinu.
Arnór var oft einn fótgangandi á hálendinu eða
annars staðar úti í náttúrunni. Þessar gönguferðir
voru honum mikilvægar enda ritar hann á einum
stað:
Nánast verður sambandið við landið með því
að ganga um það á eigin fótum. Þannig gefst
tœkifœri til að skoða hvert smáatriði, gróðurinn,
moldina, grjótið og vatnið, finna ilm þess og
snertingu, um leið og notið erforms og lita
landslagsins. (4)
Nýtt landslag blasir við Arnóri, er hann hefur nú
lagt í nýja ferð, yfir dauða og gröf, um þá heima sem
okkur eru ósýnilegir og ókunnir.
í þá ferð tekur hann með sér margvíða mynd af
dýrð þeirrar fósturjarðar sem umfaðmaði hann hér.
En við sem eftir lifum geymum í hugum okkar góðar
minningar um bróður sem í lífsstarfi sínu öllu vann
með Hinum Hæsta að því að „halda áfram þeirri
sköpun, sem byrjað var á í upphafi vega. “
Egill Hallgrímsson
Skálholti
Beinar tilvitnanir:
1. Arnór Karlsson: Óbirt handrit úr fórum hans.
2. S.H.: „Einn, en ekki einmana. Viðtal við Arnór
Karlsson.“ Vikan 11. tbl 1963 bls. 43.
3. Arnór Karlsson: Sigþrúður og Karl. Minningarrit
2004. Bls. 15 og 16.
4. Arnór Karlsson: Fótgangandi um fjallasali, tólf
gönguleiðir á Kili. Ferðafélag Islands 1998, bls. 3.
Litli Bergþór 6