Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.1995, Blaðsíða 14
"Ættfræðinnar ýmsu hliðar"
í tengslum við 50 ára afmælið stóð
Ættfræðifélagið fyrir sýningunni
“Ættfræðinnarýmsuhliðar”. Kenndi
þar margra grasa, m. a voru þar sýndi r
ættargripir af ýmsu tagi, s. s. fatnaður,
búsáhöld, leikföng, silfurmunir, bréf
myndir og bækur. Fylgdi hlutunum
saga þeirra og hvernig þeir hafa fylgt
ættinni lengur eða skemur. Einnig
voru sýndar ættrakningar á ýmsa
vegu, m. a. í kvenlegg, eftir nöfnum
og landsvæðum, sýndir ættarhringir
og margvísieg myndskreytt niðja- og
áatöl. Við birtum hér myndir frá
sýningunni og nokkra texta lesendum
til fróðleiks og ánægju.
Kaffikvörn
Þessakaffikvöm átti PálínaPálsdóttir
f. 1866 í Suðurbúð Eyrarsveit Snæ.
(af Breckmannsætt). síðar húsfreyja
á Spjör og Búðum Eyrarsveit. Pálína
giftist 1896 Runólfi Jónatanssyni f.
1873. Dóttir hennar Jóhanna Run-
ólfsdóttir f. 1896 d. 1972 fékk síðan
kvörnina og notaði hún hana alla tíð.
Nú er kvörnin í eigu Páls Þorkels-
sonar, bróðursonar Jóhönnu (sonar-
sonar Pálínu) (Klara Kristjánsdóttir)
Myndir: Björg Jónsdóttir og
Ingvar Bjarnason
14