Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.1996, Síða 3
Halldór Halldórsson útvegsfræðingur:
Prófsveinar Stýrimannaskólans
fyrstu 50 árin
Erindi flutt á fundi hjá Ættfræðifélaginu 25. janúar 1996 (Úrdráttur)
Þegar ég var innan við fermingu kom Amar-
dalsættin út en þar er móðir mín á bls 492 (faðir minn,
Halldór Gíslason togaraskipstjóri er í Víkingslækjar-
ættinni, gafcda). Alltaf man ég eftir því að móðir mín
sagði að Hannibal væri fæddur í Amardal en væri
samt ekki af ættinni, en á þessum árum var alltaf vitað
við hvern var átt þegar talað var um Hannibal. Eg
byrjaði ungur að velta fyrir mér ættfræði og tengslum
og man að eitt af því fyrsta sem ég lærði var að Jakob
Jónsson prestur og Eysteinn Jónsson stj ómmálamaður
væru bræður, en reyndar var Eysteinn nefndur Svei-
steinn af einhverjum af þeim sem höfðu góðar tekjur
- en voru ekki í sama stjórnmálaflokki og hann.
Frá því að ég man eftir mér heima, hékkupp á vegg
mynd af afa mínum í móðurætt, þar sem hann var í
hópi skólafélaga sinna, sem voru í Stýrimanna-
skólanum 1906. Alls eru 32 á myndinni og vissi móðir
mín nöfn þriggja þeirra. Þegar ég var í Stýrimanna-
skólanum 1970-74 var tekið til hendinni og raðað upp
skólamyndunum frá upphafi, þær sem til voru. Ég fór
að hugsa um að margir á mynd afa míns væru ekki
þekktir og því skrifaði ég grein í sjómannablaðið
Víking og bað menn um að þekkja þá sem á myndinni
væru. Með því sem þar kom og seinni viðbótum eru
nú 22 þekktir en 10 ekki ennþá. í framhaldi af þessu
talaði ég við Hafstein Bergþórsson en hann útskrifaðist
1913, og skrifaði upp eftir honum, með aðstoð
myndarinnar af hans árgangi, fáein æviatriði allra
þeirra sem þá útskrifuðust, alls 19 menn. Það er mér
ákaflega minnisstætt að af þeim 18 sem útskrifúðust
með Hafsteini létust fimm þeirra innan 3-4 ára, fjórir
úr tæringu og sá fimmti úr lungnabólgu.
Fyrir þrem árum kom út bók í tilefni þess að
Stýrimannaskólinn í Reykjavík varð 100 ára. Þegar
bókin er athuguð kemur í ljós að frá 1893 til 1913 eru
teknar hópmyndir af nemendum en eftir það skóla-
spjöld með sporöskjulagaðri mynd af hverjum nem-
anda. Af21 mynd, sem ættu að veratil afnemendum
frá 1893 til 1913 eru einungis 11 í bókinni. Mér þótti
þetta ekki alveg nógu gott og það rifjaðist upp fyrir
mér að á sínum tí ma komu út bækur um Menntaskólann
í Reykjavík og Kvennaskólann í Reykjavík. Þegar ég
athugaði þær kom í ljós að þar var allt í sóma. Nánast
allar myndir til og nær allir þekktir á þeim. Hér stóð
heldur betur upp á höfuðskóla sjómannastéttarinnar á
íslandi, Stýrimannaskólann í Reykjavík, elsta fagskóla
höfuðborgarinnar.
Nú fór ég að hugsa málið og fljótlega gerjaðist sú
hugmynd að leita að þeim myndum sem vantaði og
finna út hverjir væru á þeim og í framhaldi af því að
skrifa nokkra setningar með æviatriðum þeirra og þá
alveg sérstaklega um þá sem ekki eru í Skipstjóra- og
sýrimannatalinu, sem út kom 1979-80. Ég byrjaði á
að tölvusetjanafnalistannúr 50 áraafmælisbók Stýri-
mannaskólans og hóf svo að fletta hinum ýmsu stétt-
artölum og byrjaði á Vélstjóratalinu og Loftskeyta-
mannatalinu og síðan Kennaratalinu. Þegar ég rakst á
einhvem sem átti stýrimann eða skipstj óra fyrir foður,
afa eða tengdaföður þá gáði ég að því hvort mig
vantaði upplýsingar um hann, sem raunar var
spumingin um hvort hann væri í Skipstjóra- eða
Stýrimannatalinu eða ekki. Svona hélt ég áfram og
ekki gleymdi ég Sjómannablaðinu Víkingi eða Ægi,
né Þrautgóðir á raunastund og Virkinu í norðri. Við
þessa upplýsingaöflun nýt ég þess að fólk er ekki að
sitja á því ef það á stýrimann eða skipstjóra fyrir
sky Idmenni auk þess sem athafnir þessara manna fóru
ekki fram hjá fólkinu í landinu, nú eða þá hörmulegar
slysfarir. Þessir menn hafa ekki heldur verið að sitja
á æviatriðum sínum. Eftir því sem ég veit best getur
enginn skóli státað afjafnmörgum nemendum sínum,
sem hafa gefið út minningar sínar eins og Stýrimanna-
skólinn, samanber meðfylgjandi lista (sjá bls. 4).
Nú um miðjan janúar þegar ég lauk við fyrstu
yfirferð í upplýsingaöfluninni standa málin þannig að
af þeim 1043 sem eru í 50 ára afmælisritinu eru 563
í Skipstjóra- og stýrimannatalinu, en afþeim 480 sem
eftir eru hef ég upplýsingar um 240, en þrettán eru á
borðinu hjá mér en ég veit ekkert um 227. Þessa 227
er ég með á lista og ætla að dreifa honum meðal
fundarmanna. Listanum er skipt eftir sýslum miðað
við fæðingarstað.
Hvað varðar þær myndir sem vantar standa málin
þannig að tvær fundust strax á Þjóðminjasafninu, ein
hafði verið tekin úti og við ekki áttað okkur á að það
var myndin af árganginum. Tvær til viðbótar er hægt
að búa til með tölvutækni en fimm eru enn ófundnar
en segja má að það sé varla byrjað að leita, þannig að
það eru góðar vonir með að fleiri finnist, - kannski
allar.
Ég hef við þetta grúsk mitt notið aðstoðar Ingu
Láru Baldvinsdóttur, deildarstjóra ljósmyndadeildar
Þjóðminjasafnsins og einnig Guðjóns Armanns Eyj-
ólfssonar skólameistara Stýrimannaskólans í Reykja-
3