Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.02.1996, Side 11
Fyrirlestrasalurinn býður uppá möguleika á
móttöku hópa, sem óska leiðsagnar fræðimanns, eða
annara sérfræðinga um afmörkuð svið tengsla í slands
og Vesturheims. Afnot af salnum eru möguleg allt
árið og er þá ekki síst hugsað til þess að skólar eða
aðrar stofnanir nýti sér aðstöðuna sem þar er fyrir
hendi.
Gamla Kaupfélagshúsið á Hofsósi
Starfsemi Vesturfarasafnsins hefur verið valinn
staður í Gamla Kaupfélagshúsinu á Flofsósi og við-
byggingum tengdum því. Húsið á sér merka sögu,
sem ekki verður rakin nánar hér. Snorri Þorfinnsson
ehf., eignaðist húsið á vordögum 1995 og var strax
hafist handa við framkvæmdir. Húsið hefur farið í
gegnum gagngerðar endurbætur en þess gætt að
halda upprunalegu útliti óbreittu. Tvær samtengdar
viðbyggingar hafa verið reistar sem eiga að hýsa
ættfræðisetrið, þjónustumiðstöð og fyrirlestrarsal.
Hönnuður breytinga og nýbygginga er Óli Jóhann
Ásmundsson arkitekt, og er það mál manna að ein-
staklega vel hafi til tekist.
Húsin standa undir brekku við hafnarsvæðið
norðan Hofsár, nánast á ijörukambinum og þegar
framkvæmdum verður lokið á húsum og umhverfi,
verður þarna afar glæsilegt og heildrænt svæði að
heimsækja. Gamli bærinn “Plássið” með sínum gömlu
friðsælu húsum, “Pakkhúsið”, bogabrúin, fallegt
hafnarsvæði og Skagaijörður. Glæsilegt.
Snorri Þorfinnsson ehf.
Eins og fram kemur í upphafí greinarinnar, var
fyrirtækið Snorri Þorfinnsson ehf. stofnað á vordög-
um, 2. apríl 1995. Stofnendur voru 15 einstaklingar,
alltáhugamennumaukintengslviðVestur-íslendinga
ásamt uppbyggingu almennrar ferðaþjónustu á svæð-
inu. Síðan þá hafa fleiri bæst í hópinn, einstaklingar
og fyrirtæki, enda um mjög áhugavert verkefni að
ræða.
Þegar fyrirtækinu var valið nafn, var höfðað til
tilgangs þess og markmiða og þótti rétt að það bæri
nafn Snorra Þorfinnssonar, fyrsta íslendingsins
(Evrópubúans) sem fæddist í Vesturheimi. (1002-
1003). Nafn Snorra tengist einnig á annan hátt
staðsetningu safnsins. Hann var sonur Þorfinns
Karlsefnis, sem ættaður var frá Þórðarhöfða (Höfða)
í Skagafirði, steinsnar frá Hofsósi, og konu hans
Guðríðar Þorbjarnardóttur.
Um ætt og uppruna Snorra Þorfínnssonar má lesa
í Eiríkssögu og Grænlendingasögu, en þar segir frá er
Völva ein spáir framtíð Guðríðar móður hans; “að frá
henni (Guðríði) muni koma mikil ætt og góð og yfir
hennar kynkvíslum skíni bjartari geislar, en hún hafí
megin til að geta slíkt vandlega séð”.
Það er trúa mín að yfir þessu fyrirtæki, sem ber
nafn sonar hennar, Snorra Þorfinnsonar, muni mikil
birta ríkja til gleði og blessunar þeim sem að standa
og þeirra sem njóta.
Að lokum langar mig, sem þetta rita að biðja
ykkur félaga í Ættfræðifélaginu sem hugsanlega
búið yfir upplýsingum, sem að gagni kunna að koma
varðandi ættir, uppruna og tengsl við Vestur-íslend-
inga, eða annað sem skipt getur máli t.d. upplýsingar
um muni, myndir eða bréfaskriftir frá þessum tíma,
að vera Vesturfarasafninu innan handar.
Hægt er að hafa samband við eftirtalda aðila:
Sigríði Sigurðardóttir, curator,
Byggðasafni Skagfirðinga, Glaumbæ, IS-560
Varmahlíð.
Sími:453 6173 bréfsími: 453 8873
Snorra Þorfmnsson ehf.
c/o Valgeir Þorvaldsson, framkvæmdastjóra,
Suðurbraut8, Hofsósi. Sími4537935&4537936
eða undirritaðan:
Ásmund Reykdal
Starrahólum 11, 111 Reykjavík. Sími 5571223
Lokaorð:
Vonandi hefurþessi greinarstúfurupplýstnokkuð
um það merka starf, sem verið er að vinna að á
Hofsósi. Það sýnir það sem áður hefur verið svo vel
sagt, að “vilji er allt sem þarf’, og samhentir ein-
staklingar geta lyft “Grettistaki”. Það er einmitt það
sem verið er að gera á Hofsósi með uppbyggingu
Vesturfarasafnsins.
Starfsemin mun, þegar fram líður stuðla að betri
og nánari tengslum frænda okkar í Vesturheimi við
gamla landið og veita þeim og okkur innsýn í líf og
aðstæður forfeðra okkar á umbrotatímum í sögu
þjóðarinnar.
I Á
Kapp er best með forsjá
Maður nokkur kom að konu sinni að óvörum í örmum annars manns. Hann steytti hnefann framan í
viðhaldið og var líklegur til að lumbra á honum.
Þá sagði eiginkonan: "Hvað er þetta maður, ætlarðu að drepa föður barnsins þíns?"
11