Sjómannadagsblaðið - 10.06.2001, Blaðsíða 7
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 10.JÚNÍ, 2001
7
Kostnaður nemenda í fjarkennslu er miklu lægri en í hefbundnu námi þegar allt er tekið með í reikninginn.
Fjarkennsla er valkostur
fyrir íslenska sjómenn
Sjómenn hafa ekki síður en aðrir
áhuga á því að mennta sig. Þeir
hafa í mörgum tilfellum takmark-
aða möguleika til menntunar, en
fjarkennsla eða möguleikinn á því
að stunda fjarnám hefur gerbreytt
allri aðstöðu þeirra. Tilvist fjar-
kennslu hefur í mörgum tilfellum
gert það að verkum að sjómenn,
sem annars hafa ekki átt mögu-
leika til skólagöngu, hafa getað
stundað nám með vinnunni. Sig-
urður Ingi Andrésson, deildarstjóri
í raungreinum í Vélskóla íslands,
hefur á undanfórnum árum sinnt
fjarkennslu sjómanna.
„Segja má að hjólin hafi farið að
snúast þegar möguleikar opnuðust
til fjarkennslu með tölvubúnaði.
Stærstu skrefin til framfara felast í
því hve miklu minni tíma það tekur
að senda spurningar og svör á milli
nemenda og kennara," segir Sigurð-
ur Ingi.
„Fjarkennsla fyrir sjómenn er
stærsta skrefið í jafnrétti til náms
sem stigið hefur verið undanfarin
20 ár. Hún er gríðarlega þýðingar-
mikil fyrir sjómenn sem sitja ein-
angraðir úti á sjó og einnig fyrir þá
sem eru í svipaðri stöðu úti á landi
eða í útlöndum. 011 framþróun í
fjarkennslu hefur mikla þýðingu
fyrir þessa hópa fólks.
Fjarkennslan fer þannig fram að
nemandi fær send verkefni sem
hann hefur viku til þess að svara,
en kennarinn skuldbindur sig til að
gefa umsögn innan sólarhrings frá
því að svörin berast frá nemandan-
um. Mikilvægt er að kennari standi
við sínar skyldur á vinnslu efnis,
því nemandi hefur takmarkaðan
tíma til þess að fylgjast með endur-
gjöfinni."
Engu síðri niðurstaða
Fjarkennsla er að mestu leyti sam-
bærileg við hefðbundna kennslu.
Farið er yfir nákvæmlega sama efn-
ið og sömu prófin tekin. „Reynsla
Verkmenntaskólans á Akureyri og
einnig okkar í Vélskólanum er sú,
að nemendur í íjarnámi skila síst
verri niðurstöðum en hinir og hafa
staðið sig mjög vel f vinnu eða fram-
haldsnámi. Munurinn á Qar-
kennslu og hefðbundinni kennslu
felst í því að nemandinn fær einka-
kennslu í fjarnámi og beinar leið-
beiningar frá kennara og verður
það að teljast jákvæður þáttur. Nei-
kvæði þátturinn við fjarkennsluna
er sá að nemandi hefur ekki tæki-
færi til samvinnu við aðra nemend-
ur.
Því fylgir töluvert umstang að
sinna fjarkennslunni svo vel sé.
Skipuleggja þarf próftökur á allt
annan hátt og semja við skóla eða
stofnun í nágrenni nemandans um
próftöku. I sumum tilfellum getur
það verið flókið ferli, til dæmis þeg-
ar nemendur eru erlendis. Þá þarf
að semja við sendiráð um fram-
kvæmd prófsins eftir settum regl-
um. Það er oft mikil vinna sem fylg-
ir því að fá fjarkennslukerfi til að
virka.
Margir halda að búið sé að ijúfa
einangrun sjómanna með tækni-
framförum í upplýsingasamfélag-
inu, en reyndin er allt önnur.
Þrátt fyrir alla umræðuna um
upplýsingabyltingu samfélagsins,
er sjómaðurinn ennþá ótrúlega ein-
angraður. Tæknin er til staðar, en
gera þarf gangskör að því að lækka
kostnað fjarskipta og gera fjar-
kennsluna auðveldari í fram-
kvæmd. Vegna erfiðleika á þessu
sviði hafa sjómenn í fjarnámi oft
gripið til þess úrræðis að taka verk-
efnin með sér um borð og senda úr-
lausnirnar frá sér þegar þeir koma
í land. Fjarskiptin hafa reynst þeim
of dýr eða fjarskiptasambandið ver-
ið í ólagi,“ segir Sigurður Ingi.
Bæta fjarskiptin við skipin
„Ef yfirvöld hafa á annað borð
áhuga á því að styðja við bakið á
fjarkennslu fyrir sjómenn, ættu
þau fyrst og fremst að beina augun-
um að því að bæta fjarskiptin við
skipin. Bætt fjarskipti koma ekki
einungis að gagni við íjarkennslu,
heldur einnig við almenn samskipti
fólks og fjölmiðla í því upplýsinga-
samfélagi sem við hrósum okkur af.
Því miður hefur skilningur á þess-
um málum gagnvart sjómönnum
verið afskaplega lítill hjá ráða-
mönnum.
Eftir allar yfirlýsingarnar um að
menn væru tilbúnir að auka veg
upplýsingatækninnar, er furðulegt
að ekki skuli vera lögð meiri
áhersla á að leysa þennan þátt fjar-
skiptanna. Það ætti að vera á for-
gangslista að bæta samskiptin við
skipin til að sjómenn geti notið þess
sem tækniframfarir í upplýsinga-
þjóðfélaginu bjóða upp á.
Ég er klár á því að hægt sé að
bæta fjarskiptin við skipin á mið-
unum og jafnframt fulla trú á því
að skilningur á þessu máli aukist
og tæknihindrunum verði hrint úr
vegi. Netsambönd eru smám sam-
an að verða betri og hraði netsend-
inga að aukast. Með tækni nútím-
ans er jafnvel mögulegt að senda
heilu kvikmyndirnar með tölvu-
pósti, hljóð og önnur flókin gögn. í
augnablikinu eru þær sendingar
þungar í vöfum, en búast má við því
að innan skamms tíma verði þær
mögulegar á styttri tíma,“ segir
Sigurður Ingi.
Minni kostnaður
Sigurður segir það ljóst að kostnað-
ur nemenda í fjarkennslu sé miklu
lægri en í hefbundnu námi þegar
allt er tekið með í reikninginn.
„Námið sjálft og umgjörðin í kring-
um fjarkennsluna er dýrari, en á
móti kemur að mögulegt er að
stunda vinnu með náminu og búa
hvar sem er. í því felst meginmun-
urinn.“ Fjarkennslunni fylgja nán-
ast engar takmarkanir hvað val á
kennsluefni varðar. Verkmennta-
skólinn á Akureyri hefur verið í far-
arbroddi skóla á íslandi í fjar-
kennslu. í greinargerð um fjar-
kennslu Verkmenntaskólans á Ak-
ureyri fyrir haustönn 2000, getur
að líta eftirfarandi orð:
„Fjarkennsla Verkmenntaskólans
á Akureyri hefur starfað óslitið frá
vorönn 1994. . . Hún hefur einnig
sannað gildi sitt sem þjónusta við
fjölmarga, sem vildu komast til
náms, en sem ekki áttu þess kost
fyrr en hún kom til. Þegar fjar-
kennsla Verkmenntaskólans á Ak-
ureyri hóf göngu sína, var afar lítið
um hliðstæða kennsluhætti annars
staðar í heiminum öllum. . . Afar
líklegt má því telja, að starf fjar-
kennslu Verkmenntaskólans á Ak-
ureyri og þeirra kennara, sem starf-
að hafa innan hennar, hafi verið og
sé brautryðjendaverk í kennsluhátt-
um á heimsvísu.“
Sigurður segir Verkmenntaskól-
ann á Akureyri bjóða fjarkennslu í
öllum greinum til stúdentsprófs.
„Skólinn hefur jafnvel verið með
fleiri möguleika, til dæmis fjar-
kennslu í hjúkrunarfræði í sam-
vinnu við Armúlaskóla. Vélskólinn
hefur boðið fjarkennslu í almenn-
um vélstjómargreinum og Stýri-
mannaskólinn, í samvinnu við
Verkmenntaskólann á Norðfirði og
veiðarfæradeildina á Suðurnesjum,
útbúið margmiðlunardisk til
kennslu sem tekur á ýmsum þátt-
um sjávarútvegsins.
Verkmenntaskólinn á Akureyri
var með um 600 nemendur í fjar-
kennslu á síðasta ári og af þeim
voru 15 á sjó. Ég er með 5 nemend-
ur í Vélskólanum og nemendur í
fjarkennslu í Stýrimannaskólanum
hafa verið álíka margir," segir Sig-
urður Ingi.
Veðursíminn
902 0600
VEÐURSTOFA
ÍSLANÐS
Veður á sjó
Sjóveðurspi Veljið 2
Nvjustu veðurathuganir: Veljið 6
Veðursiminn er gerður fjTÍr tónval. Þeir sjómenn, sem em með gamla NMT-
síma og geta ekki notað tónval. geta nálgast sjóveðurspá með þvf að hríngja
beinti 902 0602
Veður á landi
Veðurhorfur næsta
sólarhríng og nýjustu
veðurathuganir fyrir
einstðk spásvæði:
Veljið 8 og siðan tölu
svæðtsins.
Til að velja annað spásva
Veljið * og töhi nvja
svæðisins.
Veðurupplýsingar í GSM síma
Sjá nánar á vefsiðu Veðurstofunnar. WWW.Vedlir.is