Unga Ísland - 01.11.1935, Page 9
UNGA ISLAND
173
riddara og frelsaði mig. — Og hring-
urinn hvarf í djúpið. En nú ertu kom-
inn til baka í hönd mína á ný, hring-
urinn minn góði, og þú hefir fundið
riddarann sem mun frelsa mig“, og
nú kyssti hún hringinn.
,,Þú kyssir hringinn", sagði kon-
ungssonurinn. ,,Mér fyndist nú að þú
gætir eins vel kysst mig“.
„Finnst þér það“, sagði hún og hló,
og hún lagði hendurnar um hálsinn
á honum og kyssti hann.
En rétt í því heyrðu þau drunur
og undirgang. ,,Það er bergtröllið“,
sagði stúlkan. ,,Ó, flýtum okkur, flýt-
um okkur, við verðum að flýja eins
fljótt og auðið er“.
Þau hlupu í einu hendingskasti nið-
ur fjallshlíðina. Niðri á grundinni við
fl.iótið beið hinn trúi og dyggi þjónn,
hesturinn góði.
1 skyndi söðlaði konungssonurinn
hest sinn og steig á bak og tók kon-
ungsdóttir í fang sér, og eins og ör-
skot þutu þau af stað út í fljótið.
Hesturinn frísaði hart við vatninu, og
var þegar kominn á hroka sund. En
ofan úr dimmum skóginum heyrðu
þau öskrin úr bergtröllinu, þar sem
það var að leita að þjónustustúlkunni
sinni. r ^ I
Yfir fljótið komust þau, og riðu nú
greitt niður með fljótsbakkanum hin-
um megin árinnar. — Nú voru þau
komin heim á leið, og þau riðu við-
stöðulaust, dag og riótt, yfir fen og
flóa og gegn um dimma skóga. Svo
var það loksins kvöld nokkurt, að þau
komu heim á grundirnar sunnan við
konungshöllina. Konungsdóttirin var
nú orðin nokkuð þreytt. Hún sat við
barm konungssonarins, en hann hafði
vafið frakkanum sínum um hana,
Hún virti fyrir sér skuggann í tungls-
ljósinu: „Er það ekki æfintýralegt“,
sagði hún og hló, „eftir skugganum
að dæma virðist það aðeins vera einn,
sem situr á hestinum".
Skrifist á.
Eg undirrituð óska að komast í
bréfasamband við pilt eða stúlku í
Austur-Skaftafellssýslu á aldrinum
15—18 ára.
Pálína S. Guðjónsdóttir,
Þaralátursfirði,
Grunnavíkurhreppi,
Nor ð u r-lsaf j ar ð arsýsl u.
Eg undirrituð óska að komast í
bréfasamband við dreng eða telpu í
Eyjafjarðarsýslu á aldrinum 12—14
ára.
Ingigerður G. Guðiónsdóttir,
Þaralátursfirði,
Grunnavíkurhreppi,
Norður-lsafjarðarsýslu.
Við undirritaðir óskum að komast
í bréfasamband við dreng eða stúlku
á aldrinum frá 10 ára. — Okkur er
sama hvar þau eru á landinu.
Halldór Þórðarson,
Laugalandi,
pr. Melgraseyri,
N. ís.
Kristján Jóhannsson,
pr. Melgraseyri,
N. Is.
Hallgrímur Á. Kristjánsson,
Melgraseyri,
N. Is.