Unga Ísland - 01.11.1935, Blaðsíða 10
174
UNGA ISLAND
Eg undirrituð óska eftir bréfasam-
bandi við dreng á Akureyri á aldr-
inum 10—12 ára. Einnig óska eg eftir
að komast í bréfasamband við stúlku
á sama aldri í Þingvallasveit eða
Vatnsdal.
Þórey Sigurðardóttir,
Skúfsstöðum, Hjaltadal,
Skagafirði.
Eg undirrituð óska að komast í
bréfasamband við stúlku í Reykjavík,
á aldrinum 16—18 ára.
Gyða Guðmundsdóttir,
Fossi, Barðaströnd,
Barðastrandarsýslu.
Eg undirritaður óska að komast í
bréfasamband við dreng á Isafirði, á
aldrinum 14—16 ára.
Þórarinn G. Féldsted,
Fossi, Barðaströnd,
Barðastrandarsýslu.
Undirritaður óskar að komast í
bréfasamband við dreng eða stúlku
á aldrinum 15—16 ára á Akureyri
eða ísafriði.
Jóhann G. Guðnason,
Syðri Vatnahjáleigu,
Austur-Landeyjum,
Rangárvallasýslu.
Eg óska að komast í bréfasamband
við dreng eða stúlku á aldrinum 12
—14 ára, austur í Fljótsdalshénaði.
Jóhanna Pétursdóttir,
Syðri Úlfsstaðahjáleigu,
Austur-Landeyjum,
Rangárvallasýslu.
Eg undirritaður óska eftir bréfa-
viðskiftum við dreng á aldrinum 13
—15 ára á Vestfjörðum eða Suður-
landi.
Aðalsteinn Sigurðsson,
Aðalstræti 76.
Akureyri.
Bollinn.
Það var blíða logn. Fiskiskúta
nokkur lá úti fyrir ströndinni. Skip-
stjórinn stóð á stjórnpallinum, en
matsveinninn var að þvo upp bolla á
þilfarinu. Allt í einu æpti matsveinn-
inn upp yfir sig. Skipstjórinn lítur
niður til hans og spyr hvað sé um að
vera. Matsveinninn kvaðst hafa misst
bolla útbyrðis. ,,Var það einn af koll-
óttu bollunum okkar, eða var hann
með haldi?“ spyr skipstjóri. ,,Það var
einn af kollóttu bollunum okkar“,
svaraði matsveinninn. ,,Ó, það gerir
þá ekki svo mikið til, en ef það hefði
verið bolli með haldi, þá hefðum við
reynt að slæða fyrir hann“.
(Þýtt úr norsku).
Eyrún Maríusdóttir,
12 ára.
Haustvísa.
Nú fölna grænar grundir
og grösug bliknar hlíð
og hregg á fjöllin hrynur
og haustsins kólnar tíð.
Þá fuglar allir flýja
og fjarlæg sækj’a í lönd,
hvar sól og sumarblíða
signir hverja strönd.
Magnús V. Þór.