Unga Ísland - 01.11.1935, Qupperneq 14
178
UNGA ÍSLAND
Smælki.
Ég hefi það fyrir fasta venju að vera
stundvís. Ef ég get t. d. ekki borgað
reikning nákvæmlega á réttum degi, nú
•— þá geri ég það aldrei.
-----x----
Gesturinn: Þjónn! Hnífurinn er bit-
laus og steikin ólseig.
Þjónninn: Brýndu hann á steikinni.
---------------x-----
— Þér auglýstuð herbergi með morg-
unsól til leigu. Fylgir morgunmatur?
— Nei.
— En væri ekki hægt að fá morgun-
kaffi fyrir morgunsólina?
-----x----
— Er það satt, Gunna, að piltunum
lítist betur á ljóshærðar stúlkur en
dökkhærðar ?
— Spurðu Dísu. Hún hefir reynt
hvorttveggja.
-----x----
Faðirinn bannaði Palla að orga af
smámunum. Nokkrum dögum seinna
kom Palli hlaupandi til pabba síns og
spurði: ,,Ég sló mig með hamri á þum-
alfingurinn; eru það bara smámunir?"
„Hví spyrðu um það?“
„Annars ætla ég að orga“.
-----x----
Kennarinn: „Hvernig stendur á því,
að úlfaldar eru notaðir til reiðar á eyði-
mörkum, en ekki hestar?“
Nemandinn: „Úlfaldarnir þola betur
að deyja úr þorsta“.
-----x----
Faðirinn: „Heldurðu að kennarann
gruni, að ég hjálpa þér við stílana?“
Drengurinn: „Það hugsa ég. Hann
sagðist ekki trúa því, að ég gæti skrif-
að svona mikla vitleysu hjálparlaust“.
------------------x----
Dómarinn: „Ég vona, göfuga frú, að
þessar mörgu spurningar mínar geri
yður ekki órólegar“.
Vitnið: „Nei, nei. Ég er nú slíku vön.
Ég á 6 ára gamlan son“.
——x-------
Prestur nokkur skrifaði langan og
lofsþrunginn ritdóm um bók eina, sem
var nýkomin út. Höfundurinn va. vinur
prests, og var þetta fyrsta bók hans ...
í niðurlagi greinarinnar stóðu þessi
merkilegu orð: „ .. . . Höfundurinn á
vissulega skilið hið mesta hrós vegna
hinnar ágætu ritgáfu sinnar. Á nokkr-
um stöðum hafa dottið úr penna hans,
líklega óviljandi, orð og setningar, sem
engum hefir áður hugkvæmst að láta
koma fyrir almenningssjónir".
----x-----
Eg sagði Hermanni svo skelfilega
sögu í gær, að hárin risu á höfði hans.
Nú, og hvernig fór svo?
Hann greiddi sér.
Tilkynning.
Eins og tilkynt var í októberblað-
inu er árgangi blaðsins lokið með
þessu hefti. Jólahefti kemur út í byrj-
un desember og er það <aðeins sent til
skuldlausra kaupenda.
Útsölumenn! Afhendið ekki kaup-
endum ykkar þetta hefti, né jóla-
blaðið, nema 30. árg. sé greiddur.
Þeir útsölumenn er kynnu að hafa
í vörslum sínum 1., 4. og 5. hefti
þessa árgangs, sendi þau til afgreiðsl-
unnar hið fyrsta. Önnur blöð >af ár-
ganginum, er þeir hafa umfram það
sem þeir þurfa hand iakaupendum, er
þeim heimilt að gefa í útbreiðsluskyni.