Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Blaðsíða 18
nemenda, BS-verkfræðinga og síðast en ekki síst afsláttur til nýútskrifaðra sem fá afslátt
fyrstu fimm árin eftir að námi lýkur.
A árinu 2006 greiðir hússjóður um 4,5 millj.kr. til félagssjóðs sem svarar til 6.200 kr.
hækkun félagsgjalds á félaga. Framlagið nemur um 24% af tekjum félagssjóðs VFI.
A skrifstofu VFI/TFI er sami starfsmannafjöldi og áður. Bætt hefur verið við húsnæðið
með rekstri fundarsalar á jarðhæð en salurinn á þriðju hæðinni var tekinn í notkun 1996.
Þó að hlutur VFÍ í samrekstrinum hafi lækkað úr 63% í 55% hafa ráðstöfunartekjur til
annarra verkefna svo sem útgáfumála, markaðssetningar o.fl. dregist saman að krónu-
tölu um 14% á meðan launavísitala hækkar um 87% og vísitala neysluverðs um 40%.
Félagafjöldinn
í ársbyrjun 2006 voru félagsmenn VFÍ 1136, þar af 12 ungfélagar.
Nú eru félagsmenn 1143, þar af 93 konur eða 8,1%. Á árunum 2000
til og með 2004 gengu 220 nýir félagar í VFÍ. 62 sögðu sig úr félag-
inu á sama tíma, 36 létust og 5 voru teknir af skrá. Fjölgunin á þess-
um tíma var 117 eða 11,8%. Áratuginn þar á undan frá 1990 til 1999
var fækkun um 19 félaga. Nokkur fjölgun varð á árinu 1995 sen
rekja má til útgáfu verkfræðingatals en fækkunin átti sér stað í
byrjun og síðari hluta tímabilsins. Grafið hér að neðan sýnir þróun-
ina frá 1996 til 2006.
Húseignir VFÍ ekki seldar
Á aðalfundi VFÍ sem haldinn var í mars 2005 var m.a. samþykkt sú tillaga stjórnar að
skipa starfshóp til að setja fram tillögur um hvernig nýta megi eigur félagsins til að efla
verkfræðimenntun og kynna störf stéttarinnar. Stjórn VFI skipaði fimm einstaklinga í
starfshópinn og voru það þau Gísli Pálsson, Guðrún Rögnvaldardóttir, Jóhann Gunnar
Gunnarsson, Vífill Oddsson og Pétur Stefánsson, sem leiddi hópinn. Hópurinn skilaði
niðurstöðum sínum um ráðstöfun húseigna VFI við hugsanlega sameiningu VFI, TFÍ og
SV í lok nóvember og var einhugur um að ekki skuli selja húseignina að Engjateigi 9.
Hins vegar voru skiptar skoðanir um á hvern veg skuli farið með eignarhluta VFI að
Engjateigi 7 og ef sá hluti yrði seldur yrði það gert í þeim tilgangi að stofna sjóð til að efla
og vekja athygli á verkfræðistéttinni.
I tillögu stjórnar VFÍ sem samþykkt var á aðalfundinum 2005 er einnig kveðið á um að
stjórnin skuli leggja fram tillögur í þessum efnum á aðalfundi félagsins 2006. í kjölfar
niðurstöðu starfshópsins sem sagt er frá hér að framan var því lögmaður VFÍ, Ragnar
Hall, fenginn til þess að útfæra tillögu þess efnis að stjórn VFÍ leggi til við aðalfund
félagsins 2006 að stjórninni verði falið að selja eignarhluta félagsins í fasteigninni
Engjateigur 7 í Reykjavík. í tillögunni segir: „Andvirðið skal vera stofnfé sérstaks sjóðs,
Verkfræðingasjóðsins, sem skal vera sérstök deild í félaginu og hafa það markmið að
verðlauna verkfræðinga fyrir afburðavel unnin störf á sínu sviði og auka veg verkfræði-
menntunar á þann veg sem stjórn sjóðsins telur best henta á hverjum tíma. Skal stjórn
sjóðsins skipuð fimm verkfræðingum, en stjóm VFÍ skal setja sjóðnum skipulagsskrá sem
starfað skal eftir."
Á stjórnarfundi VFÍ þann 12. desember 2005 var þessi tillaga borin upp en hún hlaut ekki
brautargengi innan stjórnar. Það er því ljóst að stjóm VFI mun ekki leggja fram neinar
tillögur fyrir aðalfund félagsins 2006 þess efnis að selja húseignir félagsins.
Fjöldi félaga VFl (árs-
byrjun 1996-2006.
1 6, Arbók VFl/TFl 2 0 0 6