Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Blaðsíða 335
Hérlendis eru tvær prófunaraðferðir til að meta alkalívirkni fyrirskrifaðar í
Byggingarreglugerð [5]:
1. Hraðvirkt múrstrendingapróf, ASTM C 1260 [6]. Múrstrendingar eru geymdir í
mettaðri alkalílausn við 80 °C og niðurstöður fást á 16 dögum.
2. Múrstrendingapróf, ASTM C 227 [7]. Múrstrendingar eru geymdir í rakamettuðu
umhverfi við 38 °C. Prófið tekur eitt ár.
Báðar þessar prófunaraðferðir eru umdeildar á alþjóðlegum vettvangi, sérstaklega C 227
en dæmi eru um að þekkt virk fylliefni hafi reynst óvirk með þessari prófunaraðferð. í
báðum þessum prófunaraðferðum eru múrstrendingar prófaðir en ekki steypublöndur
þannig að erfitt getur reynst að meta áhrif stærri kornastærða og ýmissa íauka. Til að
mæta þessu hefur verið unnið að því að þróa nýjar prófunaraðferðir þar sem steypu-
strendingar eru prófaðir. Sú vinna hefur farið fram m.a. innan RILEM (International
Union of Testing and Research Laboratories for Materials and Structures). Rannsókna-
stofnun byggingaiðnaðarins (Rb) hefur einnig tekið þátt í samanburðarrannsóknum
innan vébanda RILEM [8]. Nú er verið að leggja lokahönd á nýja EN-prófunarstaðla og
er útlit fyrir að þeir verði allfrábrugðnir þeim sem notaðir hafa verið hér til þessa,
einkum að því leyti að í þeim er lögð meiri áhersla á rannsókn steypustrendinga.
Rannsóknarverkefni 2005-2006
Hönnun hf. hafði frumkvæði að því að skilgreina rannsóknarverkefni til að kanna hvaða
prófunaraðferðir henta íslenskum aðstæðum og hvernig þær svara áhrifum mismunandi
sementstegunda og íauka. Verkefnið fór af stað árið 2005 og lýkur í árslok 2006.
Markmiðið er að nota niðurstöður verkefnisins til að leggja grunn að reglum eða
þjóðarskjali um alkalívirkni. Hönnun hf. stýrir verkefninu og að auki taka
Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins (Rb) og Línuhönnun hf. (Lh) þátt í því.
Rannsóknir hafa að mestu leyti verið gerðar á rannsóknarstofu Hönnunar hf. en saman-
burðarpróf hafa verið gerð á Rb og Lh. Verkefnið tengist evrópsku rannsóknarverkefni
um sama efni, PARTNER (European Standard Tests to Prevent Alkali Reactions in
Aggregates). Hönnun hf. og Rb eru virkir þátttakendur í því verkefni. RANNÍS, íbúða-
lánasjóður, Steinsteypunefnd, Landsvirkjun, RARIK, Arnarfell, Björgun, Steypustöðin,
Loftorka og Aalborg Portland á íslandi styrkja verkefnið. Að auki taka Sements-
verksmiðjan og BM Vallá þátt í verkefninu með vinnu- og efnisframlagi.
Sjónum var beint að fjórum prófunaraðferðum í verkefninu:
1. Hraðvirkt múrstrendingapróf (RILEM AAR-2 [9], mjög svipað ASTM C 1260,80 °C).
Prófið tekur 16 daga.
2. Múrstrendingapróf (ASTM C 227, 38 °C). Prófið tekur eitt ár.
3. Steypustrendingapróf (RILEM AAR-3, [10] 38 °C). Prófið tekur eitt ár.
4. Hraðvirkt steypustrendingapróf (RILEM AAR-4, [11] 60 °C). Prófið tekur 20 vikur.
Verkefnið var tvíþætt. Annars vegar var leitast við að meta áhrif sements og íauka á
alkalívirkni í steinsteypu og hins vegar var alkalívirkni átta mismunandi fylliefna metin.
Til að meta hið fyrrnefnda var hver prófunaraðferð prófuð með sjö mismunandi
sementstegundum og mismunandi magni íauka en alltaf með sama fylliefni. Til að meta
hið síðarnefnda voru prófuð átta mismunandi fylliefni en sama sementstegund með háu
alkalímagni og engum íaukum.