Verktækni - 16.02.1988, Síða 9

Verktækni - 16.02.1988, Síða 9
ETTIR NÝJUNGAR I NÝTINGU JARDHITA Dagana 16.-18. nóvember sl. var haldin námstefna á vegum Endur- menntunarnefndar Háskóla (slands um nýjungar í nýtingu jarðhita. Helsta markmið námstefnunnar var að miðla þekkingu á nýtingu jarðhita og kynna möguleika á betri notkun hans. ( námstefnunni tóku þátt um 30 manns og voru flutt 11 erindi og fram fóru umræður um þau. Einnig voru heim- sótt nokkur fyrirtæki sem nota jarð- hita. Það helsta sem kom fram á námstefnunni var eftirfarandi: Hitaveitur Dæmi eru um að nýting hjá hita- veitum hafi batnað þegar skipt er frá hemlum yfir í mæla. Þetta sýnir sig bæði í afli og orku. Hér á landi hafa menn einblínt á eina leið til upphit- unar á húsum þ.e. með ofnum. Ekki hefur ætíð verið tekið nægilegt tillit til eðli jarðhitans við hönnun hitakerfa í húsum. Ofnar eru almennt slæmir varmaskiptar, en geislahitun og loft- hitun húsa nýta jarðvarmann mun betur en ofnahitun. Eitt sem hefur valdið sumum hitaveitum vandræð- um er að jarðhitageymurinn er ekki ótæmandi orkulind. Hér þurfa hita- veitur að bregðast rétt við í vali á öðrum orkugjöfum þegar þær þurfa að meta hagkvæmni milli grunnafls og toppafls í mati á jaðarkostnaði. Eitt af þýðingarmestu atriðum hjá hita- veitum er að láta fylgjast vel með forðafræði jarðhitans og hvernig jarð- hitageymar bregðast við sífellt auk- inni notkun. Hér er öflug rannsókn- arstarfsemi mikilvæg. Einnig var sýnt fram á að meö því að stýra betur framrásarhita hjá hitaveitum eftir álagi mætti bæta nýtinguna og minna orkutap í lögnum. Komið hafa fram hugmyndir um að sumar hitaveitur gætu aukið tekjur sínar með því að bjóða til sölu heitt vatn utan aðalhús- hitunartíma, t.d. til fiskeldisstöðva. Nýjungar í nýtingu JARÐHITA NÁMSTEFNA 16. — 18. nóv. 1987 i Borgartúni 6 Umsjónarmenn: Jón-Steinar Guðmundsson verkfræöingur og Valdimar K. Jónsson prófessor D A G S K R Á : Markmiö námstefnunnar: Er aö miðla þekkingu á nýtingu jarðhita og kynna möguleikka á botri notkun hans, þeim nýjungum sem þar hafa hafa komiö fram á síöustu árum, hvernig hægt er að standa aö nýjum nýtingarfram- kvæmdum og endurbæta þær sem fyrir eru. Lögð veröur sérstök áhersla á að þátttakendur taki virkan þátt i umræöum og samantekt á niöurstöðum. Þátttakendur: Námstefnan er ætluð verkfræöingum og tæknifræö- ingum, en hún kemur einnig að gagni fyrir rekstrar- aöila hitaveitna og annarra jarövarmaorkuvera. Sér- stök áhersla er lögö á notkun jaröhita i fiskiönaöi og landbúnaöi siöasta daginn. Námsgögn munu liggja fyrir viö upphaf námstefnunnar. Mögulegt er aö sækja hluta ráðstefnunnar. ÞRIÐJUDAGUR 17. NÓVEMBER 9.00-10.00 Fjölþætt nýting jaröhita Valdimar K. Jónsson 10.00-10.15 Kaffihló 10.15-11.00 Fjölþætt nýting jarðhita — V.K.J. 11.00-12.00 Vinnslu- og foröafræði Jón-Sleinar Guðmundsson verkfr. 12.00-13.00 Matarhlé 13.00-14.00 Rekstur varmaorkuvera Alberl Albertsson verkfræðingur Hitaveitu Suöurnesja 14.00-15.00 Leiöir til aukinnar hagkvæmni hita- veitna Wilhelm Steindórsson verkfr. 15.00-15.30 Kaffihló 15.30-17.00 Umræöur um efni dagsins og sam- antekt — J.S.G. og IV.S. 17.00-19.00 „Orkuveisla" MÁNUDAGUR 16. NÓVEMBER: 9.00-10.30 Nýting jarðhitans, á islandi og erlendis Valdimar K. Jónsson prófessor 10.30- 10.50 Kaffihlé 10.50-12.00 Vinnsla efna úr jarögufu; salt , kisill, gas o. II. Magnús Magnússon verkfræóingur, Sjóefnavinnslunni hf. 12.00-13.00 Matarhlé 13.00-14.15 Guíuveitur Sverrir Þórhallsson verkfræöingur, Orkustofnun 14.15-15.30 Áætlanir um nýtingu jaröhitans Oddur B. Björnsson verkfræöingur, Fjarhitun hf. 15.30- 16.00 Kaffihló 16.00-17.00 Umræöur um efni dagsins og sam- antekt — O.B.B. og V.K.J. MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 9.00-10.30 Þurrkun og notkun jar ö hita i fisk- iönaöi Sigurjón Arason verkfræöingur, Rannsóknarstofnun fiskiðnaöarins 10.30-10.45 Kaffihló 10.45-12.00 Garöyrkja og notkun jaröhita I land- búnaöi Jón-Steinar Guömunpsson verkfr. 12.00-13.00 Matarhlé 13.00-18.00 Heimsókn i Sjóefnavinnsluna og Svartsengi Önnur nýting Framleiðsla á kolsýru og þurrís úr jarðhita var tekin upp hjá Sjóefna- vinnslunni á sl. ári. Hér koma fram ótal möguleikar til notkunar svo sem í gosdrykkjaframleiðslu, kolsýru- notkun I gróðurhúsum, kælingu i gámum, til slátrunar i sláturhúsum og á eldisfiski o.fl. Einnig er til athugunar önnur efnavinnsla úr jarðsjó. Hægt er að flytja jarðgufu á hagkvæman hátt lengra en áður var haldið. Æskilegt væri aö koma upp gufuveitum til af- hendingar á gufu á ákveðnum stöð- um t.d. nærri Reykjavík og við Grindavík. Þetta gæfi smáfyrirtækjum möguleika á að nota ódýra gufu. Fiskimjölsverksmiðjur nota um 60-70 þús. tonn af svartoliu til þurrkunar. Með þvi að fækka verksmiðjum og byggja tvær stórar á Húsavík og Grindavík, sem notuðu jarðhitagufu til þurrkunar, gæti reksturinn orðið hag- kvæmari og gjaldeyrissparandi. Þurrkun á grænmeti og fiski með jarðhita er hægt að stórauka, bæði á skreið, saltfiski og harðfiski. Þurrkun annarra fiskafurða er enn óplægður akur. Rétt væri að taka upp að nýju athugun á ylræktarveri, sérstaklega vegna nýrrar þróunar ( lýsingu á plöntum og annarrar tæknilegrar þekkingar sem er betur þekkt nú. Mikill vöxtur hefur verið I jarðvegs- hitun grænmetisgarða á síðustu ár- um, sem eykur afköst garðyrkju- bænda verulega. Til þess að gera orku frá háhitasvæðum sem ódýr- asta, er nauðsynlegt að hafa fjöl- þætta nýtingu á henni eða gjörnýt- ingu. T. d. væri hægt að nota jarðhit- ann til raforkuframleiðslu, þurrkunar, hitunar, fiskiræktar eða jarövegshit- unar og að lokum til heilsuræktar, allt samtímis þannig að orkan gjörnýtist. Svo að þetta gæti tekist þyrfti rekstur orkuveitunnar að vera í höndum sér- fræðinga á því sviði, en viðskiptavin- irnir (fyrirtækin) þyrftu ekki að hafa áhyggjur af orkuöflun og gætu sinnt sínu sérsviði betur. Huga verður að verðlagninu orkunnar á hverju vinnslustigi, sem væri háð hita og ástandi viö afhendingu. Einnig kæmi forðafræðin inn I heildarverðlagningu jarðhitans. Mikil þörf er fyrir þjálfun starfsfólks jarðhitafyrirtækja og auk- inni miðlun á reynslu milli þeirra. □ Frekari upplýsingar veita umsjónar- menn námskeiðsins: Dr. Jón-Steinar Guðmundsson, Orkustofnun, 83600 /82857. Dr. Valdimar K. Jónsson, Háskóla íslands, 694300/694653. Jón-Steinar Guömundsson HIOKI MÆLIPENNINN LETTUR OG NETTUR. Vegur aðeins 60 gr. Mælisvið: 0-500V DC/AC oo-Viðnám Díóðuprófun Geymir aflestur Elgum flestar gerðlr mœla s. s. Einangrunarmæla A-V-Ohm-mla A-tangir Hitastigsmæla Fasfylgdarsjár Lf Kynntu þér HIOKI Símar: 685854, 685855 VERKTÆKNI — 16. FEBRÚAR 1988 9

x

Verktækni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/900

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.