Siglingamál - 01.03.1978, Side 3
SIGLUVfK Sl 2, frá Siglufirði. Einn af 450 brl. skuttogurum, sem smíðaðir voru á Spáni árið
1974, á fiskislóð norður af landinu.
íslenzkir skuttogarar
Breytingar til aukins öryggis
Grein 9.2
Á fáum undanförnum árum hafa bætzt
í íslenzka fiskiskipaflotann allmargir ný-
smíðaðir og notaðir skuttogarar, og nú í
árslok 1977 eru þeir orðnir 73 talsins.
Nú hefur nokkur reynsla fengist hér
við land á þessari gerð skipa, en auk þess
hafa nýleg slys á erlendum skuttogurum
gert okkur Ijóst, að nokkur atriði í gerð
þessara skipa mætti endurbæta, og auka
með því öryggi skipanna og áhafna
þeirra, ekki síst við þær aðstæður, sem
ríkt geta á íslenzkum hafsvæðum.
Siglingamálastjóri telur því rétt að
vekja athygli eigenda íslenzkra skuttog-
ara á nokkrum helztu þessara atriða, sem
hægt er að lagfæra á þeim togurum, sem
þegar eru í íslenzkri eign, og þegar um
ný skip verður að ræða, þá er hugmyndin
að þessi atriði, e. t. v. ásamt nokkrum
fleiri, sem hægt er að taka upp á nýjum
skipum en síður á þeim eldri, yrðu gerð
að kröfu á þeim.
Varðandi breytingar sem telja verður
nauðsynlegar eða æskilegar á eldri skut-
togurum, og hér verður gerð grein fyrir,
þá er hér um að ræða atriði, sem ég vona
að eigendur skipanna muni fúslega fall-
ast á að endurbæta eins fljótt og verða
má, í samráði við Siglingamálastofnun
ríkisins.
Þar eð skipin eru á ýmsan hátt mis-
munandi, verður að athuga þessi atriði á
hverju einstöku skipi sérstaklega. Á sum-
um skipanna er vitað að einstök þessara
atriða eru þegar uppfyllt, og því ekki
breytinga þörf, en á öðrum skipum getur
breytilegt fyrirkomulag valdið því, að
lausnin verður ekki á öllum skipunum
alveg eins.
Þessvegna er nauðsynylegt að ræða