Siglingamál - 01.03.1978, Blaðsíða 12
12
gáfu á bókum og bæklingum á veg-
um IMCO.
G. Tæknileg samstarfsdeild sér um
tækniaðstoð við þróunarlöndin meðal
annars með því að senda til aðstoðar
þeim sérfræðinga, koma mönnum
þaðan til sérfræðináms og þjálfunar,
veita aðstoð með búnaði eða öðrum
hætti innan starfssviðs IMCO, og þá
á grundvelli þróunaráætlunar sam-
einuðu þjóðanna (UNDP).
HvaS gerir IMCO?
IMCO er vettvangur, þar sem fulltrúar
aðildarríkjanna skiptast á skoðunum og
vinna að því að leysa vandamál, sem
tengd eru siglingamálum, skipatækni-
málum, hafmengunarmálum eða lög-
fræðilegum atriðum um þessi atriði.
IMCO gerir ályktanir er varða siglinga-
mál, sem berast tillögur að frá aðildar-
ríkjum eða öðrum aðilum innan „fjöl-
skyldu“ Sameinuðu þjóðanna, IMCO sér
um að boða til, undirbúa og stendur að
alþjóðaráðstefnum um mál sem eru í
verkahring stofnunarinnar, í þeim tilgangi
að ganga frá alþjóðlegum samþykktum
eða ályktunum.
Öryggi á sjó.
Öryggi á sjó hefur verið efni margra
alþjóðlegra samþykkta, en mikilvægust
þeirra er Alþjóðasamþykktin um öryggi
mannslífa á hafinu. Núgildandi samþykkt
um þetta efni var samin og samþykkt á
alþjóðaráðstefnu, sem haldin var á veg-
um IMCO árið 1960, og IMCO sér um
stjórnunaratriði þessarar samþykktar.
Stöðugleiki skipa og vatnsþétt
sundurhóffun.
Stöðugleiki skipa er að sjálfsögðu eitt
mikilvægasta atriði í öryggi allra skipa.
Vatnsþétt sundurhólfun skiþa í mörg að-
skild vatnsheld rými er gerð þannig á
stærri stálskipum, að jafnvel þótt eitt eða
fleiri þessara rýma fyllist af sjó, þá fljóti
skipið samt, og að því hvolfi ekki.
Öryggi fiskiskipa.
IMCO hefur sérstaklega unnið að mál-
um er varða öryggi fiskiskipa, og sérstök
nefnd hefur haft þau mál með höndum.
Ýmsar ályktanir hafa verið samþykktar
á þingum IMCO til aukins öryggis fyrir
fiskiskip. Má þar sérstaklega nefna leið-
beiningar og ályktanir um stöðugleika-
útreikninga fiskiskipa og um aðgerðir
gegn ísingu fiskiskipa, sem samþykktar
voru á þingi IMCO árið 1973.
Þá ber að geta þess, að vorið 1977 var
á Spáni haldin á vegum IMCO alþjóðleg
ráðstefna um öryggi fiskiskipa, og þar
var gengið frá alþjóðasamþykkt, þeirri
fyrstu í heiminum um þetta efni. Þar eru
gerðar lágmarkskröfur um hönnun, smíði
og búnað fiskiskipa, sem eru 24 metrar
að lengd eða meira. Þessi alþjóðasam-
þykkt um öryggi fiskiskipa hefur nú verið
gefin út á ensku, og er gert ráð fyrir
að samþykktin verði staðfest af ýmsum
aðildarríkja IMCO innan fárra ára.
Brunavarnir í skipum.
Bruni í skipum er ein mesta hætta,
sem steðjar að í skipum og brunavarnir
í þeim eru mun flóknari en á landi. í
kjölfar mikilla bruna í farþegaskipum
vann IMCO á árunum 1966 og 1967 að
nýjum og strangari alþjóðaákvæðum um
brunavarnir í skipum. Þessi brunavarna-
ákvæði eru viðauki og endurskoðun á
hluta alþjóðasamþykktarinnar frá 1960
um öryggi mannslífa á hafinu.
Árið 1973 staðfesti þing IMCO fjölda
mörg ákvæði til brunavarna í olíuflutn-
ingaskipum og lausafarmskipum. Hér er
m. a. um að ræða innbyggð slökkvikerfi
með froðu og efnafræðilega óvirkum gas-
tegundum til verndar gegn eldi í farm-
geymum og á þilfari. Áfram er nú unnið
að brunavarnarákvæðum fyrir minni olíu-
flutningaskip og að öðrum þáttum bruna-
varna í skiþum.
Hönnun og smíði skipa.
Stöðugt aukinn flutningur á hættuleg-
um efnum í farmgeymum skipa hefur
valdið því, að brýn nauðsyn var fyrir
IMCO að rannsaka áhrif þessara flutn-
inga á hönnun skipa. Árið 1971 sendi
IMCO frá sér reglugerð um hönnun og
búnað skipa, sem flytja hættuleg kemisk
efni laus í farmgeymum. Nú er unnið að