Neytendablaðið - 01.04.1971, Blaðsíða 8
Stöðugur áróður lyfja-
framleiðenda flæðir
yfir læknana allan
ársins hring.
lækna, ekki til þess að gera
þá neikvæða gagnvart notkun
lyfja, heldur til þes s að minna
þá á að nota lyf með gætni".
(Bls. 81-82, Læknablaðið
3. hefti 1969).
1 áðurnefndri grein í Consum-
er Reports er mælt með tvenns
konar ráðstöfunum.
1. Notkun klóramfeníkóls ætti
einungis að binda við sjúkra-
hús. Þau tilfelli, þar sem
eðlilegt er að nota klóram-
feníkól, eiga yfirleitt ekki
heima annars staðar en á
sjúkrahúsi.
2. Meðan klóramfeníkól er
veitt út á lyfseðil, ætti að setja
skýra aðvörun um hættuleg
hliðaráhrif lyfsins utan á
umbúðir þess. - Hér er
raunar komið að nokkuð
viðkvæmu atriði. Er ekki
með slíkri aðvörun verið
að lýsa vantrausti á lækna. ?
Hér er því til að svara, að
læknar er skeikulir eins og
aðrir menn og reynslan
af sölu klóramfeníkóls
sýnir , að sumir læknar í
Bandaríkjunum eru of mót
tækilegir fyrir ötulum og
lævísum áróðri lyfjafram -
leiðenda. ( Engar svipaðar
heimildir eru til um íslenzka
lækna ).
Vegna þessa máls hafa Neyt-
endasamtökin skrifað heil -
brigðismálaráðuneytinu bréf,
þar sem beðið er um rann-
sókn á notkun klóramfeníkóls
á fslandi í dag. Víða erlendis
eru tölur um notkun hættulegra
lyfja ávallt við hendina - og eru
opinber skjöl. Er því ekki
til of mikils mælzt að heil-
brigðismálaráðuneytið láti
safna upplýsingum um notk-
un lyfs eins og klóramfení-
kóls - slíkar upplýsingar
eru auðfengnar úr tollskýrsl-
um.
Ennfremur er þess farið á
leit við ráðuneytið , að það
láti sérfróða menn athuga ,
hvort ekki sé full ástæða til
að setja strangari reglur um
notkun klóramfeníkóls en nú
gilda.
Það er von Neytendasamtak-
anna.að heilbrigðismála -
ráðuneytið ( og þá auðvitað
um leið - ráðgjafi þess,
Lyfjaskrárnefnd) bregði
hér skjótt við.
LYFJASKRÁRNEFND
(THE ICELANDIG PHARMACOPOEA COMMISSION)
(DEN ISLANDSKE FARMAKOPÉKOMMISSION)
HVERFISGATA 39, REYKJAVÍK
ÍSLAND (ICELAND)
NEYTENDASAMTÖKIN SENDU LYFJASKRAR-
NEFND LJÖSRIT AF ÞESSARI FRÉTTATIL-
KYNNINGU ALÞJÖÐASAMTAKANNA. MEÐ
LJOSRITINU VAR SENT BREF, ÞAR SEM
LYFJASKRARNEFND VAR BEÐIN UM AÐ
SEGJA ALIT SITT A LYFINU CLOROMYCE-
TIN I LJOSI FRETTATILKYNNINGARINNAR .
BRÉF OKKAR VAR DAGS. 28. 10. 19?0.
BREF BARST FRA lyfjaskrarnefnd
7.12. 1970. EINS OG SJA MA ER ENGAN
VEGINN HÆGT AÐ TELJA BREF ÞETTA
SVAR, HVAÐ ÞA ALIT. BRÉFIÐ ER SVO-
HLJOÐANDI
Reykjavik, 7. 12. 1970
Varðandi bréf neytendasamuakanna, sem dagsetL er 28. 10. 1970,
með fyrirspurn um lyfið CHL0R0MYCETIN ásamt fylgiskjali skal tekið
fram, að lyf þetta er á sérlyfjaskrá í 3 formum: augnsmyrslj,
hylki og stungulyf. Lyfið hefur því að dómi lyfjaskrárnefndar verið
talið standast þœr kröfur, sem gerðar eru til sériyfja samkvæmt
lyfsclulögum.
F.h. lyfjaskrárnefndar,
Til
N e y t e ndas amt-akanna,
Pósthólf 1096,
Reykjavík.
8