Bændablaðið - 30.09.1997, Side 1
16. tölublað 3. árgangur
Þriðjudagur 30. september 1997
ISSN 1025-5621
Komdn dódnu
i geymslunni
iverð!
Núna er kjörið tækifæri
fyrir einstaklinga í tiltektar-
hug að koma gamla dótinu í
verð. Bændablaðið býður
fólki að auglýsa ókeypis í
næsta tölublaði sem kemur út
14. október. Hægt er að aug-
lýsa til sölu allt milli himins
og jarðar. Hver veit nema þú
getir komið dótinu í
geymslunni í verð?
Aðeins þarf að fylgja
nokkrum einföldum reglum
sem útskýrðar eru á bls. 17
svo auglýsingin fáist birt
ókeypis.
Hámarhsálagning á mjólh og
mjólkun/örur íelld niðui*
Samkeppnisráð hefur, með
vísan til markmiðs samkeppnis-
laga, ákveðið að fella úr gildi há-
marksálagningu á mjólk og mjólk-
urvörum í smásölu frá og með 1.
október.
Verðtaka á
framleiðendastigi
Kanna á hlnt
bænda í
verömyndun
bnvara
Verið er að undirbúa verðtöku
á framleiðendastigi hjá Fram-
leiðsluráði landbúnaðarins og
nokkrum búgreinafélögum.
Framleiðsluráð felur búgreina-
félögunum að annast fram-
kvæmd málsins og munu þau
skila mánaðarlega upp-
lýsingum til ráðsins um verð
og greiðslukjör einstakra af-
urðategunda.
Framleiðsluráð mun svo
annast úrvinnslu gagna og birta
niðurstöður mánaðarlega á síðum
Bændablaðsins. Búgreinafélögin
þurfa að semja við bændur á
ýmsum stöðum á landinu um þátt-
töku í verkefninu. Megintilgangur
verðtökunnar er að safna á skipu-
lagðan hátt upplýsingum um
raunverulegt verð einstakra af-
urðaflokka. Þetta verður æ nauð-
synlegra eftir því sem opinberrar
verðlagningar gætir minna. Þá er
einnig mjög mikilvægt að unnt sé
að hafa tiltækar upplýsingar um
verð til bænda þannig að það liggi
fyrir hver sé hlutur þeirra í endan-
legu verði búvara./GÁ
Bœndablaðsmynd: Jón Eiríksson
Réttað í Stafnsrétt í Austur-Húnavatnssýslu
Markaðsrannsókn fyrir kjötnefnd
Framleiðsluráðs
Meirihlim aðspurðra
var andvígur inn-
flnlningi á hráu kjöti
Aöeins eitt prósent þeirra sem svðruðu borðar ekki kjöt
Fyrir skömmu voru kynntar
niðurstöður í markaðsrann-
sóknar sem fjórir nemendur á
vörustjórnarsviði í Tækniskóla
íslands, unnu fyrir kjötnefnd
Framleiðsluráðs /landbúnað-
arins á síðastliðnu vori. í Ijós
kom að meirihluti aðspurðra
var andvígur innflutningi á
hráu kjöti. Úrtakið var 1000
manna slembiúrtak úr þjóð-
skrá og svöruðu 671 manns
könnuninni. Þegar þátttak-
endur voru spurðir hvort þeim
fyndist að leyfa ætti inn-
flutning á hráu kjöti, svöruðu
67% því neitandi en 26%
játandi. Flestir sem voru á
móti innflutningi á hráu kjöti,
rökstuddu það annars vegar
með því að nóg framboð væri
á kjöti hérlendis (34%) eða að
innflutningi fylgdi smithætta
(34%), áhætta sem ekki væri
þess virði að taka. Tólf
prósent nefndu „íslenskt, já
takk“ og 3% nefndu að þeir
óttuðust aukaefni í innfluttu
hráu kjöti.
Á hinn bóginn, rökstuddu
flestir þeirra sem fannst að leyfa
ætti innflutning á hráu kjöti þá
skoðun sína með því að inn-
flutningur á hráu kjöti myndi auka
samkepphi á markaði hérlendis,
eða 42%,
Þegar spurt var út í umfjöllun
um landbúnaðarmál, töldu 41%
sig fylgjast alltaf eða oftast með
umræðunni og 93% fylgdust
eitthvað, með henni. Þegar þeir
sem eítthvað fylgdust með
umræðunni voru spurðir hvemig
þátttakendum fyndist sú umræða
gagnvart landbúnaðinum, svörðu
40% því til að þeim finndist hún
ósanngjöm.
Stærstur hluti könnunarinnar
snerist þó um þróun neyslu og
hvað réð kaupum á kjöti og hvort
fólk keypti yfirleitt kjöt. Þar kom
m.a. fram að einungis eitt prósent
þátttakenda neytti ekki kjöts.
Meira er sagt frá niðurstöðum
könnunarinnar á síðu 18 í
blaðinu í dag.
„Niðurstöður könnunarinnar
eru viðurkenning á góðri framm-
istöðu bænda sem og þeirra sem
vinna og markaðssetja íslenskt
kjöt,“ sagði Ari Teitsson, for-
maður Bændasamtaka Islands. „I
könnuninni kemur fram að fólk
virðist sátt við framboð á til-
búnum réttum sem sýnir að
vinnslustöðvar eru á réttri leið.
Þá er gleðilegt hve mikill
skilningur er á annmörkum á því
að flytja inn hrátt kjöt. Einnig er
ánægjulegt til þess að vita að al-
menningur gerir sér glögga grein
fyrir því að það er samhengi á
milli verðs og gæða. Síðast en
ekki síst er það okkur - sem
störfum í landbúnaði - mikil
uppörvun að finna hið jákvæða
viðhorf fólks til íslensks
landbúnaðar.“
j
/
/