Bændablaðið - 30.09.1997, Page 19
Þriðjudagur 30. september 1997
Bændablaðið
19
Eldsnevtissía
stutt 26561117 kr. 321
löng 26566602 kr.589
Smursía fvrir
3. cyl - 2654408 kr. 617
4. cyl - 2654403 kr. 674
4. cyl og 6. cyl 2654407 kr. 728
—
peffur 'yrir '
6rk"'s Vélar
°9 MF-
dra»arvéiar
urnb
°ðsntenri
Ingvar
Helgason hf.
Vélavarahlutir, Sævarhöföa 2,
sími 525 8040.
VARAHLUTiR
í LAND ROVER
OG RANGE ROVER
VARAHLUTAVERSLUN - SIMI 461 3016
Dagbókin
Ráðstefna um ný-
breytni í garð-
plöntuframleiðslu
Garðyrkjuskóli ríkisins, Reykjum í
Ölfusi boðar til þriggja daga ráð-
stefnu um nýbreytni í garðplöntu-
framleiðslu 8. til 10. október nk. á
veitingastaðnum Básnum í Ölfusi.
Aðalfyrirlesari verður Ole Billing
Hansen prófessor við Landbúnað-
arháskólann að Ási í Noregi, sem
kemur sérstaklega til landsins
vegna ráðstefnunnar. Einnig
verða nokkrir íslenskir fyrirlestrar,
t.d. mun Ólafur S. Njálsson flytja
þrjá fyrirlestra um svonefnd
Alaskaverkefni. Ráðstefnan
stendurfrá kl. 09:00 til 17:00 alla
dagana. Skráning og nánari upp-
lýsingar eru gefnar á skrifstofu
skólans, í síma 483-4340, alla
virka daga frá kl. 08:00 til 16:00.
Landsþing
hestamannafélaga
Landssamband Hestamannafé-
laga heldur sitt 48. ársþing
dagana 24. og 25. október á Egils-
stöðum í boði Hestamannafélags-
ins Freyfaxa. Ársþingið hefst kl.
10:00 að morgni 24. okt. á Hótel
Valaskjálf og rétt til þingsetu eiga
122 þingfulltrúar alls staðar af
landinu.
Búnaðarþings-
kosningar í Skaga-
firði
Kosningar til Búnaðarþings verða
haldnar í Skagafirði í haust, þar
sem kjósa skal tvo fulltrúa Búnað-
arsambands Skagfirðinga á
þingið. í kjöri eru tveir listar. Kjör-
stjórn hefur ákveðið að fram fari
póstkosning á tímabilinu 20.-31.
október nk. Utankjörstaðakosning
hefst 29. september.
Búnaðarsamband Skagfirðinga
mun standa fyrir tveimur fram-
boðsfundum í samráði við iistana.
(Sjá nánar frétt á bls. 12).
Tilkynningar f dagbók óskast
sendar blaðinu ekki síðar en á
hádegi fimmtudaginn 9. október.
Faxið er 552 3855 og netfang
ath@bi.bondi.i
Hátl heims-
markaðsverð á
búvöpum og
aukning á beinum
greiðslum
Úr skýrslu OECD um landbúnað
I nýútkominni skýrslu OECD
um landbúnað er fjallað um þróun
á stuðningi við landbúnað og
breytingar á landbúnaðarstefnunni
í OECD ríkjunum. Engar grund-
vallarbreytingar urðu á land-
búnaðarstefnu OECD ríkjanna á
árinu 1996. Stuðningur mældur
með PSE lækkaði mikið en það
má fyrst og fremst rekja til þess að
heimsmarkaðsverð á búvörum var
tiltölulega hátt á árunum 1995 og
1996. í árslok 1996 hafði verð á
komi tekið að lækka sem bendir til
að sú staða sem uppi var hafi verið
nokkur undantekning og því ekki
ástæða til að gefa eftir við þróun
umbóta á landbúnaðarstefnunni.
Beinar greiðslur hafa fengið vax-
andi vægi í stuðningi við land-
búnað og námu 23% af heildar
PSE árið 1996 en meðaltal áranna
1986-88 var 18%. Framleiðslu-
stýring er áberandi þáttur í land-
búnaðarstefnunni þó á allra
síðustu árum gæti þar nokkurra til-
slakana einkum hvað snertir
greiðslur fyrir að taka land úr
ræktun (USA og ESB) en á móti
koma auknar beinar greiðslur til
framleiðenda.
Salmonella
veldur
alvarlegum
matarsýkingum
Á tæplega einu og hálfu ári,
þ.e. haustið 1995, allt árið
1996 og frá ársbyrjun 1997,
hafa komið upp þrjú tilvik
matarsýkinga af völdum
Salmonella þar sem orsök-
in hefur verið rakin til Sal-
monella enteritidis, sem
getur valdið alvarlegum
sýkingum. Þetta eru fyrstu
tilvikin þar sem talið er að
rekja megi matarsýkingar
hér á landi til þess tegund-
arafbrigðis af Salmonella.
Hins vegar er algengt að
Salmonella enteritidis sé
orsök sýkinga hjá fólki sem
dvalið hefur erlendis.
Það mál sem flestir þekkja
er rjómabollumálið sem kom
upp á síðastliðnu ári, en í þeim
þremur tilvikum sem hér eru
nefnd, hefur sýking verið stað-
fest hjá nær 150 einstaklingum.
Ætla má að þeir sem sýktust
séu þó nokkuð fleiri, þar sem
ekki næst til allra sem fyrir
sýkingu verða.
Unnið er að útgáfu upp-
lýsingarits um matarsýkingar
með áherslu á sýkingar af
völdum Salmonella./Heimild:
Fréttabréf Hollustuvemdar/Jón
Gíslason.
KORNBÆNDUR
NÝJUNG FRÁ TP FÓDRI
ÍTPFÖÐUR
Skrifstofa: Lynghálsi 9 sími 587 9191 fax 587 9195
Fóðurafgreiðsla: Köllunarklettsvegi 4 sími 588 9191
Bændablaðið kemur næst út 14. október. Skilafrestur
smáauglýsinga (annarra en þeirra sem fólk vill að
birtist ókeypis) ertil kl. 12 á hádegi 10. október.
Duun mykjudæla ská eða fyrir brunn
Skurðbúnaður: 16 tennur,
sker 1416 sinnum á mínútu
við 540 snúninga á mínútu.
Stillanleg fjarlægð milli
inntaks og hræristúts, allt að
2,3 m.
Auðveld í flutningi,
vökvastrokkur lyftir og
lækkar dæluna í haug.
Ryðfrítt stál í hræristút.
Uppfyllir öryggiskröfur
Evrópusambandsins.
Kælivifta og sérstök olía á
drifi eykur endingu.
Hrærikraftur er mikill eða
17000 l/min og aflþörf er um
60 hö.
Öflugasta mykjuhræra og
dæla á markaðnum.
Við getum bent þér á fjölda
ánægðra eigenda sem þú
getur haft samband við.
Leitaðu upplýsinga, fáðu
myndlista og spólu.
BÚlJÖFUR
Krókhálsi 10, sími 567 5200,
fax 567 5218 og farsími 854 1632.