Bændablaðið - 30.03.1999, Page 9

Bændablaðið - 30.03.1999, Page 9
Þriðjudagur 30. mars 1999 BÆNDABLAÐIÐ 9 Fyrsta Qús sinnar tegundar á Kanastnðum Eiríkur Blöndal hjá Bútæknideild RALA hefur aðstoðað nafna sinn Davíðsson við þetta verkefni. Hann segir að verk hans sé fyrst og fremst að aðstoða við ýmsar athuganir á loftslagi og hálmnýtingu. Einnig fóðri bóndinn töluvert með byggi. Eiríkur segir að enn hafi ekkert gerst sem kemur á óvart og eina niðurstaðan sem fengist hafi úr þessu enn sem komið er sé að hálmfjós á íslandi hegði sér nákvæmlega eins og hálmfjós annars staðar á norðurslóð. „Það þarf þó að athuga að aðstæður þarna eru mjög sérstakar og það má alls ekki yfirfæra þessa aðferð á alla bændur. Það eru mjög fáir sem hafa aðstöðu til að gera svona hluti vegna þess að það þarf svo mikið af hálmi, allt að tíu kíló á grip á dag,“ segir hann. Eiríkur segir að athugað verði hversu mikill vinnuþátturinn er á bak við þetta og eins hversu mikil hálmnotkunin er. Eftir það sé svo hægt að meta hvaða árangur verður af þessu. „Við komum til með að halda þessu áfram í vetur og gera þetta síðan upp í vor. En þetta mun væntanlega ekki leiða til þess að við ráðleggjum nýbyggingar hálmfjósa. Þetta er hins vegar ein leið til að nýta gamlar byggingar,“ segir hann. Eiríkur Davíðsson og Sólveig Eysteinsdóttir á Kanastöðum í Austur-Landeyjum eru með at- hyglisverða athugun í gangi á bænum hjá sér. Legustæði kúnna er þar hálmmotta inn í fjóshlöðunni. Þær éta frjálst úr óhreyfðum heyrúllum og fá svo til ómælt magn af súrsuðu byggi. A bænum var fyrir básafjós frá 1952 sem mjaltabás var byggður við fyrir tveimur árum við annan enda fjóssins. Þar að auki var hefð- bundin hlaða við hinn endann. Bóndinn steypti gólf á milli fóður- ganganna þar sem áður var flór og þar er nú slétt plan. Síðan er opnað inn í hlöðuna og er kúnum leyft að fara þangað inn og út eins og þær vilja. Þar liggja þær á hálmi en fara síðan í fjósið til að éta. Þar með hafa þær frjálsan aðgang að góð- fóðri. Sérfræðingar höfðu þó ekki mikla trú á því að þessi hugmynd væri skynsamleg. M.a. töldu þeir að of mikil vinna væri í að bera undir þær. En það var að lokum Eiríkur Blöndal hjá bútæknideild RALA sem studdi Eiríkur í að gera þessar breytingar. Lánasjóður landbúnaðarins styrkti bútækni- deild í athugunum á eiginleikum hálmmottunnar, loftslagi og vinnu- þáttum í fjósinu. „Nú er komin hálfs árs reynsla á þetta og það er ekkert sem stoppar okkur í að halda þessu áfram. Ef eitthvað er hefur nytin aukist eftir að við tók- um þetta upp,“ segir bóndinn og bætir því einnig við að dýralækna- kostnaður hafi minnkað um 55% eftir að hann breytti fjósinu miðað við sama tíma í fyrra. Eiríkur segir að það hafi verið athyglisvert að fylgjast með við- brögðum fólks við þessu. „Innst inni finnst mér fólk hálfpartinn vorkenna okkur að gera þetta og reiknar með því að við förum út í að byggja almennilegt fjós næsta sumar. Þetta á við bæði um aðra bændur og ráðunauta. Þetta er nátt- úrlega gjörólíkt öllum öðrum fjós- um og það er hugsanlegt að það kalli fram þessi viðbrögð í fólki," segir hann. Eins og gefur að skilja fer tölu- vert af hálmi í þessa útfærslu, eða um fimn rúllur á viku. „Við erum með byggrækt og gefum kúnum allt það bygg sem við ræktum. Síðan nýtum við hálminn fyrir kýmar að hggja á. Ef ekki er hægt að hagnast á að nýta komið svona þá er erfitt að hagnast á því,“ segir hann. Eiríkur hefur ekki eytt miklum fjármunum í þessar breytingar. „Ég tel að við höfum eytt um 300- 400 þúsund krónum meðan margir em að eyða milljónum í breytingar á fjósum sínum," segir hann. Það sem vakti helst athygli blaðamanns við íjósið var hversu kalt var þar inni. Uti var frostið um sex gráður en inni í fjósinu var eins gráðu hiti. Loftið úti á greiða leið inn í fjósið og er loftið þar svo ferskt að ekki finnst vottur af fjósalykt þar. Eiríkur setur líka kýmar daglega út. Hann þarf ekki annað en að opna hliðið og kýmar ganga þá út í rólegheitum og fara síðan inn þegar þær vilja. Þetta er því allt saman mjög fijálslegt í fjósinu á Kanastöðum. Spenastig hafa ekki átt sér stað eftir þessar breytingar og vinnuþáttur hefur minnkað til muna þar sem enginn heymokstur á sér stað. „Ég held að í mörgum íjósum sé allt of heitt, svo heitt að kúnum líður hreinlega illa,“ segir hann. Eiríkur bendir einnig á að ef að farið verði út í innflutning á nýju kúakyni þurfi ekkert að breyta fjósinu. „Mér finnst reynd- ar fáránlegt að vera að tala um að flytja fyrst inn norskar kýr. Ég tel að það sé aðeins hálft skref. Mín skoðun er sú að það eigi að taka strax inn besta stofninn, sem em svartskjöldóttu kýmar,“ segir hann. Eiríkur og Sólveig em með 26 kýr í fjósinu og er með um 85 þús- und lítra greiðslumark. Þau hafa rekið þetta bú í tæp fimm ár en þau em bæði búfræðingar. Sólveig gegnir reyndar starfi hjúkmnarfor- stjóra á Hvollsvelli. Þau eiga þijú böm sem em tíu, sjö og þriggja ára. Auk þess em þau með 230 ær- gildi í sauðfé og nokkra hesta, auk þess sem bygg er ræktað á 14 hekt- umm lands. Sauðfjársjúkdómar Blirlit með sauDQársjúkdómum samhliða forflagæfislu Sigurður Sigurðarson, dýralæknir. Að venju hafa verið send eyðu- blöð til sveitarfélaga víða um land vegna söfnunar upplýsinga um vanhöld og veikindi í sauðfé, ijár- verslun, samgang o.fl. Sveitarstjórir em beðnar um að fela forðagæslumanni eða öðmm heppilegum manni að annast þetta. Einnig mætti dreifa blöðum til íjáreigenda, fela þeim að færa upplýsingar á blöðin. Síðan þarf að safna skýrslunum saman, fara yfir þær og senda að Keldum. Gott væri að hafa samráð við dýralækna um þessa skoðun og fela þeim að fara yfir skýrslumar og senda til okkar. A móti er boðin ókeypis skoðun dýralæknis á vanþrifakindum og öðmm gmnsamlegum kindum og sjúkdómsgreining á Keldum. Auk þess em boðnar bætur fyr- ir kindur, sem lóga þarf vegna rannsókna. Þessar upplýsingar eru mikilvægar, skipta m.a. máli vegna trúverðugleika okkar í samningum við Evrópusambandið og fleiri aðila sem fram undan em. Þess er óskað, að sveitarstjómir, búfjár- eftirlitsmenn og fjáreigendur breg- ist vel við þessu. Héraðsdýralækn- um verður sent yfirlit yfir þau sveitarfélög sem eyðublöðin fá. Þakkað er fyrir ágætt samstarf um þetta við mjög margar sveitar- Tryggingasjóður sjálfstætt starfandi einstaklinga Sjynkur tíl atvinnulausra maka félaga í sjúðnum „A þeim tæpu tveim árum sem sjóðurinn hefur starfað hafa um rúmlega 40 bændur fengið greitt úr sjóðnum, eftir að þeir hafa hætt búskap sem er skilyrði fyrir að þeir fái greitt. Nú, þegar tvö ár eru liðin frá því að lögin voru sett, á að endurskoða þau. Við þá endurskoðun verður horft til þess hvernig þau hafa reynst þessi tvö ár sem þau hafa veriðígildi. Ekki er hægt að segja fyrirfram hvort um einhverjar breytingar verður að ræða á lögunum, en ekki eru taldar líkur á því,“ sagði Jóngeir Hlynason deildarstjóri hjá Vinnumála- stofnun um Tryggingasjóð sjálf- stætt starfandi einstaklinga. Við úthlutun í mars fengu 23 bændur greitt úr sjóðnum. En telur Jóngeir að margir sem í sveitum búa uppfylli skilyrði sem sett eru og sjá má í auglýsingu frá sjóðnum í blaðinu í dag? „Við rennum svolítið blint í sjóinn því þetta er í fyrsta skipti sem þessir styrkir eru auglýstir. Miðað við þann samdrátt sem sagt er að orðið hafi á tekjum bænda s.l. ár þá gætu þó nokkrir makar átt rétt á styrkjum, en hér er einnig spurning um frumkvæði þeirra einstaklinga sem sækja um styrki. Það skiptir einnig máli að verkefnin sem sótt séu þess háttar að þau séu styrkhæf. -Hefur fólk ekki haft nein úrræði á borð við þetta á liðnum árum? „Þetta er í fyrsta skipti sem þessir styrkir eru auglýstir, enda reglugerðin ekki nema nokkurra mánaða. Vissulega hefur verið hægt að sækja um ýmsa aðra styrki eftir öðrum leiðum, en hér eru frekar einföld skilyrði sem þarf að uppfylla. Og að þeim upp- fylltum verður styrkjum úthlutað til greiðslu.“ WWW.M.ÍS Mánudaginn 29. mars opnaði vefur íslensks landbúnaðar að nýju eftir gagngerar breytingar og endurbætur. Nýi vefurinn er hannaður í forritinu Web Page Pro í samstarfi við fyrirtækið Hugvit. Það er von aðstandenda vefsins að þetta verði lifandi vefur sem þjóni bæði landbúnaðinum og almenningi og að á einum stað verði hægt að finna tilvísanir í sem flest er lýtur að íslenskum landbúnaði. Allar ábendingar um efni eru vel þegnar. stjómir og bændur um árabil. Á þessum upplýsingum hefur verið byggt. Þær skipta máli varðandi baráttu við smitsjúkdóma, einkum þá langvinnu. Þær sveitarstjómir, sem ekki hafa sinnt þessu síðasta ár em beðnar um að bregðast nú rösklega við. Vera kann að skuld- bindingar sem við tökum á okkur í væntanlegum samningum neyði okkur til að takmarka flutninga af ýmsum toga frá þeim stöðum sem upplýsingar fást ekki frá með þessu móti.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.