Bændablaðið - 30.03.1999, Side 11
Þriðjudagur 30. mars 1999
BÆNDABLAÐIÐ
11
Eigna- og tekjutenging
barnabúta 1999
Ketill A^ Hannesson, hagfræði-
ráðunautur.
Bamabætur eru tekju- og
eignatengdar. Þær eru ákvarðaðar
samkvæmt skattframtali og greidd-
ar eftirá.
Við ákvörðun bamabóta 1999
er miðað við fjölskyldustöðu eins
og hún er í Þjóðskrá 31. desember
1998 en breytingar sem hafa átt sér
stað innan ársins 1998 hafa ekki
áhrif. Þannig fær sá sem hefur
barnið hjá sér í árslok 1998 barna-
bætumar og skiptir þá ekki máli
hvort bamið hafi verið á framfæri
hans allt árið eða hluta úr ári.
Óskertar barnabætur hjóna eru: kr.
Meöfyrsta barni....................104.997
MeB hverju barni umfram eitt.......124.980
Viðbót vegna bama yngri en 7 ára....30.930
Óskertar barnabætur einstæðra loreldra:
Með fyrsta barni...................174.879
Með hverju bami umfram eitt........179.389
Wöbótv/bamaumtrameittyngrien7ára 30.930
Bændur hafa þá sérstöðu að
þeir reka bú sín í eigin nafni sem
sjálfstætt starfandi einstaklingar og
búið er ekki sérstakur skattaðili.
Hrein eign (eign - skuldir) færist á
skattframtal og þar af leiðandi
lenda þeir fremur en aðrir í skerð-
ingu bamabóta vegna eigna en aðr-
ir hópar í þjóðfélaginu. Þeir sem
hafa breytt um rekstrarform og
stofnað einkahlutafélag eða sam-
Merkingar á sauOfé
Mikilvægt öryggisatriði vegna
baráttu við smitsjúkdóma í sauðfé
er góð og traust merking á
fullorðnu fé og lömbum. Nota ætti
plötur í eyra með bæjamúmeri og
réttum lit samkvæmt litakorti í
markaskrá. Borið hefur við að
þessu sé ekki sinnt skv. reglum.
Skorað er á fjáreigendur að sinna
þessu af alúð og samviskusemi.
Búnaðarfélög, fjárræktarfélög og
sveitarstjómir em hvattar til að
skipuleggja sem fyrst pöntun á
merkjum og aðstoða við ísetningu
þeirra ef þess gerist þörf.
Sigurður Sigurðarson,
dýralœknirá Keldum.
eignafélag em með mismunandi
stóran hluta þessarar eignar í formi
hlutafjár, sem myndar ekki eign-
arskattsstofn innan ákveðinna
marka. Núverandi rekstrarform
skapar þannig ósamræmi við aðra
atvinnurekendur hvað þetta varðar.
Hlutafé og stofnsjóðir eru
eignaskattsfrjálsir, ef engar
skuldir em á skattframtali, þó
þannig að hámarksfrádráttur
vegna þessara eigna er 1.260.108
kr. hjá einstaklingi en 2.520.218
kr. hjá hjónum. Þannig má segja
að sé tekið lán fyrir
hlutafjárkaupum skapar það ekki
eignarskattsfrelsi. Til þess að
hlutafé sé eignarskattsfrjálst verða
skuldir (á skattframtali) að vera
lægri en hlutaféð, sem bóndinn á.
Ef skuldir eru umfram eignir í
hlutabréfum, fæst enginn lækkun
vegna þessara eigna en skuldir
umfram það dragast frá innistæð-
um. Bankainnistæður eru þannig
ekki eignarskattsfrjálsar séu til
skuldir á móti þeim. Sparisskír-
teini ríkissjóðs, ríkisvíxlar,
ríkisbréf og húsbréf eru alltaf
eignarskattsfrjáls og sama er að
segja um ýmsa sjóði.
Skerðing barnabóta
vegna eigna
Ef samanlagður eignarskatts-
stofn hjóna fer yfir 8.557.656 kr.
eða eignarskattsstofn einstæðs
foreldris fer yfir 6.418.774 kr.,
skerðast bamabætur með hverju
bami um 1,5% hjá hjónum og 3%
hjá einstæðu foreldri, af þeirri fjár-
hæð sem umfram er.
Dæmi: Hjón með tvö börn, 5 og 10 ára
Ef eignarskattsstofn hjóna væri 9,5 milljónir kr.
myndu barnabæturnar skeröast þannig:
Eignarskattsstofn................ 9.500.000 kr.
Skerðingarmörk vegna eigna........8.557.656 kr.
Stofn til skeröingar....................942.344 kr.
Skerðing vegna eigna 942.344 kr. x 1,5% =
14.135 kr. (með hvoru bami)
Óskertar barnabætur 104.997 + 124.980 +
30.930 = 260.907 kr.
Barnabæturnar skeröast um kr. 28.270
vegna eigna í þessu dæmi og veröa því
232.637 kr.
Dæmi: Einstætt foreldri meö tvö börn, 5 og
10 ára
Hjá einstæöu foreldri meö sömu eignir
myndu barnabætur skerðast um 6% af
3.081.226 kr. eöa 184.873 kr.
Óskertar bamabætur 174.879 + 179.389 =
354.268 kr.
Barnabætur yrðu þá 169.395 kr.
Skerðing barnabóta
vegna tekna
Hjá hjónum og sambúðarfólki
reiknast skerðing vegna tekna af
samanlögðum tekjustofni umfram
1.169.568 kr. og hjá einstæðu
foreldri af tekjustofni umfram
584.784 kr. Sé um að ræða eitt
bam skerðast bamabætur um 5%
af tekjum umfram þessi mörk, ef
bömin em tvö um 9% og ef bömin
em þrjú eða fleiri um 11%.
Tekjustofh til útreiknings
barnabóta er frábrugðinn tekju-
skattsstofiii að því leyti að fjár-
magnstekjur, aðrar en vaxtatekjur,
eru hér meðtaldar og frádráttur
vegna fjárfestingar í hlutabréfum
lœkkar ekki stofninn.
Dæmi: Hjón meö tvö börn, 5 og 10 ára
Samanlagður tekjustofn hjóna..2.345.000 kr.
Skeröingarmörk vegna tekna...1.169.568 kr.
Stofn til skeröingar.........1.175.432 kr.
Skerðing vegna tekna 1.175.432 x 9% = 105.789 kr.
Óskertar bamabætur
104.997 + 124.980 + 30.930 ..= 260.907 kr.
Skeröing vegna tekna............... 105.789 kr.
Barnabætur verða þá.............155.118 kr.
Bamabætur skiptast jafnt á
milli hjóna og verða kr. 77.559 hjá
hvom. Hjá sambúðarfólki sem á
rétt á samsköttun reiknast bama-
bætur alltaf eins og hjá hjónum,
hvort sem þau skila sameiginlegu
framtali eða ekki.
Dæmi: Einstaklingur með tvö börn, 5 og 10 ára
Tekjustofn einstaklings ...... 1.172.500 kr.
Skeröingamiörk vegna tekna.... 584.784 kr.
Stofn tii skerðingar ..........587.716 kr.
Skerðing vegna tekna .587.716x9% = 52.894 kr.
Óskertar bamabætur
174.879 + 179.389 ...........= 354.268 kr.
Skerðing vegna tekna............... 52.894 kr.
Bamabætur verða þá................ 301.373 kr.
Fyrirframgreiðsla
barnabóta
Bamabætur em greiddar fyrir-
fram 1. febrúar og 1. maí. Við
ákvörðun á fyrirframgreiðslu verð-
ur tekið mið af upplýsingum úr
staðgreiðsluskrá um launatekjur
framfæranda á síðustu 12 mánuð-
um og upplýsingum um eignir
samkvæmt síðasta skattframtali.
Fyrirframgreiðslan nemur 50% af
áætluðum bamabótum ársins og
greiðist með tveimur jöfnum
greiðslum, 1. febrúar og 1. maí.
Við uppgjör í ágúst er fyrirfram-
greiðslan dregin frá bamabótum
eins og þær eru ákvarðaðar í
álagningu. Eftirstöðvar em greidd-
ar út 1. ágúst og 1. nóvember.
Heimild: Skattframtal
einstaklinga 1999.
Leiðbeiningar og dœmi RSK
Timburhús úr norskum kjörviði
Íslensk-skandinavíska ehf. er nú
með í sölu og framleiðslu það
sem fyrirtækið vill kalla „íslensk
RC-timburhús úr norskum
kjörviði.“ Húsin eru hönnuð af
norsku arkitekta,- verkfræði- og
markaðfyrirtæki, Solhytten AS.
Hús þessi eru byggð á norsk-
íslensku timburhús, sem reist
voru hér á landi um síðustu
aldamót. Meðal þeirra eru t.d.
Höfði og ráðherrabústaðurinn
við Tjarnargötu í Reykjavík.
Um 70 slík hús hafa verið byggð
hér á landi á síðustu 10 árum.
Kaupandinn getur valið úr
meira en 15 teikningum af íbúðar-
húsum á einni eða tveimur hæð-
um, ýmsar gluggagerðir og skreyt-
ingar utanhúss. Einnig em gerð til-
boð í hús eftir hugmyndum kaup-
anda. Svipað úrval er af teikning-
um af sumarbústöðum.
Allt efnið í þessi hús kemur frá
Noregi nema steinullareinangmnin
sem er íslensk. Verðið á húsunum
er frá rúmum 1,5 milljónum fyrir
25 fm. hús til tæplega 7 milljóna
fyrir 70,2 fm. hús.
Smáauglýsinga-
síminn er
563 0300 ?/
DRAMINSKI
júgurbólguneminn
Söluaðili:
NAUÐSYN ehf.
Lyngási
510 - Hólmavík
Sími/fax: 451 3543,
854 7716
Hún-
vetningar á
góðri stund
í lok febrúar efndu fimm
hreppar í Austur-Húnavatns-
sýslu til þorrablóts í félags-
heimilinu á Blönduósi. Alls
mættu um 300 manns til móts-
ins. Að venju gerðu menn sér
margt til gamans og má þess
geta að Magnús í Steinnesi (inn-
felld mynd) tók sér fyrir hendur
að leika nafna sinn Olafsson á
Sveinsstöðum. Sjá má svip með
þeim nöfnum en Magnús
Ólafsson (t.v. á efstu mynd) er
að ræða ungan pilt sem við
kunnum ekki að nafngreina.
Karlamir tveir eru þeir Jóhannes
Torfason á Torfastöðum og Jón
B. Bjamason í Ási. Til hliðar má
sjá þau hjónin Valgarð Hilmars-
son og Vilborgu Pétursdóttur,
Fremsta Gili í Langadal.
Handbók bænda komin út í 49. sinn
Handbók bænda kemur nú út í
49. sinn, stærri og efnismeiri en
um árabil. Að þessu sinni er
áhersla lögð á hagfræðilegt efni
ýmiss konar í ritinu, m.a. um
stjóm búvöruframleiðslunnar, og
ítarleg grein er um einkahlutafélög
og önnur rekstrarform. Af nýju
efni má auk þess nefna greinar um
júgurbólgu, mjaltir og notkun
mjaltavéla og hönnun mjaltabása.
Þá er grein um hagræðingu í vinnu
við sauðfjárrækt og
undirstöðugrein er um loðkanínu-
rækt. ítarleg umfjöllun er um op-
inber fyrirmæli um girðingar, þar
með taldar rafgirðingar. Fjallað
er um dreifingártíma áburðar á
tún, ítarleg grein um illgresiseyða
og notkun þeirra, framræslu, kölk-
un jarðvegs, komrækt, kartöflu-
hnúðorma og ítarleg grein er um
heimilisgarðrækt undir plasti. Þá
er fjallað um áburðargjöf á skógar-
plöntur og framlög sem veitt eru til
skógræktar.
I kafla um fóður og fóðmn er
fjallað um bygg, verkun þess og
geymslu og grein er um eftirlit
með fóðri og lögboðnar merkingar
á því. Lífrænn og vistvænn land-
búnaður er í sókn hér á landi og í
ritinu er tjallað um gæðastýringu
og vottun búvara, auk þess sem
birt er ný reglugerð um vistvæna
landbúnaðarframleiðslu.
Margvíslegt efni er í ritinu sem
endurskoðað er og uppfært ár ífá
ári, svo sem bygginga-, ræktunar-
og girðingarkostnaður. Þá er í ritinu
kafli um stofnanir, ráð og nefndir í
landbúnaði og er það að þessu sinni
birtur hsti yfir alla þá sem leyfi hafa
til að örmerkja hross.
Handbók bænda 1999 er 480
blaðsíður og kostar kr. 2.250, að
viðbættu burðargjaldi, kr. 166.
Bókin er til sölu hjá
Bændasamtökum íslands, sími
563 0300, bréfsími 562 3058,
netfang bi@bi.bondi.is
Vefsíða um hesflnn
Arnþrúður Heimisdóttir hefur
gert vefsíðu um íslenska hestinn
og önnur húsdýr. Hún hugsar
síðuna einkum fyrir útlendinga.
Lesendur eru hvattir til að skoða:
http ://www.simnet.is/langhus