Bændablaðið - 04.05.1999, Side 5
Þriðjudagur 4. maí 1999
BÆNDABLAÐIÐ
5
Erlendir nemendur í
meietnrnnnmi vil Hllnsköln
Tveir erlendir nemendur eru nú í
meistaranámi við Hólaskóla, Miguel
Angel Montanez Ruiz frá Spáni og Lisa
Doucette frá Kanada. Þau eru skráð í
Háskóla íslands og munu útskrifast
þaðan. Rannsóknarverkefni sín vinna
þau við Hólaskóla og starfsmenn skól-
ans, þeir Skúli Skúlason og Helgi Thor-
arensen, eru aðalleiðbeinendur þeirra.
Þau sitja námskeið, sem eru hluti af
náminu, við Hólaskóla auk þess að taka
fjarkennslunámskeið við erienda
háskóla. Lisa er nú í tveimur fjar-
kennslunámskeiðum við Háskólann í
Guelph í Kanada og Miguel ráðgerir að
taka námskeið í Hollandi.
Miguel kom til Hóla haustið 1997
vegna nemendaskiptaverkefnis á vegum
Evrópusambandsins. Honum líkaði svo
vel vistin á Hólum að hann ákvað að slá til
og fara í framhaldsnám við skólann. Auk
þess er hann einn af lykilmönnum í knatt-
spymuliði meistaraflokks Neista á
Hofsósi. Verkefni hans fjallar um vöxt
bleikju og áhrif umhverfis og erfða á
lífeðlisfræði bleikju. Lisa fluttist til Hóla
sl. sumar og með henni Frederik
eiginmaður hennar, sem vinnur við
skólann. Hún hefur þegar hafið rannsóknir
sínar á þróunarfræði homsfla.
Fleiri nemendur, sem em í framhalds-
námi við innlenda og erlenda háskóla,
Heim É Hílum.
Laugardaginn 17. apríl var haldin opinn dagur í
Hólaskóla, Hólum í Hjaltadal. Lengi vel leit ekki vel út
með veður, alla vikuna kyngdi niður snjó, en viti menn! Á
laugardeginum skein sólin og Hjaltadalurinn skartaði sínu
fegursta. Munnmæli segja reyndar að alltaf þegar haidnar
eru Hólahátíðir þá sé gott veður og gott af því að vita.
Tilefni opna dagsins var að nú er lokið endurbótum á
skólahúsinu sem hófust 1995. Elsti hluti hússins er frá 1910
og hannaður af Rögnvaldi Ólafssyni, en nýrri hlutinn frá
1927, hannaður af Guðjóni Samúelssyni. Skólahúsið hefur
á undanförnum 4 árum gengist undir gagngerar
endurbætur og verið fært sem næst upprunalegu horfi.
Dagskráin hófst með heljarinnar reiðsýningu í reiðhöll
skólans, sem nemendur hrossabrautar höfðu undirbúið
undir stjórn Guðrúnar Magnúsdóttur. Mikla lukku vakti
tískusýning nemenda þar sem þeir sýndu tískuna í
klæðaburði hestamanna á öldinni. í sýningunni tóku
einnig þátt félagar úr hestamannafélögum í Skagafirði og
öttu þeir m.a. kappi við nemendur framhaldsdeildar
Hólaskóla í skeiði. Sigurvegari í þeirri keppni var Eyþór
Jónasson, nemi við framhaldsdeild hrossabrautar
Hólaskóla. Að þessu loknu tók við helgistund í
íþróttasal skólans, þar sem Sigurður Guðmundsson,
vígslubiskup, flutti ávarp og blessaði endurbæturnar á
skólahúsinu. Þá fluttu Jón Bjarnason, skólastjóri,
Björn Kristleifsson, arkitekt og hönnuður
endurbótanna, Guðmundur Sigþórsson, formaður
búfræðslunefndar, og Hjálmar Jónsson,
alþingismaður, ávörp. Jafnhliða var sett upp
kynning á námsbrautunum þremur,
ferðamálabraut, fiskeldisbraut og hrossabraut, þar
sem fólk gat skoðað í máli og myndum hvernig líf
Hólanema gengur fyrir sig . Sögu skólahússins
voru einnig gerð góð skil með sýningu á myndum
og teikningum sem Björn Kristleifsson, arkitekt, setti upp. Ha/icfó °Sfc Ómarsdótf
[Skörðugiliér^ðJrá Hús*bakka
Him
Þótti dagurinn lukkast mjög vel og þáðu tæplega 200 °rss°n á Gný fré'skA** Re9inu
manns veitingar í boði skólans.
Viðurkenning veitt fyrir störf við endurbæturnar. Frá vinstri: Harpa Hlín Þórðar-
dóttir, formaður Nemendafélags Hólaskóla, Björn Björnsson, smiður, Gísli
Kristjánsson, smiður, Trausti Pálsson, umsjónarmaður húseigna, og Gísli
Pálsson, formaður skólanefndar.
Fjöldi gesta sóttl Hóla heim.
Miguel Angel Montanez Ruiz og Lisa Doucette.
tengjast Hólaskóla og vinna rannsóknar-
verkefni sín á Hólum. Einn þeirra er
Guðni M. Eiríksson sem nú er að ljúka
meistaranámi frá Háskóla íslands.
Verkefhi
um þroskun
Bjami K. Kristjáns-
son er í meistara-
námi við háskólann
í Guelph, en
vinnur rann-
sóknir sínar á hom-
sflum undir leiðsögn
starfsmanna Hóla-
skóla. Að
auki hafa
14 nem-
endur á
öllum
há-
skólastigum unnið rannsóknaverkefni á
Hólum. Framlag þessara framhaldsnem-
enda til rannsóknastarfsemi við stofnun-
ina er mjög mikilvægt og kennsla þessara
nemenda hefur nú áunnið sér fastan sess í
starfsemi Hóla-
skóla.