Bændablaðið - 04.05.1999, Side 6
6
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 4. maí 1999
Gotl ástand á
Staða á markaði nautakjöts er
all góð um þessar mundir og
slátrun með meira móti nú en oft
áður. Heildarsala á nautgripa-
kjöti í mars sl. var um 312 tonn
og er það 7,8% meiri sala en í
mars 1998. Ef litið er á sölu á
nautakjöti á síðustu 12
mánuðum, þ.e. frá 1. apríl 1998
til og með 31. mars 1999, nemur
hún nálægt 3.560 tonnum og er
aukningin 3,4% miðað við sama
tímabil fyrir ári síðan.
Biðlistar eftir slátrun nautgripa
hjá sláturleyfishöfum eru víðast
stuttir þó einhver bið sé eftir slátr-
un norðanlands og austan. A
nokkrum stöðum á Norðurlandi er
farið að gæta heyleysis og af þeim
sökum hafa bændur óskað frekar
eftir slátrun gripa. Á Suðurlandi
hefur verið mikil slátrun undan-
famar vikur og er nánast hægt að
fá gripum slátrað án teljandi bið-
tíma.
Söluhorfur á naustkjöti í sumar
em allgóðar, en vænta má
lítilsháttar aukningar á framboði
ungneyta til slátmnar uppúr miðju
sumri./GÁ.
Aðalfundur Búnaðarsambands
Eyjafjarðar
Brýnt að fill fslensk bú-
vfirutramleiðsla verfii
vottuö sem vistvæn
- Mðl Hutnlngs stafnana og fynrtækja Ot ii land
Aðalfundur Búnaðarsambands
Eyjafjarðar var haldinn 27.
aprfl s.l. Stjórn og starfmenn
fóru yfir verkefni s.l. árs og
reikningar voru Iagðir fram.
Niðurstaða reikninga sýndi 48.
millj. tekjur og var rekstur að-
eins réttu negin við strikið. Guð-
mundur Steindórsson fór yfir
þróun mjólkurframleiðslu síð-
ustu áratuga og með skoðun á
stöðunni í dag og spá fyrir 2005
taldi hann að framleiðendum á
svæði BSE muni fækk úr 165 í
100. Þar með væri meðalbúið
komið í 195.000 ltr, ef óbreytt
framlciðsla væri á svæðinu. Jón
Hlynur Sigurðsson gerði nokkra
grein fyrir afkomutölum úr bú-
reikningum bænda á svæðinu.
Virðist vera um nokkurn bata sé
að ræða í greininni a.m.k hjá
mjólkurframleiðendum.
Veitt voru „Hvatningarverð-
laun Búnaðarsambands Eyjaljarð-
ar.“ I reglum fyrir þeim segir:
Búnaðarsamband Eyjafjarðar
veitir árlega viðurkenningu fyrir
sérstakt framtak í landbúnaði og /
eða úrvinnslu landbúnaðarafurða.
Viðurkenningin getur verið
fyrir vel unnin störf, athyglisverða
nýjung og einstakan árangur.
Viðurkenninguna geta ein-
staklingar, félög fyrirtæki og
stofnanir hlotið.
Að þessu sinni hlaut verðlaun-
in Kristján Gunnarsson mjólkur-
eftirlitsmaður, fyrir mikinn áhuga í
starfi og afar gott starf fyrir bænd-
ur í héraðinu.
Sigurgeir Hreinsson var endur-
kjörinn formaður sambandsins.
Eftirfarandi tillögur voru sam-
þykktar á fundinum.
„Aðalfundur Búnaðarsam-
bands Eyjafjarðar 1999 telur brýnt
að öll íslensk búvöruframleiðsla
verði vottuð sem vistvæn fram-
leiðsla innan skamms tíma..
Fundurinn telur umhverfis-
stefnu BSE góðan grundvöll slíkr-
ar framleiðslu og hvetur til aukinn-
ar vinnu og sýnilegri á þeirri braut.
Helgi Steinsson (t.v.) á Syðri-Bægisá
í Öxnadal tekur við viðurkenningu
fyrir besta nautið fætt ‘92 úr hendi
Guðmundar Steindórssonar.
Orðsending
til bænda, búnaðarsambanda og
dýralækna vegna flutnings á líffé
milli varnarhólfa haustiö 1999
(geymið þessa auglýsingu)
Bændur, sem vilja kaupa líflömb vegna fjárskipta á komandi
hausti þurfa að senda yfirdýralækni skriflega pöntun fyrir 31.
júlí 1999. Þeir koma einir til greina, sem fengið hafa
úttektarvottorð héraðsdýralæknis um að lokið sé
fullnaðarsótthreinsun og frágangi húsa, umhverfis og
annars, sem sótthreinsa átti. Akveðið hefur verið að bæta
við sótthreinsun og maurahreinsun tvisvar. Merkingarskylda
verður á nýjum stofni. Gengið verður eftir því að féð sé
merkt svo sem til er ætlast.
Sami frestur gildir fyrir þá, sem óska þess að fá keypt
hrútlömb til kynbóta á ósýktum svæðum vegna vandkvæða
á að nota sæðingar eða vegna annarra gildra ástæðna. Þeir
skulu fá umsögn héraðsdýralæknis um það efni og senda
pöntun sína með milligöngu viðkomandi búnaðarsambands.
Fé á viðkomandi bæ skal vera merkt með löggiltum
merkjum og skal það staðfest af viðkomandi ráðunauti.
Að gefnu tilefni er áréttað, að flutningur á sauðfé og geitum
milli varnarhólfa (yfir varnarlínur) er stranglega bannaður
án leyfis yfirdýralæknis.
Á svæðum þar sem riðuveiki eða aðrir alvarlegir
smitsjúkdómar gætu leynst er varað við allri fjárverslun
þ.m.t. kaupum og sölu á lífhrútum milli bæja.
Héraðsdýralæknir gefur nánari upplýsingar um
heilbrigðisástand í sínu umdæmi.
Umsóknum verður svarað fyrir ágústlok. Leyfi ræðst af
heilsufari fjár á sölusvæðinu, þegar kemur að flutningi
hverju sinni.
Embætti yfirdýralæknis
Sölvhólsgötu 7,150 Reykjavík
Sími: 5609750-5609075
FRAMTÍÐARFJÓSIN
■ PRADO stálgrindarhús
SPINDER milligerði og stfur
DEBOER básadýnur
SUEVIA brynningartœki
MALGAR flórskóflur og mykjutankar
Vélaval - VarntahlíðHF
Sími: 453 8888 Fax: 453 8828
Gamberini *
Ábunöardneifaran
og tnaktopsknanan
Einnar og tveggja skífa 800 lítra
áburðardeifarar barka- og vökvastýrðir.
Traktnrskranar fvrir 3tpnni
[rum aff fá
jscsk
Gera verður þá kröfu til stjóm-
valda að innfluttar samkeppnisvör-
ur uppfylli ekki minni gæðakröfur
en innlend framleiðsla og að eftir-
lit sé virkt með innflutningi"
„Aðalfundur BSE 1999 telur
brýnt að bændur sýni í verki að
þeim sé umhugað um vöxt og við-
gang landsbyggðarinnar.
I því sambandi skorar fundur-
inn á fulltrúa sína í stjómum og
ráðum að beita sér fyrir flutningi
stofnana og fyrirtækja landbúnað-
arins út á land.
í samræmi við vilja Alþingis
um leiðbeiningamiðstöðvar í land-
búnaði bendir fundurinn á þá leið
að landsráðunautum verði skipað
til starfa á leiðbeiningamiðstöðv-
um en höfuðstöðvar bændasamtak-
anna verði fluttar á Selfoss, höf-
uðstöðvar landbúnaðarrannsókna
til Akureyrar en fyrir er miðstöð
landbúnaðarmenntunar á Hvann-
eyri og Skógræktar á Austurlandi.
Með þessu væri atvinnulíf á lands-
byggðinni eflt og atvinnuvegurinn
styrktur sem skili bændum betri
þjónustu.“
„Aðalfundur BSE 1999 sam-
þykkir að heimila stjóm að taka
upp viðræður við önnur búnaðar-
sambönd, félög og stofnanir, um
samstarf sem leitt geti til mark-
vissari starfshátta og eflt ráðgjöf í
landbúnaði til framtíðar.
Einnig heimilar fundurinn
stjóm að breyta rekstrarformi ein-
stakra þátta starfseminnar ef hag-
kvæmt þykir.“
ÖVERUM
plógur
♦ Brotplógur
♦ Akurplógur
♦ Vendiplógur
♦ Vökvaútsláttur eða
brotboltaöryggi
♦ Hægæða plógur á
góðu verði
Einnia mikið
úrval annarra
jarðvinnslutækja
VÉLAR&
ÞJéNUSTAHF
Járnhálsi 2, Reykjavík,
sími 587-6500, fax 567 4274
Útibú á Akureyri. Óseyri 1a,
sími 461 4040,