Bændablaðið - 04.05.1999, Qupperneq 9
Þriðjudagur 4. maí 1999
BÆNDABLAÐIÐ
9
Hjá jarðadeild landbúnaðarráðuneytisins eru neðangreindar
jarðir lausartil leigu frá komandi fardögum:
1. Básar, Grímseyjarhreppi, Eyjafjarðarsýslu; á jörðinni er
1,4 ha ræktun, geymsla, og hlaða.
2. Borgir, Grímseyjarhreppi, Eyjafjarðarsýslu; á jörðinni er
3,2 ha ræktun, íbúðarhús og geymsla.
3. Sigtún, Syðri-Grenivík, Grímseyjarhreppi,
Eyjafjarðarsýslu; á jörðinni er 8,0 ha ræktun, íbúðarhús og
geymsla.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 560-9750 mánudaga-
föstudaga kl. 13-15. Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu
landbúnaðarráðuneytisins.
Námskeið í ræktun Castor Rex feldkanína
Yngsta búgreinin n íslnndi
Sverrir Heiöar Júlíusson,
ráðunautur í kanínurækt.
Dagana 25. og 26. mars s.l.
var haldið námskeið í ræktun
Castor Rex feldkanína á
Hvanneyri. Námskeiðið var
hið fyrsta um feldkanínur
og voru þeir Sigurjón Blá-
feld og Sverrir Heiðar
Júlíusson leiðbeinendur.
Þátttakendur voru alls 14,
þar af tveir af nemendum
Bændaskólans. Sex þeirra
komu úr Skagafirði en einnig
voru þátttakendur af Suðurlandi,
Vesturlandi og Austurlandi. Fjall-
að var um öll helstu grundvallar-
atriði er varða líffræði feldkanfna,
aðbúnað, fóðrun og hirðingu.
Ræktun feldkanína er yngsta
búgrein-
in á Islandi í dag og eru líklega
u.þ.b. 20 aðilar með feldkanínur.
Lítil reynsla er því komin á þessa
búgrein og hafa eins og gengur
komið upp ýmis vandamál. Ef
hægt er að rækta feldkanínur með
mikilli notkun gróffóðurs, selja
skinnin og nota kjötið til mann-
eldis, lítur þetta vel út við fyrstu
sýn. Mörgum spumingum þarf þó
að svara á næstu misserum, svo
sem eins og að hve stómm hluta sé
hægt að fóðra feldkanínur á
gróffóðri, hvaða búragerð
henti best og hvemig gangi
að ala þær í óeinangmðum
skálum eins og önnur loð-
dýr. Þeir fmmkvöðlar sem
nú þegar hafa hafið þessa
búgrein, gegna lykil-
hlutverki í þessari
„reynslusöfnun". Bænda-
skólinn á Hvanneyri hyggst
leggja sitt af mörkum svo að
búgreinin geti átt framtíð fyrir
sér á íslandi. Fyrsta skrefið í þá
átt, var að bjóða upp á námskeið í
ræktun feldkanína. Fleiri nám-
skeið verða haldin í haust og ættu
áhugasamii að hafa samband við
endurmenntunardeild skólans.
Umsóknir berist jarðadeild landbúnaðarráðuneytisins, Sölv-
hólsgötu 7, 150 Reykjavík eigi síðar en fimmtudaginn 6. maí
1999.
Landbúnaðarráðuneytinu, 27. apríl 1999
Rekstur Kaupfélags Árnesinga
skilaði 21,7 milljóna króna
hagnaði á síðasta ári. Hagnaður
af reglulegri starfsemi var hins
vegar 24,7 milljónir samanborið
við 12 milljóna króna tap á síð-
ast ári. Þetta er í fyrsta skiptið í
mörg ár sem hagnaður er af
reglulegri starfsemi samkvæmt
ársskýrslu stjórnar og fram-
kvæmdastjóra fyrir síðasta ár.
Nokkrar fjárfestingar urðu hjá
KÁ á síðasta ári. M.a. var fjárfest í
tækjum fyrir rúmlega 41 milljón
króna, rúmlega 25 milljónir á
verslunarsviðinu og þrjár milljónir
á ferðaþjónustusviði. Þá samein-
uðust Kjötvinnsla KÁ og Kjöt-
vinnsla Hafnar í mars og í sama
mánuði sameinuðust Selfoss Apó-
tek pg Hveragerðisapótek.
I ársskýrslunni segir að ljóst sé
að miklar breytingar verði á rekstri
Kaupfélagsins á þessu ári. Til að
mynda er nefnt að ákveðið hefur
verið að sameina verslunarrekstur
kaupfélagsins verslunarrekstri
Nóatúns og 10-11 verslananna
undir nafninu Kaupás hf. Mun
kaupfélagið eignast 34% hlut í
nýja félaginu. Er þessi breyting
talin eðlilegt framhald af þeirri
uppbyggingu sem átt hefur sér stað
á verslunarsviði KA. Enn verður
þó öflug starfsemi á sviði búrekstr-
arvöru og ferðaþjónustu. Gert er
ráð fyrir að velta félagsins á þessu
ári verði um 1,2 milljarðar.
G.SKAPTASON S CO. tunguháls 5 • reykjavík • sími 5772770
Mest seldi
jarötætar/
í Noregi!
LELY
pinnatætarar
♦ Aflúttak 540/1000
♦ Fjölhraða gírkassi
♦ Vinnslubreidd frá 300
cm
♦ Aflþörf frá §0 hö.
♦ Sjálfvirkt klippipinna-
öryggi á drifskafti
♦ Pinnatætari í hæsta
gæðaflokki
Einnia mikið
úrval annarra
jarðvinnslutækja
VÉLAR&
PJÓNUSTAhf
Járnhálsi 2, Reykjavík,
sími 587-6500, fax 567 4274
Útibú á Akureyri, Óseyri 1 a,
sími 461 4040,
Fyrsti fundur fagráðs í hagfrœði
Nýlega kom fagráð í hagfræði saman til
fyrsta fundar. Tilgangur með stofnun fagráðsins
er að koma sterkari stoðum undir leiðbeiningar í
búnaðarhagfræði bæði. á vegum -Ðændasam-
takanna og búnaðarsambandanna.
Fyrátá verkefni fagráðs er að móta þá vinnu
sem fer í , hönd á næsta ári við gerð
rekstraráætlana í kjölfar rekstrargreininga þeirra
bænda sem vilja taka þátt í átaksverkefni því
sem samið var um 5. mars 1999. Sá samningur
var gerður samkvæmt búnaðarlögum. Búnaðar-
samböndin koma til með að bjóða upp á leið-
beiningar í hagfræði eftir ákveðnu verklagi og
fá framlög á hvert verkefni eftir að gerður hefur
verið samningur við viðkomandi bónda. Þetta
verður stærsta verkefnið og það mikilvægasta.
Annað mikilvægt verkefni fagráðs er að
leggja línumar í þróun Búbótar, sem nú er í
notkun hjá hátt í 800 bændum. Síðasta búnaðar-
þing ályktaði einmitt um það efní óg var það
lagt fram á fyrsta fundi, samkvæmt ákvörðun
stjórnar B.í.
Á fyrsta fundi fagráðs 26. apríl var meðal
annars ákveðið að fá kynningu á því verkefni
sem unnið hefur verið að hjá Búnaðarsambandi
Suðurlands og hefur hlotið nafnið Sunna
verkefni er um rekstrargreiningu og leið-
beiningar í framhaldi af því.
Á meðfylgjandi mynd má sjá þá sem skipa
fagráðið. F.v. Ketill Á. Hannesson, hagfræði-
ráðunautur Bændasamsamtaka Islands, Jónas
Bjamáson, forstöðumaður Hagþjónustu d-
búnaðarins, Þórarinn Sólmundarson, T
stofnun, Sauðárkróki, Pétur Diðriksson óndi.
Helgavatni, Þverárhlíð, GunnarÞó- -'n,
bóndi, Þóroddsstöðum, Hrútafirði, F,
Hansson, ráðunautur, Búnaðarsamb ir-
lands.