Bændablaðið - 04.05.1999, Side 24
24
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 20. apríl 1999
Nýjar viðræOur um alþjóOleg
viöskipti með búvfirur
í——"-----------------------------
Niðurstöður úr síðustu við-
ræðulotu í alþjóðlegum samning-
um með búvörur, svokölluðum
Uruguay-viðræðum innan GATT,
tóku gildi árið 1995. Ein af nið-
urstöðum þeirra viðræðna var
stofnun Alþjóðaviðskiptastofnun-
arinnar, WTO, sem eftirleiðis
hefur þessar viðræður með
höndum.
Ný viðræðulota er nú að hefj-
ast og hefur margt breyst síðan
síðustu lotu lauk. Þar má nefna
efnahagskreppu í Suðaustur-Asíu,
Rússlandi og Brasilíu. Þá hefur
verðfall á mörgum mikilvægum
búvörum dregið sterkar fram í
dagsljósið þörfina á „öryggisneti“
fyrir afkomu bænda, jafnvel í
Bandaríkjunum, þar sem meiri trú
en víðast hvar annars staðar nkir á
því að markaðurinn ráði við verð-
sveiflur á búvörum.
I Bandaríkjunum hefur stefn-
unni í landbúnaðarmálum verið
breytt síðan Uruguay-viðræðulot-
unni lauk, þar sem bændum var
veitt fullt frelsi til að framleiða
allar búvörur á eigin ábyrgð. Það
frelsi hefur leitt til mikilla
hremminga fyrir þá, þar sem
markaðir drógust saman um sama
leyti og verð á búvörðum lækk-
aði. Nú þurfa Bandaríkjamenn að
ákveða hverju þeir vilja fá fram-
gengt í næstu viðræðulotu.
ESB hefur náð samkomulagi
um breytta landbúnaðarstefnu
sína, jafnframt því sem skref hafa
verið stigin í þá átt að lönd í
Austur-Evrópu fái aðild að sam-
bandinu.
Þá hefur kúariðan, umræða
um erfðabreyttar nytjajurtir og
bakteríur, sem lyf vinna ekki á,
aukið áhuga neytenda á fram-
leiðsluaðferðum í landbúnaði.
Allar þessar breytingar og
spumingar, sem ekki hefur verið
svarað, auka á óvissu í kringum
þá samningalotu sem fyrir dyrum
stendur innan WTO.
Erfiðar spurningar
Eins og er er óljóst um hvað
verður fjallað í næstu samningum.
Meðal mikilvægra atriða verða þó
innri stuðningsaðgerðir landa við
landbúnað sinn, hvenær dregið
skuli úr þeim og hvenær þær
skulu vera heimilaðar, enn frekari
samdráttur á útflutningsbótum,
enn opnari viðskipti milli landa
og nýjar reglur um hvenær beita
megi viðskiptahindrunum vegna
sjúkdómahættu.
Meðal mála sem rædd verða,
m.a. að tillögu ESB, er fjölþætt
hlutverk landbúnaðar, þ.e. auk
; \
matvælaframleiðslu, hlutverk
hans að varðveita byggð í dreif-
býli, sem atvinnuskapandi þáttur
og sem þáttur í umhverfisvernd.
Þetta er í fyrsta sinn sem síð-
astnefndu þættimir komast á dag-
skrá í alþjóðlegum viðskipta-
samningum um landbúnað og
margir álíta að það muni einkum
leiða til aukinna stuðningsað-
gerða við landbúnað.
Allar horfur eru á að það ferli
sem hófst með Uruguay-lotunni
haldi áfram í næstu lotu, þ.e. að
frelsi í viðskiptum aukist.
Bandaríkin hafa lýst því yfir að
ljúka eigi samningum að þessu
sinni á þremur árum miðað við
nk. áramót. Litlar líkur eru taldar
á að það takist. Breytilegar
aðstæður, ný og flókin vandamál
og deildar meiningar eiga að
öllum líkindum eftir að tefja þar
fyrir.
(Internationella Perspektiv nr. 12/"99).
Stytt og snarað ME.
V
J
Framleiösla
og sala
bóvara í mars
Óhætt er að segja að
síðustu mánuðir séu tími
nokkurra sviptinga þegar litið
er á tölur um framleiðslu og
sölu búvara.
Mjólkurframleiðsla er
umtalsvert meiri en
innanlandsmarkaður tekur
við og er nánar fjallað um það
mál annarsstaðar í blaðinu.
Sviptingar á kjötmarkaði
halda áfram og jafnframt
stækkar heildarmarkaðurinn.
Síðustu tólf mánuði hafa selst
ríflega 17.800 tonn af kjöti.
Við skoðun á tölum um sölu í
mars verður þó að hafa í huga
að sala fyrir páskahelgina er
væntanlega í meira mæli inni í
marstölum nú en í fyrra, en þá
bar pálmasunnudag upp á 1.
apríl. Ekkert lát virðist á sókn
alifuglakjöts. Sala þess óx um
42,4% samanborið við sama
mánuð í fyrra og á tólf
mánaða tímabili nemur
söluaukning 32%. Athygli
vekur einnig mikil aukning í
framleiðslu og sölu
kalkúnakjöts, salan hefur
aukist um 162% síðustu tólf
mánuði. Svínakjötsframleiðsla
hefur farið vaxandi síðustu
mánuði og sala að sama skapi,
jókst um tæp 17% í
mánuðinum og um 11% á
síðustu þremur mánuðum.
Framleiðsla og sala
nautgripakjöts er nokkuð
jöfn, þó hefur sala verið
fremur góð það sem af er
árinu, aukist um 5,5% saman
borið við sama tíma í fyrra. Á
sama tíma hefur kindakjöt
heldur látið undan síga, eftir
góða sölu á síðasta ári, sala
síðustu þrjá mánuði hefur
dregist saman um ríflega 5%
og markaðshlutdeild þess er
nú um 39%, einu
prósentustigi minni en á sama
tíma í fyrra. Þá hefur
hrossakjötssala dregist saman
á undanförnum misserum.
Verð á mjðlk til bænda
víðsvegar um heiminn,
US$/100 kg
1997
Danmörk 35,67
Holland 33,76
Bretland 29,68
Svíþjóö 38,04
ESB meöaltal 35,10
Pólland 19,80
USA 26,43
Ástralía 21,16
Nýja Sjáland 18,70
Japan 66,52
Island 77,32
ísland umreiknað á meðalkaup-
gengi US$ 1997 (70,78 ISK/US$),
beingreiðslur, 47,1% innifaldar,
staðalmjólk, 3,98% fita til 1/1 til
1/9 en 3,94% síðan út árið. ESB
lönd 3,7% fituinnihald í mjólk
Heimild: Bulletin of the Intemational Dairy
Federation N°333/1998
Markadsmál
Erna Bjarnadóttir
Yfirlit um framleiðslu og sölu ýmissa búvara
Bráðabirgðatölur fyrir mars 1999
Framleiðsla Mars Apríl '98 Apríl '98 Breyting frá fyrra tímabili, % Hlutdeild %
1999 mar.99 mar.99 mars '98 3 mán. 12 mán. m.v. 12 mán.
Kindakjöt * 37.922 40.528 8.195.284 109,4 90,7 3,8 42,5
Nautakjöt 303.183 885.172 3.484.350 10,7 4,8 0,8 18,1
Svínakjöt 433.165 1.003.346 3.983.991 12,8 10,8 0,6 20,7
Hrossakjöt 58.652 208.944 841.806 85,0 30,9 4,0 4,4
Alifuglakjöt 204.286 621.042 2.759.982 -3,6 4,1 27,0 14,3
Samtals kjöt 1.037.208 2.759.032 19.265.413 12,5 9,1 5,3 100,0
Innvegin mjólk 9.742.741 28.224.340 109.203.945 16,06 14,10 7,05
Egg 204.326 567.259 2.356.488 12,9 8,9 4,1
Sala innanlands
Kindakjöt 545.254 1.519.361 6.942.854 -5,7 -5,2 2,7 38,9
Nautakjöt 312.317 884.775 3.559.220 7,8 5,5 3,4 20,0
Svínakjöt 421.778 983.765 3.984.337 16,7 11,0 1,2 22,3
Hrossakjöt 37.780 132.882 518.094 -4,0 -6,0 -3,4 2,9
Alifuglakjöt 266.979 751.816 2.823.649 42,4 37,2 31,8 15,8
Samtals kjöt 1.584.108 4.272.599 17.828.154 8,7 6,3 6,0 100
Umreiknuð mjólk
Umr. m.v. fitu 9.507.314 24.365.785 100.070.152 10,87 1,74 0,68
Umr. m.v. prótein 9.542.994 25.815.517 103.317.450 7,13 1,45 0,02
Egg 142.842 688.844 1.958.573 4,8 31,5 -6,3
* Kindakjöt lagt inn samkv. útflutningsskyldu sem flutt skal á erlenda markaði er meðtalið í framangreindri framleiðslu.
** Sala mjólkur og mjólkuafurða umreiknuð á fitugrunni með leiðréttum stuðlum Samtaka afurðast.í mjólkuriðnaði frá því í september 1998.