Bændablaðið - 31.08.1999, Blaðsíða 12
12
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 31. ágúst 1999
Humygla hefur skotiO
upp knllinum að nýju
Magnús Ágústsson, ráðunautur
hjá Bændasamtökum íslands.
Árið 1990 fannst kartöflumygla
víða á láglendi Suðvestanlands.
Árið 1991 var mygla mun víðar,
en margir voru viðbúnir og
gripu til réttra aðgerða í tíma. I
ár hefur síðan kartöflumyglan
skotið upp kollinum að nýju.
Skaðvaldur og einkenni.
Sveppurinn Phytophthora in-
festans veldur kartöflumyglu.
Fyrstu einkenni eru dökkbrúnir
blettir, oftast í blaðröndinni og í
röku veðri má sjá hvítleita myglu
neðan á blaðinu á svæði næst heil-
brigða vefnum. Kartöflugrasið get-
ur visnað alveg ef skilyrði eru hag-
stæð. Ef gró sveppsins ná að berast
að kartöflunni við upptöku eða
skolast niður í jarðveginn í rign-
ingu, smita gróin kartöfluna. Oft er
smitið í kringum augun, en það
byrjar sem dökkur, stundum fjólu-
biár blettur sem vex síðan út. Þeg-
ar sýkt kartafla er skorin í sundur,
sést brúnleitt svæði næst hýðinu.
Kartaflan verður síðan heltekin
sjúkdómnum og þomar inn. Oft
kemur þó votrotnun í sýktar
Hjarðstíur
Vélaval -
Varmahlíð HF
Sími: 453 8888 Fax: 453 8828
kartöflur með tilheyrandi lykt.
Ufsferill.
Sjúkdómurinn lifir ekki af vet-
urinn í garðinum nema þá í sýktum
kartöflum, sem lifa af frost vetrar-
ins. Upp af þeim kartöflum getur
því vaxið smitað gras. Einnig berst
sjúkdómurinn með sýktu útsæði
og frá ruslahaugum.
Á grösum smitaðra kartaflna
myndast síðan ný
gró og þau geta
borist langar
leiðir með vindi.
Það smit sýkir
síðan ósmituð
grös og við
hagstæð veður-
skilyrði liggur
allur garðurinn
og næstu garðar
undir
skemmdum.
Faraldur
getur orðið ef
daghiti er hár
(17-24°C),
næturhiti er yfir
10°C og rakastig
yfir 75% um
miðjan daginn.
Rakar mildar
nætur eru kjör-
skilyrði gró-
myndunar, en til að gróin spíri þarf
blaðið að vera rakt í nokkrar
stundir. Áfall eða smá úrkoma er
nóg, en úrkoma upp á nokkra mm
skapar kjöraðstæður.
Varnir.
Algengt er að mæla með úðun
efnisins Dithane þegar grösin eru
orðin 30 cm há, eða áður en grösin
loka röðunum. Síðan er úðað með
efninu Epok, 10-14 dögum eftir
fyrstu úðun.
Dithane ver ekki nývöxt blaða,
en Epok sem inniheldur virku efn-
in Metalaxyl M og Fluazinam hef-
ur tvíhliða verkun, annars vegar er
Metalaxyl M tekið upp af plönt-
unni en Fluazinam hinsvegar drep-
ur gróin þegar þau spíra og hindrar
myndun nýrra gróa.
Þegar mikil smithætta er, má
úða með Epok aftur 10-14 dögum
eftir fyrri úðun, en ekki skal nota
efnið oftar vegna hættu á myndun
viðnáms hjá sveppnum. Ekki er
ráðlagt að úða með Epok ef myglu
hefur orðið vart í garðinum af
þeim sökum. Nauðsynlegt er að
blöðin fái að þoma fyrir regn eða
vökvun, eftir úðun með lyfjunum.
I hlýju vætusömu sumri þarf að
úða oftar með Dithane. Auka má
regnfestu með viðloðunarefnum.
Hættufrestur til uppskeru hjá báð-
um efnum er
hálfur mánuður.
Grasið er síðan
drepið með t.d.
Reglone, fjórtán
dögum fyrir
upptöku til að
hindra að smit
berist á kart-
öflumar.
Réttast er að
drepa grösin þar
sem myglan
hefur myndað
hreiður strax, til
að koma í veg
fyrir frekari út-
breiðslu.
Vpptaka.
Aðeins ætti
að taka upp í
þurru og hlýju
veðri ef unnt er.
Blautur jarðvegur og regn getur
dreift eftirlifandi gróum á
kartöflumar. Gott er að tína upp
þær kartöflur sem standa upp úr
jarðvegi áður en tekið er upp, því
miklar líkur eru á smiti í þeim auk
þess sem þær eru grænar.
Strax eftir upptöku ætti að
þurrka kartöflumar í geymslunni.
Gæta þarf sérstaklega að kartöflum
í geymslunni sem vitað er að era
smitaðar.
Sjá líka frétt á vefsíðu á
vefsíðu RALA www.rala.is
Vökvun gúrkna
að hausti
Garðar Arnason, ráðunautur hjá
Bændasamtökum íslands.
Mjög mikilvægt er að viðhalda
góðum rótarþroska allan ræktunar-
tímann, einnig að hausti. Gæta
þarf þess að rótarbeðurinn haldist
ekki lengi of blautur. Hafa ber í
huga að vatnsþörf plantnanna er
mjög lítil í dimmviðri að hausti.
(Gæta þarf sérstaklega að þunnum
rótarbeði).
Þegar líður að hausti dregur
ört úr inngeisluninni. Þar með
dregur ekki bara úr ljóstillífun
plantnanna heldur einnig úr út-
gufun þeirra. Auk inngeislunar
hafa aðrir umhverfisþættir áhrif á
útgufunina, svo sem loftrakinn ut-
andyra. Taka verður mið af þess-
um þáttum við vökvunina.
Um leið og dregur úr útgufun-
inni dregur úr virkni rótanna. Þar
með dregur úr rótarvexti sem get-
ur síðar bitnað á grænvexti og ald-
invexti. Sé rótarkerfi plantnanna
of lítið geta rætumar illa fullnægt
vatns- og næringarefnaþörf ald-
inanna. Auk þessa getur ófull-
nægjandi rótarvöxtur valdið rótar-
dauða og Pythium. Til að halda
rótunum sem heilbrigðustum fram
eftir hausti er mikilvægt að draga
smám saman úr vökvuninni eftir
því sem líður á haustið, til að beð-
urinn haldist ekki of blautur. Gott
er að beðurinn nái að „þoma“ dá-
lítið á milli vökvana.
Þegar líður á haustið ætti því
að miða við að byrja vökvunina
seinna að morgni og hætta henni
fyrr síðdegis, en mjög mikilvægt
er að plöntumar líði þó ekki vatns-
skort þegar sólin er komin vel upp
og útgufunin komin á fullt. Mikil
vökvun á tímum sem plantan þarf
ekki á mikilli vökvun að halda
hefur neikvæð áhrif á rótarkerfið
og aldinlitinn. Að hausti ætti að
miða við að vökva með meira
magni í einu (t.d. 150 ml í stað
100 ml) en með lengra millibili á
milli vökvana, sem m.a. myndi
stuðla að betri útskolun og þurrari
beði. Tíðar vökvanir með litlu
vatnsmagni í einu myndi stuðla að
blautari mottum og
rótarvandræðum í kjölfarið.
Yfirleitt ætti ekki vera þörf fyrir
að vera með 1. vökvun fyrr en 2-3
klst. eftir sólarupprás í rótar-
beðsefnum sem halda vatni vel í
sér, en í „þurrari“ rótarbeðsefnum
mætti hefja vökvunina um 1 klst.
fyrr. Eftir klukkan 15 ætti einnig
að draga úr vökvuninni, þó háð
inngeislun. Síðla hausts mætti
leiðnitalan í beðnum fara hækk-
andi, t.d. upp í 4-5 mS/cm við
ræktun í steinull. Á dimmviðris-
dögum ætti varla að vökva með
lægri styrkleika en 3 mS.
Ef rótarkerfi plantnanna er
stórt og öflugt að hausti og jafn-
framt vökvað of mikið síðdegis
eða að kvöldi, veldur það háum
vatnsþrýstingi í plöntunum. Þar
með eykst hættan á að vatnsdropar
þrýstist út um sár og blóm, sem
aftur eykur hættuna á grásveppi og
gúrkusýki.
Þegar dregið er úr vökvuninni
að hausti má ekki gera það of
snöggt, því rætumar verða að ná
að fylgja breytingunum eftir, t.d.
mætti miða við að minnka vökv-
unina um 1% á sólarhring.
Smáauglýsingar
Sími
Polarís Big Boss 6x6
fjölnota vinnutæki tyrír bændur og verktaka
500 cc - fjórgengisvél
Oll stjórntæki í stýri sem skiptir
afar miklu máli fyrir ökumanninn
Buröargeta 400 kg
Tát^^ágTdríf^jálfskípt,
rafstart, bakkgír og sturtur
Drif á öllum hjólum
Skemmir ekki viökvæman gróður
Tilvalió í giröingarvinnu
og snúninga
HJÓLADEKK
Á LAGER
Stæröir:
22x11 - 10
24x11 - 10
25x11 - 10
25x8 - 12
L
Lipurt vmnutæki á
hagstæöu verði
Aöalumboö: Polaris ehf, Akureyri, sími 462 2840, fax 462 5350
Umboð á Austurlandi: Bíla- og vélaverkstæöi Sigursteins, Selnesi 28,
Breiódalsvík, sími 475 6616, fax