Bændablaðið - 31.08.1999, Page 13
Þriðjudagur 31. ágúst 1999
BÆNDABLAÐIÐ
13
Bœndablaðsmynd: Bjami Guðmundsson.
Elsta jarðýta landsmanna, sú sem hóf störf 1943, enn gangfær og notuð af eigendum sínum, Torfa og Guðmundi
í Hvammi í Hvítársíðu.
Yfeir l i Hjóðar
- vel heppnuð sýning á Hvanneyri
Sýningin Ýtur í lífi þjóðar var
haldin á Hvanneyri dagana 14.-15.
ágúst sl. Að sýningunni stóðu Bú-
vélasafnið á Hvanneyri, verktaka-
fyrirtækið Jörvi hf, Vegminja-
safnið, Vegagerð ríkisins í Borgar-
nesi og Heildverslunin Hekla hf.
Sýndar voru margar beltavélar og
jarðýtur auk ýmissa fylgiverkfæra
þeirra. Með sýningunni var rifjað-
ur upp þáttur þessara tækja í rækt-
unar- og samgöngusögu lands-
manna. Elsta vélin var frá byrjun
4. áratugarins en sú yngsta kom til
landsins fyrir fáeinum vikum; þeg-
ar rétt 80 ár voru liðin frá því
fyrstu beltavélamar komu til
landsins. Meðal gripa sem sérstaka
athygli vöktu voru mokstursvélar
tvær, Caterpillar og Priestman, frá
því um 1945 sem gerðar hafa verið
fullkomlega upp. Brugðið var á
leik með vélunum og þær sýndar
að störfum.
Innanhúss var sögusýning þar
sem brugðið var upp nær hundrað
gömlum þjóðlífsmyndum þar sem
beltavélar og jarðýtur komu við
sögu. Fæstar myndanna höfðu
birst áður opinberlega og þóttu
þær því forvitnilegar. Sögusýning-
in mun standa fram á haustið en
hún er í sölum Sumarhótelsins á
Hvanneyri (mötuneyti skólans), en
hún mun síðan varðveitt í Búvéla-
safninu á Hvanneyri.
I tengslum við sýninguna var
haldin Ytumannavaka á Hvann-
eyri. Þar komu eldri og yngri ýtu-
menn saman og rifjuðu upp kátleg
atvik og svaðilfarasögur frá fyrstu
árum þessara merkilegu véla.
Þama komu m.a. nokkrir af fyrstu
jarðýtuköppunum, sem byrjuðu á
árunum 1946-50. Um 700 manns
sóttu sýninguna sem þótti takast
mjög vel.
Notaðir gámar á góðu verði
Gámur er góð geymsla sem getur fallið vel að umhverfinu
Margar gerðir af notuðum gámum til sölu eða leigu. Venjulegir stálgámar, frystigámar,
hálfgámar, ejnangraðir gámar, opnir o.fl.
Gámur getur verið ódýr og hentug lausn á ýmsum geymsluvandamálum, t.d. fyrir byggingas-
tarfsemi, fiskverkendur, flutningabflstjóra, bændur og hvers konar aðra atvinnustarfssemi. Einnig
fyrir tómstundastarf, t.d. við sumarbústaði, golfvelli eða sem skjól fyrir hross.
Gámar þurfa ekki að stinga í stúf við umhverfið. Það er hægt að fella þá inn í landslag,
mála og skreyta á ýmsan hátt.
Leigjum einnig út vinnuskúra og innréttaða gáma til lengri eða skemmri tíma.
!!§#: ft
HAFNARBAKKI
V/Suðurhöfnina, Hafnarfirði sími 565 2733, fax 565 2735
Kartöflubændur - framleiðendur
Til sölu Grimme upptökuvél, Martinus Petersen
kartöfluflokkari, 20 feta frystigámur, 10 og 12 tonna
fóðursíló og tveir fóðursniglar úr þeim ódýrt. Einnig
tæki fyrir alifuglabú. Uppl. í síma 486-5653 og 897-
1731.
Heyskerar
AGRIMEC
Traustir
rúllugreipar
Öflugar vökva heygreipar
búvélar hf
Þegar gæðin skipta máli
Austurvegi 69 • Selfossi • Sími: 482 4102 • Fax: 482 4108
m
Rubupokktrnarvelar
II
GKAMMtR
Orátíarvéiasæti
Vermeer
Ruilubmdivelar
Aburóardre'ífarar
Sterkbyggðir sturtuvagnar í öllum stærðum.
Hausttilboð á örfáum Eurodisk slátturvélum
ay Fyrsta flokks mykjudælur, mykjutankar,
haugsugur og mykjuskrúfur.
NORVIC
■--r.i
Mykjutankar
og dælur
Heyvinnuvélar