Bændablaðið - 31.08.1999, Page 22
22
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 31. ágúst 1999
Dagana 19. ng 20. ágúst sl. var
haldið á Hvanneyri endur-
menntunarnámskcið fyrir dýra-
lækna og var það í samvinnu
Dýralæknafélags íslands,
Pharmaco hf og Landbúnaðar-
háskólans á Hvanneyri. Yfir-
skrift námskeiðsins var
„WORKSHOP IN DAIRY
HERD HEALTH“ og fór öll um-
fjöllun fram á enskri tungu. Um-
sjónarmaður námskeiðsins var
Auður Lilja Arnþórsdóttir,
dýralæknir júgursjúkdóma hjá
Yfirdýralæknisembættinu.
Fenginn var danskur dýralækn-
ir, Jens S. Philipsen, til að flytja
erindi og stýra námskeiðinu.
Einnig fiutti erindi Grétar
Hrafn Harðarson, héraðsdýra-
læknir á Hellu.
Tilgangur námskeiðsins var að
kynna fyrir íslenskum dýralæknum
svonefnda „fjölþátta hjarðgrein-
ingu“ (multifactorial herd ana-
lysis), sem felur í sér reglulega
skoðun og greiningu á ýmsum
þáttum sem tengjast heilbrigði og
framleiðslugetu kúa. Markmiðið
með þessari vinnuaðferð er að
fyrirbyggja sjúkdóma, frjósemis-
vandamál o.fl. og efla þannig arð-
semi búsins. Slík vinnubrögð eru
viðhöfð víða í heiminum en Jens
Philipsen er meðlimur í hópi dýra-
lækna í Danmörku sem aðlagað
hafa þessa aðferð dönskum að-
stæðum. Á námskeiðinu var m.a.
farið yfir niðurstöður greininga á
gögnum frá þremur íslenskum
kúabúum, sem fengin voru frá
skýrsluhaldi Bændasamtaka ís-
lands. Meðal annarra efnisþátta
var umfjöllun Grétars Hrafns
Harðarsonar um fóðrun og efna-
skiptasjúkdóma.
Alls sóttu námskeiðið 19 dýra-
læknar og voru þeir ánægðir með
námskeiðið og lýstu yfir áhuga á
að kynna sér betur það efni sem
fjallað var um.
ATVINNA - starfsmaður L.s.
Landssamtök sláturleyfishafa vilja ráða starfsmann.
L.s. eru hagsmunasamtök afurðastöðva í kjöti.
Helstu verkefni:
Hagsmunagæsla fyrir sláturleyfishafa, upplýsingaöflun og miðlun
upplýsinga. Halda utanum bókhald og vinnsla sérverkefna.
Þekking og reynsla á starfsumhverfi sláturleyfishafa æskileg.
Upplýsingar gefur: Ingi Már Aðalsteinsson í síma 4701201,
8966462 - tölvupóstfang: ingi@khb.is
I---------------------------
IEinka Fenaur
Forrit fyrir hrossaræktendur
IDanMink/Fox
fyrir loðdýrabændur
I Fjárvfs
* Afurða- og ættbókarforrit fyrir
| sauðfjárbændur
I
SýklalyQaónæmi
vaxandi vandamál
Á aðalfundi Dýralæknafélags
íslands, sem haldinn var á
dögunum, var rætt vaxandi vanda-
mál sem skapast hefur vegna
sýklalyfjaónæmis. Evrópusamtök
dýralækna hafa m.a. séð ástæðu til
að gefa út sérstakan bækling um
sýklalyfjaónæmi og skynsamlega
notkun sýklalyfja í dýralækn-
ingum og var efni bæklingsins
kynnt á aðalfundi Dýralækna-
félagsins.
I frétt frá Dýralæknafélagi
íslands segir að óhófleg notkun
sýklalyfja, jafnt til lækninga á
sjúkdómum í mönnum og dýrum
sem og sem íblöndunarefni í fóður
sé talið stuðla að vaxandi ónæmi
sýkla. Þessir sýklar geta síðan
borist milli tegunda, með mat-
vælum og frá umhverfinu. Þá
getur ónæmi borist á milli sýkla
með erfðaefni þeirra og geta þá
fjölónæmir sýklastofnar komið
upp og valdið miklum vandræðum
við meðhöndlun sýkinga í jafnt
mönnum sem dýrum.
í dýralækningum hefur hér á
landi einkum borið á ónæmi hjá
vissri tegund sýkla sem valda
júgurbólgu í kúm enda sýkla-
lyfjanotkun talsverð við með-
höndlun á júgurbólgu. Til þess að
stuðla réttri og hóflegri notkun
hefur dýralæknafélagið mótað
ákveðna stefnu um notkun sýkla-
lyfja við júgurbólgu.
Notkun sýkla lyfja í skepnu-
fóður til að fyrirbyggja sjúkdóma
eða sem vaxtarhvetjandi efni hefur
hins vegar ætíð verið bönnuð hér á
landi. Aðrar þjóðir eru flestar
hveijar að taka upp sömu stefnu.
I frétt dýralæknafélagsins er
þess að lokum getið að vísinda-
menn á Keldum eru aðilar að
tveimur alþjóðlegum rannsóknar-
áætlunum um ónæmi sýkla úr búfé
og búfjárafurðum. Er ekki annað
að sjá en að yfirvöld dýrasjúk-
dómamála og rannsóknastofnanir
á þessu sviði taki þessi mál föstum
tökum.
7ro7o«----------------------------------------------------------1
skýrsluhalds- og afurðaforrit fyrir GSQ fl IBQ fOírÍt fyfí f
svínabændur J ° J
Búbót
Sérhannað bókhaldsforrit fyrir framSækna bænÖUr |
bændur ■
i
i
ry
ym
VELAVERf
Lágmúli 7 - Pósthólf 8535 -128 Reykjavík Sími 588 26 00 - Fax 588 26 01
Alfa Laval TP 360 VS skádælur
til nota í grunna sem djúpa kjallara
Tengd á þrítengibeisli og vökvastrokk ofan á burðarramma
Afköst 13.000 ltr/mín í upphræringu og 7.000 lrt/mín við
dælingu í tank, auðvelt að beina hrærustútnum upp og niður og
til beggja hliða
Byggð á áratuga reynslu Alfa Laval við smíði á haughrærun
Alfa Laval skádælan hefur verið prófuð af Bútæknideildinni
á Hvanneyri
Alfa Laval TP 250 brunndælur
Fyrir mismunandi dýpt á haughúsum frá 1.60 - 4.0 mtr.
Nýjung hjá okkur:
Abbey haugsugur.
Abbey haugsugur og mykjudreifarar eru fáanleg í eftirtöldum
stærðum: 5000 ltr - 5900 ltr - 7000 ltr - 9100 ltr
Staðalbúnaður: Afkastamikil vacumdæla
Vökvabremsur og vökvastýring á dreifistút
Vökvaopnum á topplúgu, sjónglas á tank og ljósabúnaður
Flotmiklir hjólbarðar 6” barki, 5 mtr langur með harðtengi
Vökvaopnum átóþplúgu