Bændablaðið - 01.02.2000, Qupperneq 14
14
BÆNDABLAÐIÐ
Þríðjudagur 1. febrúar 2000
Svi/jm0iP frá Agromek
Plógskerar frá Kverneland sem rista allt að 10 cm. niður fyrir hefðbundið
plógfar.
Taarup 4032 BX diskasláttuvél frá Kverneland. Á vélinni eru skífur eða
plötur sem stilla má á mismunandi vegu eftir þvi hvernig leggja á
sláttumúginn.
Hálmdreifari frá Lin-ka
Frá Jyden Bur var ný gerð framhliða fyrir kýr / geldneyti í lausagöngu
(Saloon door principle). Grindunum er hægt að loka en í venjulegri
stillingu þá snúast baulurnar þegar kýrnar stinga hausnum inn í
fóðurgang (tengdar gormi).__________________________________
Agromek 2000
landbúnaðarsýningin í Herning í
Danmörku var haldin dagana
18. - 22. janúar s.l. Frá íslandi
fór rúmlega 60 manna hópur á
sýninguna auk þess sem
heimsótt voru noldcur kúabú og
verksmiðjur. Nokkrar nýjungar
voru kynntar á sýningunni og
meðal annars kom
mjaltaþjónninn frá Alfa Laval
Agri fyrir almennings sjónir í
fyrsta skipti á sýningunni.
Mjaltaþjóninn nefna þeir
Alfa Laval menn VMS -
Voluntary Milldng System -
sem þýða má sem sjálfviljugar
mjaltir. Ohætt er að segja að
mjaltaþjónninn hafi vakið mikla
athygli enda virðist þar vera
kominn verðugur keppinautur
þeirra mjaltaþjóna sem fyrir em
á markaði.
Westfalia kynnti einnig sinn
mjaltaþjón - Leonardo - sem er
frábrugðinn öðrum
mjaltaþjónum að því leyti að
hann er með sérstakt
undirbúningshólf þar sem
kýrnar eru þvegnar og júgur og
spenar þerraðir fyrir mjaltir.
Önnur fyrirtæki voru einnig með
sína mjaltaþjóna, s.s. Strangko
með AMS Liberty, Fullwood
með Merlin og loks'Lely með
Astronaut. Þeir hjá Lely stóðu
glæsilega að sinni sýningu og
voru með mjaltaþjóninn í gangi
í 60 kúa fullbúnu fjósi á
staðnum.
Fyrir jarðræktarmenn má
nefna nýjung frá Kverneland,
skera sem rista allt að 10 cm.
dýpra en plógurinn sjálfur.
Þannig er hægt að losa um
jarðveg mun dýpra en áður en
slíkt er mjög til bóta í t.d.
lífrænum landbúnaði þar sem
menn treysta mjög á plægingu
sem vöm gegn illgresi. Þá losar
þetta jarðveg þar sem
jarðvegsþjöppun fer sífellt dýpra
og dýpra vegna aukinnar
umferðar stórra og þungra
tækja. Þessa skera er einnig
hægt að setja á eldri plóga.
Taamp 4032 BX er ný
dragtengd diskasláttuvél frá
Kverneland samsteypunni sem
lagt getur sláttumúginn á þrjá
mismunandi vegu; einn múga,
tvo múga eða dreift honum
jafnbreitt vélinni. Þetta getur
haft sína kosti og þá með
hliðsjón af hvemig veður er við
slátt og hvemig meðhöndla á og
verka heyið.
Skjold datamix sýndi
„vélmenni" eða þrifaþjón
hannaðan af Ramsta Robotics í
Svíþjóð til þrifa á svínastíum
með háþrýstibúnaði.
Háþrýstibúnaðurinn er festur á
arm og með stýripinna er
þrifaþjóninum stýrt gegnum
stíurnar í fyrsta skipti. Við
næstu þrif þá „man“ þjónninn
hvemig þrífa átti og getur stýrt
sér sjálfur.
Lin-ka í Danmörku kynnti
hálmdreifara sem getur tekið
allar gerðir bagga, bæði
ferbagga sem og rúllur.
Dreifarinn er staðsettur fyrir
ofan kýmar og dreifir hálminum
jafnt yfir hálmdýnuna.
Dreifibreiddin getur numið allt
að 15 metmm. Athyglisverð
nýjung fyrir þá bændur sem eru
með kýrnar á hálmdýnu en
okkur vitanlega eru þeir teljandi
á einum fingri annarar handar
hérlendis./GJ
Þrifaþjónn frá Skjold datamix (Ramsta robotics). Þjónninn þrífur
innréttingar með háþrýstibúnaði á armi.
JF sýndi 15-19 m3 heilfóðurvagna sem geta losað til beggja hliða.
Mjaltaþjónninn (VMS) frá Alfa Laval Agri. Armurinn sem setur á kýrnar er
mjög sveigjanlegur og getur t.d. hallað spenagúmmíum. Þá getur
mannshöndin gripið inn í ef armurinn bilar.
Þvottabúnaður Leonardo-mjaltaþjónsins frá Westfalia.