Bændablaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 1

Bændablaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 16. janúar 2001 ISSN 1025-5621 1. tölublað 7. árgangur lilVtt íypip- komulag á stypkveitingum til ueyslu- vatnsveitna í sveitum í lok nóvember sl. var samþykkt á Alþingi breyting á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, þar sem heimilt verður framvegis að greiða framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna á einstökum lögbýlum þar sem sveitarfélagið telur sig ekki geta kostað vatnsveituna og jarð- eigandi sjálfur leggur veituna á sinn kostnað. Samkvæmt lagabreytingunni verður framkvæmdin svipuð því sem var meðan framlög fengust skv. Jarðræktarlögum. Fram- kvæmdin verður m.ö.o. í höndum Bændasamtaka Islands, þannig að héraðsráðunautar taka vatnsveitur út og senda kostnaðarreikninga eða ljósrit af þeim til BI sem reiknar út framlag og sækir um greiðslur til Jöfnunarsjóðsins. Það verður svo stjórn hans sem tekur hina endanlegu ákvörðun um styrkveitingu og sendir greiðslur til BI sem kemur þeim til skila til jarðareiganda. Breytingar þessar verða aftur- virkar þannig að þeir sem stóðu í framkvæmdum 1999 og hafa ekki fengið neitt framlag geta sótt um framlag ásamt þeim sem lögðu vatnsveitur á árinu 2000. Um- sóknir og úttektir þurfa að berast til BI fyrir 1. febrúar nk. Þeir sem telja sig eiga möguleika á styrk ættu endilega að hafa sem fyrst samband við ráðunauta sína og biðja þá að taka veituna út og sækja um styrk. Þeir sem ætla að fara í vatns- veituframkvæmdir á árinu 2001 þurfa líka að sækja um framlag til þess fyrir 1. febrúar nk. ef þeir gera sér vonir um að fá framlagið í byrjun árs 2002. Gert er ráð fyrir að í fyrstu verði framlagsupphæðin allt að 44% af kostnaði við vatnsveituna, þ.e.a.s. kostnaði við vatnsupptöku, þar með talin borun eftir vatni og dælur, vatnsgeyma og lögn heim í bæ. Eins og áður verður ekki framlag til vatnslagna innanhúss. Búnaðarþing 2001 verður sett í Súlnasal á Hótel Sögu þriðjudaginn 6. mars kl. 10 f.h. Fulltrúar verða nú fleiri en áður, en gert er ráð fyrir að þingfulltrúar verði 47-48. Frestur til að leggja mál fyrir þingið rennur út mánu- daginn 22. janúar. Haustslátrun sauðfjár Meiri alurðir hjá íslensku sauðlé eo nokkru sinni áðor Nú er lokið uppgjöri fyrir tæplega 100 þúsund ær frá haustinu 2000 frá tæplega 500 búum. Þetta er knappur helmingur þeirra skýrslna sem koma líklega til uppgjörs vegna liðins árs. Stöðugt fjölgar þeim sem taka þátt í skýrsluhaldinu en skýrslufærðu fé hefur fjölgað um 3-8% með hverju ári og fyrir haustið 1999 náði fjöldi skýrslufærðra áa í land- inu í fyrsta sinn að fara yfir 200 þúsund. Síðastliðið haust var sauðfé mjög vænt um nær allt land. Skýrsluhaldið sýnir að afurðir þá hafa verið meiri hjá íslensku sauðfé en nokkur dæmi eru um áður. Hjá þeim ám sem búið er að gera upp skýrslur fyrir eru afurðir eftir hverja á rúm 28 kg af reiknuðu dilkakjöti. Að vísu er líklegt að búið sé að gera upp skýrslur af þeim svæðum þar sem afurðir eru hvað mestar, en samt er ljóst að öll fyrri met um afurðir hafa verið slegin og afurðaaukning frá haustinu 1999 er einhverstaðar á bilinu 4-8% eftir hverja á. Þetta kom fram í upplýsingum frá Jóni Viðari Jónmundssyni, sauðfjárræktarráðunaut. í síðasta blaði var sagt frá frábærum árangri Indriða Aðalsteinssonar og Lóu Amadóttur á Skjaldfönn, þar sem öll fyrri met um afurðir voru slegin, og fullyrða má að ekkert bú af þeirri stærð náði viðlíka árangri haustið 2000 né nokkru sinni áður. Af búum sem þegar hafa verið gerð upp, koma mörg önnur mjög vel út. Þannig eru þegar fast að 100 bú þar sem fleiri en 100 ær eru komnar með yfir 30 kg af kjöti eftir hveija á. Af búum í þessum stærðarflokki auk Skjaldfannar sem náð hafa 35 kg markinu eru; Hjálmar Pálmason og Guðlaug Sigurðardóttir á Bergsstöðum, Ellert Gunnlaugsson á Sauðá, Björn Karlsson og Guðbrandur Björnsson á Smáhömrum, Þóra Ólafsdóttir og Sigvaldi Sig- urjónsson á Urriðaá og Ragnheiður Jónsdóttir á Gestsstöðum. Afurðir í Strandasýslu eru með eindæmum miklar. Búið er að gera upp skýrslur frá nær 50 búum á búnaðarsambandssvæðinu og eru meðalafurðir fyrir allt svæðið rúm 31,5 kg eftir hverja á. Víða utan þess svæðis em þær einnig fádæma miklar og skal geta Sf. Kirkju- hvammshrepps þar sem þær eru yfir 33 kg að jafnaði eftir hverja á. Nokkrir „hobbýbændur“ em líka eins og ætíð með mjög miklar afurðir. Þar trónir enn á toppi Láms G. Birgisson, sem heldur fé sínu til beitar vestur í Miðdal í Bolungarvík, þó að flesta daga ársins leiðbeini hann bændum á Vestur- landi sjálfur. Ekki er ólíklegt að einhver eigi eft- ir að skjótast uppfyrir hann áður en uppgjöri ársins lýkur. Steinar Jónasson í Mjólkárvirkjun og Sigurður Viðarsson í Brakanda hafa einnig auk Lámsar þegar komist á skrá yfir 40 kg fram- • 4’ * V' * tk' <] • leiðendur haustið 2000. Þó að þessum þrem fjáreigendum sé það öllum sammerkt að vera aðeins með á annan tug áa hver, er árangur þeirra enn ein staðfesting á feikilegri afurðagetu íslensku sauðkindarinnar þegar hún býr við gott atlæti. Mörg fjárbú sýna einnig fádæma glæsilegar niðurstöður úr kjötmati haustið 2000. Af búum þar sem kjötmatsupplýsingar em fyrir fleiri en 100 dilka haustið 2000 er bestur árangur hjá El- vari Einarssyni á Syðra-Skörðugili en þar skammt á eftir koma Þórarinn Leifsson og Guðrún Lámsdóttir í Keldudal. Þessi tvö bú í Skagafirði em þau einu af þessari stærð sem enn em komin í uppgjör þar sem meðalflokkun fyrir gerð fer yfir 10 eftir þeim útreikningi sem notaður hefur verið í fjárræktarfélögunum til að leggja tölulegan kvarða á matið. Þar til viðbótar má geta þeirra búa sem komin em yfir 9,5. Það em þeir bræður Leifur og Þorsteinn Ágústssynir í Mávahlíð, Jóhanna Pálmadóttir á Akri, Hjálmar og Guðlaug á Bergsstöðum, Bragi Guðbrands- son á Heydalsá og Helgi Steinsson á Syðri- Bægisá. Niðurstöður skýrsluhaldsins er hægt að skoða mun ítarlegar á vef Bændasamtakanna www.bondi.is. Áhugamönnum um sauðfjárrækt er einnig bent á uppgjör sauðfjárslátrunar sl. haust eftir Stefán Vilhjálmsson, yfirkjötmats- mann á bls. 18.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.