Bændablaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 4

Bændablaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 4
4 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 16. janúar 2001 Korif nir Rannsóknaslofnunar aa landbúnaðarins sumariO 2000 Ʊ Bændablaðið - málgagn Ðændasamtaka íslands Vinnum með náttúrunni en ekki á móti Við nýliðin áramót mátti skyggnast um af fleiri en einum sjónarhóli. Líta mátti til liðins árs, líta mátti til liðinnar aldar í upphafí nýrrar og líta mátti til liðins árþúsunds sem spannar að mestu búsetu þjóðarinnar í landinu. Að undanskildum örfáum síðustu áratugum hefur meginverkefni þjóðarinnar allan þennan tíma verið að hafa í sig og á, sem m.ö.o. hefur að mestu leyti verið fólgið í því að stunda búskap, þ.e. landbúnað. Sú barátta hefur fjarri því verið nein samfelld sigurganga. Lengst af var hún harðsótt og hvað eftir annað varð búfjárfellir af völdum kulda og náttúruhamfara og í kjölfarið mannfellir. Stundum er sagt að þjóðin hafi komist af á bjartsýninni einni saman og eigi sér táknmynd í bóndanum sem kvaðst einskis vant annars en heys, matar og eldiviðar. A 20. öldinni varð viðsnúningur, meiri velmegun en nokkru sinni náðist á síðari hluta aldarinnar og minningar um hungur og skort hurfu í fjarska. Þetta átti við jafnt hér á landi og í flestum öðrum vestrænum löndum. En þá gerðist undarlegur hlutur. Hvers kyns efnalegar framfarir tóku stór stökk framávið; húsakynni fólks bötnuðu, vegir og samgöngutæki á lofti, láði og legi stórbötnuðu, og ferðalög fólks og flutningar jukust að sama skapi, samskiptatækni; sími, útvarp, sjónvarp og nú síðast tölvusamskipti tók risaskref, tómstundir jukust sem og möguleikar til að nota þær til að njóta og taka þátt í listum og íþróttum eða öðru sem hugurinn stóð til. Eitt varð þó útundan. Matur er mannsins megin en mikilvægi þess að hann sé holl hágæðavara gleymdist. í stað þess kom þung og skýr krafa um að hann skyldi vera ódýr, hvað sem í sölumar þyrfti að leggja. Til að auka afköst og ná niður framleiðslukostnaði var farið að beita mikilli áburðargjöf og úða jurtavamarefnum á plöntur í stómm stfl. Slíkt gaf aukinn arð en hefur skilað sér til lengdar í jarðvegi sem er ofhaldinn næringarefnum og leifum jurtavarnarefna sem valda umhverfisspjöllum. Þá hefur búfé verið knúið til aukinna afkasta með lyfjum og hormónum og nú síðast hefur verið reynt að ná niður framleiðslukostnaði með framleiðslu fóðurs þar sem ekki var nóg vandað til verka né brugðist nógu skjótt við og upp kom sjúkdómur sem menn standa ráðþrota gegn, sem er kúariða. Líta má svo á að kúariðan sé skilgetið afkvæmi þeirrar stefnu stjómvalda, jafnt og annarra sterkra þjóðfélagsafla, að framleiðslukostnaði búvara skuli haldið niðri út yfir öll skynsemismörk, án tillits til umhverfis- og búfjárverndar. Baráttan gegn kúariðu á eftir að vera löng og ströng en hún þarf jafnframt að opna augu almennings jafnt og stjómvalda fyrir því að núverandi kröfur um lágt búvömverð hafa ekki virt þau öryggismörk sem lífsnauðsynleg eru til að fullrar hollustu og heilbrigðis sé gætt. Hagræðing og framleiðslu- aukning í búrekstri þar sem náttúrunni er ekki misboðið em hins vegar af hinu góða. íslenskur landbúnaður hefur verið í vörn nú um nær 20 ára skeið og gengið í gegnum sömu þróun og landbúnaður hvarvetna um hinn vestræna heim, með fækkun starfa, stækkun eininga, aukningu svokallaðs verksmiðjubúrekstrar og víða grisjun byggðar. Spámenn Gamla Testamentisins voru ekki spámenn heldur menn sem vildu láta fólk horfast í augu við óþægilegar staðreyndir. Enn er þörf á slíkum mönnum. Hin einhliða lífsgæðasókn samtímans kallar fram veilur sem stillir lífsgæðakapphlaupinu í varasamt ljós og blindar augu ; manna fyrir því sem skiptir meiru, sem er það að vinna með i náttúrunni en ekki gegn henni. í ferð Þórs til Útgarða-Loka glímdi hann við gamla kerlingu sem kom honum að lokum á kné og nefndist sú Elli. Glíma okkar við önnur lögmál náttúrunnar mun enda á sama hátt, hún mun koma okkur á kné ef ekki lengra. Þetta ætti síðasta öld og árþúsund að hafa kennt okkur. ;■ • ■ * • '' ■ >iV'ú' •'••'•-,■3--,' c. B-....... ;___- ■ - •' - " Kornskurður á Þorvaldseyri 7. september 2000. Hvergi er eins skammt á milli korns og jökuls. - : ‘ , , • t.j. : Rannsóknastofnun landbúnað- arins hefur staðið að rann- sóknum í kornrækt um langt árabil. Undirritaður hefur haft umsjón með verkefninu síðastliðin 11 ár. Hin síðustu ár hefur verkefnið verið styrkt af Framleiðnisjóði landbúnaðarins. Fjallað hefur verið um flest þau vandamál sem komið hafa upp hjá kornbændum og líka hefur verið reynt að bregðast við hug- myndum og fyrirspurnum bænda. Tilraunir hafa verið gerðar bæði á Korpu og í ökrum víða um land. Sumarið 2000 voru 250 til- raunareitir vélskornir úti um land og um 750 á Korpu. Auk þeirra voru um 100 smáreitir skornir bæði á Korpu og vestur á Fjörðum. Skomir tilraunareitir voru því um 1100 síðastliðið sumar. Nú hefur orðið að ráði að ég kynni niðurstöður úr tilraunum ársins í Bændablaðinu og munu þær birtast smám saman í föstum pistli fram að kornsáningu í vor. Kornuppskera úr tilraunum í ýmsum landshlutum Metuppskera fyrir norðan Sumarið 2000 var í góðu rneðal- lagi sunnanlands en með því besta sem gerist norðanlands, bæði hlýtt og sólríkt. Korn fyrir norðan var nánast allt fullþroska í byrjun sept- ember og uppskera sums staðar svo mikil að gott hefði þótt suður á Skáni. Þessi fullyrðing styðst við niðurstöður úr tilraunum RALA. Ár hvert sáum við í tilraunir í ökrum á nokkrum stöðum á land- inu til þess að prófa bygg, bæði kynbótaefni og viðurkennd yrki. í ár voru tilraunir af þessu tagi á fjórum stöðum auk Korpu, þremur norðanlands og einum syðra. Niðurstöður sjást á 1. mynd. Samanburður við fyrri ár Ekki fer milli rnála að uppskeran í haust hefur verið afar mikil bæði í Eyjafirði og Skagafirði en til að styðja fullyrðinguna um metár verðum við að leita aftur í tímann. Nú hef ég tekið saman niðurstöður úr tilraunum þar sem borin hafa verið saman byggyrki. Á þessum 11 árum hafa 72 tilraun- ir af því tagi verið skomar með vél. Eins og áður hef ég iátið meðaltal sex bestu yrkja í hverri tilraun gilda sem uppskeru úr til- rauninni. Það er gert til þess að nálgast uppskeru úr ökrum á staðnúm, en í þeim er oftast það korn sem best hentar á hverjum stað. Af þessum 72 tilraunum hafa i 3 skilað meira en fjórum tonnum af þurrefni á hektara og eru sýndar hér í töflu. Staðfest met Alimargar tilraunir á þessum tíma Vélskornar tilraunir eru orðnar 72 talsins frá 1990. Eftirfarandi til- raunir hafa skilað ineira en fjórum tonnum þurrefnis á hektara. Upp- skera sex bestu yrkja á hverjum stað. Staður Ár Uppskera, hkg þe/ha 1. Miðgerði f Eyjafirði 2000 62,3 2. Vindheimum í Skagafirði 2000 57,4 3. Vindheimum 1999 50,3 4. Voðmúlastöðum í Landeyjum 1991 49,7 5. Straumnesi í Aðaldal 1999 48,4 6. Korpu í Mosfellssveit 1998 47,9 7. Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum 1993 47,2 8. Korpu 1996 45,3 9. Vindheimum 1997 44,2 10. Korpu 1997 44,1 11. Straumnesi 2000 43,7 12. Þorvaldseyri 2000 42,6 13. Þorvaldseyri 1994 42,1 hkg 80 je/ha Sex bestu yrkin á hverjum stað Miðgerði Vindheimum Straumnesi Þorvaldseyri Korpu Kornuppskera úr tilraunum sumarið 2000. Uppskera sex bestu yrkja á hverjum stað er talin uppskera á staðnum. Tölurnar eru hkg þurrefnis á hektara. Skorin tilraun í Straumnesi í Aðaldal 1. september 2000. Kornið var vel þroskað en uppskera ekki eins mikil og 1999 og mun þurrkur hafa valdið. hafa verið mældar með smáreitum sem skornir hafa verið með hnífi. Þær eru ekki með í þessari upp- talningu því að aðferðin þykir ekki nógu nákvæm. Handskornar lil- raunir sent hefðu getað lent í hópi hinna uppskerumestu eru tilraun- irnar í Miðgerði og Vindheimum 1996 og tilraunin á Efri- Brúnavöllum á Skeiðum 1991. Engin þeirra hefði þó náð ofar en í 8. sæti. Eftir að menn hafa skoðað þessar tölur velkist víst enginn í vafa um að þetta hefur verið metár. Metið var líka slegið svo rækilega að uppskeran í Miðgerði varð 24% meiri en ársgamla metið úr Vind- heimum. En gömlu tölurnar frá Voðmúlastöðum sýna að korn get- ur líka sprottið vel fyrir sunnan og sú tilraun átti met sem stóð í átta ár. Jónatan Hermannsson.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.