Bændablaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 7

Bændablaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 7
Þriðjudagur ló.janúar 2001 BÆNDABLAÐIÐ 7 Eitt erfiOasta púlska venk- efnifl sent landbúnaðar- rflflherra hefiir glímt við „Líklega er beiðnin um saman- burðartilraun á íslenskum og norsk- um kúm eitt erfiðasta pólitíska verkefnið sem ég hef glímt við, enda eru miklar tilfinningar í þessu máli“ sagði Guðni Agústsson, landbúnaðarráðherra í samtali við Bændablaðið. „Af þessari ástæðu lagði ég mikla vinnu á fjölda aðila til þess að fá fram faglega niðurstöðu. Það er vitað að hjarta mitt sló og slær enn með íslensku kúnni og hún hefur ekki verið sleg- in af. Það er enginn kominn til með að segja að hún muni tapa í þessari tilraun. Verkið er rétt að hefjast, en rannsóknin tekur mörg ár. Norska kýrin er ekki að fara í fjós til íslenskra bænda og mun ekki gera það nema ef bændur vilja það á grundvelli tilraunarinnar eftir átta eða tíu ár. Þá er það ný ákvörðun sem kúabændur og aðrir hlutaðeig- andi koma að.“ Staða heilbrigðismála góð í norsk- um landbúnaði Guðni sagðist frá upphafi hafa viljað fá fram niðurstöðu sem ekki væri hægt að véfengja frá faglegu sjónarmiði. Þess vegna hafi hann m.a. látið dýralæknaráð fara tvisvar yfir málið og kallað til sérfræðinga sem hefðu fullvissað hann um að það væri ekki þekkt að innflutning- ur á fósturvísum bæri með sér sjúkdóma. Umsóknin var send til RALA, Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og Hagþjónustu land- búnaðarins til umsagnar og allar stofnanimar voru jákvæðar. „Öll rök fæmstu manna sögðu að til- rauninni fylgdi ekki áhætta. Þar með féllst ég á að leyfa tilraunina,“ sagði ráðherra og bætti því við að engin rök hefðu komið fram sem réttlættu frekari frestun. „Engin kúariða hefur komið upp í Noregi og staða heilbrigðismála er góð í norskum landbúnaði." Að mœta framtíðinni Guðni sagði ljóst frá upphafi að miðað við afurðasemi mjólkurkúa í samkeppnislöndunum virtist íslenska kýrin standa höllum fæti. „Þess vegna fagnaði ég því sérstak- lega að jafnt ríkisstjóm og Alþingi hlustuðu á rök mín í þessu efni, en ákveðið er að til viðbótar öðru fjármagni til landbúnaðarins komi sérstaklega 35 milljónir króna til nautgriparæktar. Ætlunin er að efia ræktun íslensku kýrinnar. Markmið mitt er að íslenska kýrin verði áfram lifandi og öflugt framleiðslu- tæki á búum bænda. Þess vegna hefi ég hrint af stað þessari sérstöku tilraun með íslensku kúna sem standa mun næstu sjö ár.“ Tvö bú framleiða eins mikið og hœgt er Mikið hefur verið rætt um bragð, gæði og heilbrigði mjólkur úr íslenskum kúm og sagði Guðni að á næstu þremur árum yrði varið 28,5 milljónum króna í rannsóknir á þessu sviði. Rannsóknir þessar em á vegum Háskóla Islands undir for- ustu Ingu Þórsdóttur prófessors, formanns Manneldisráðs. En auk þess verður tveimur búum gert kleift að framleiða eins mikla mjólk og framast er hægt. „Þessi tvö bú munu sýna hvernig má efla ræktun- ina og fullnýta framleiðslugetu íslensku kýrinnar, fái menn til þess frelsi," sagði Guðni. „Færustu sérfræðingar munu aðstoða íslend- inga við það hjartans mál hvemig unnt er að styrkja íslensku kúna svo hún standist þá framtíð sem fram- undan er. Því mega menn ekki gleyma að það var ekki ákvörðun mín eða míns flokks að mynda glufu í vegginn og hefja innflutning á kjöti og mjólkurafurðum.“ - Ertu þarna í leiðinni að kanna áhrif kvótakerfisins á mjólkurfram- leiðslu? ,Jú, það er rétt. Ég vil gjaman sjá hvað hægt er að gera þegar eng- ar hömlur em settar á bændur. Inn- an tíðar munum við auglýsa eftir tveimur góðbændum í þessu sam- bandi.“ Guðni sagðist leggja áherslu á að sú tilraun sem ætlunin væri að gera byggðist á allt öðmm forsend- um en sú sem rætt var um í upphafi og bændur vom mjög á móti. „Þeg- ar tilrauninni lýkur eftir átta eða tíu ár munu menn fyrst geta metið hvort nýju kýmar verði að vem- leika í íslenskum kúabúaskap. Standi íslenskar kýr uppi sem sigur- vegarar verða hinar kýmar einfald- lega felldar." - Hefði verið hœgt að fram- kvæma þessa tilraun íNoregi? „Nei. Við ætlum að sjá hvernig þessar kýr standa sig hér á landi. Tilraunin er margþætt og getur hvergi farið fram nema hér. Nýtir norska kýrin íslenska gróffóðrið jafn vel og sú íslenska? Hvað kostar að framleiða mjólk með norskum kúm miðað við nýtingu innlends fóðurs? Hvernig em bragð og gæði mjólkur úr þessum kúm borið sam- an við mjólk úr íslenskum kúm? Við verðum að fá svör við spurn- ingum sem þessurn." - A sama tíma og þessi tilraun er að skríða úr vör berast fréttir af innflutningi matvöru frá löndum þar sem t.d. hefur fundist kúariða. „Já, það er rétt en við verðum að minnast þess að samkvæmt al- þjóðlegum skuldbindingum á borð við WTO þá opnaðist sú glufa sem ég ræddi um áðan. Vegna þessara ákvæða er flutt inn talsvert magn af nautakjöti í ýmsu formi, m.a. fersku kjöti eins og nautalundir frá írlandi og einnig sem fylling í ýmsum réttum t.d. pitsum, vorrúllum, pasta o.fl. Við verðum að treysta því að innflytjendur landbúnaðarafurða flytji ekki til landsins annað en bestu vöru. Þeirra ábyrgð og þeirra sem versla með landbúnaðarvörur er mjög mikil og ég vil að þeir geri sér fulla grein fyrir henni. Þess vegna ætla ég að kalla þá á minn fund og fara yfir málið og gera þeim grein fyrir alvöru þess.Yfir- dýralæknir stendur vörð um þessi mál og hafnar innflutningi sem ekki stenst okkar ströngu heilbrigðis- kröfur. Hins vegar horfir það öðru- vfsi við þegar beiðni um innflutning fylgja öll vottorð sem uppfylla þessar kröfur okkar í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar, eins og var með þessar írsku nautalundir.“ Ekki skortir verkefni í landbúnaði En fær nautgriparæktin fé til rannsókna sem hún hefði annars ekki fengið? Guðni sagði það rétt vera - óvænt hefði gefist tækifæri til að rannsaka mjólkina og áhugi á ræktun væri meiri en fyrr. „Vissu- lega skiptir þetta máli en ég tel meira um vert að það náist sam- staða í landbúnaðinum um verk- efnið meðan á því stendur. Menn eiga að fylkja sér um það og fylgj- ast með samanburðartilraununum sem fram fara á Möðruvöllum og Stóra-Armóti, enda hefur aldrei fyrr verið jafnmikið um að vera í ræktunarmálum. Aldrei áður hefur verið ráðist í jafn víðtæka rannsókn á sviði nautgriparæktar hér á landi og miklu fleiri þættir verða rannsakaðir en þeir sem beint snerta samanburðartilraun- ina. Ég hefi skipað sérstakan faghóp sérfræðinga frá samtökum bænda, rannsóknastofnunum, yf- irdýralækni, yfirkjötmati og mjólkuriðnaðinum sem mun, undir forystu Dr. Agústar Sigurðssonar ráðunauts, skipuleggja rannsókn- ina, fylgjast með framkvæmdinni og leggja mat á niðurstöður. Ágúst er einn okkar færasti sérfræðingur á sviði búfjárræktar og hann mun einnig leiða rannsóknina á íslensku kúnni. Slfkt tækifæri til þekking- aröflunar fyrir nautgriparækt höfum við aldrei áður fengið. Þetta hlýtur að vera áhugavert fyrir bændur," sagði Guðni. „Nú hefur verið tekin ákvörðun um framkvæmd verksins og við eigum að snúa okkur að öðrum málum - en ekki er skortur á verkefnum í íslenskum landbúnaði. Það er vilji til þess í þjóðfélaginu að láta fjármagn í mörg þessara verkefna. Ég vil nú fara að beina kröftum mínum í aðrar áttir en allt sem ég geri hefur það að markmiði að styrkja íslenskan landbúnað. Nefna má gæðastýringu í sauðfjárrækt, átak í hrossarækt og hestamennsku, skógrækt og málefni land- græðslunnar,“ sagði Guðni Ágústsson að lokum. Búkolla til ráflherra Forsvarsmenn félagsins Búkolla, sem stofnað var til verndar íslenska kúastofninum, hafa verið boðaðir á fund Guðna Ágústssonar, landbúnaðarráðherra, í næstu viku. Fundurinn verður í Reykjavík. „Mig langar til að heyra hljóðið í fólkinu, og ráðgast um það hvemig best verður staðið að ræktun íslensku kýrinnar," sagði ráðherrann.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.