Bændablaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 14

Bændablaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 14
14 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 16. janúar 2001 Landbúnaðarvörur - Varahlutir Lambamerkin frá Allflex eru orðin margreynd á Islandi og hafa reynst afburða vel. Allflex merkin eru til I öllum litum sem að viðgangast á Islandi og fást prentuð með bæði rað- og bæjarnúmeri eins og lög gera ráð fyrir Hér fyrir neðan er pöntunareyöublaö sem hægt er að senda okkur I pósti, á faxi eða skila inn til okkar að Viðarhöfða 2 i Reykjavik Nánari upplýsingar I sima: 567-8400 Lambamerkjapöntun Bæiarnúmer Röð Litur Töng: □ Já □ Nei Heimilisfang: Við hvetjum bændur til þess að vera snemma á ferðinni i ár og tryggja þar með að merkin berist örugglega á tilsettum tima. I Kái @=5 Kárason Viðarhöföi 2 -110 Reykjavik Simi: 567-8400 - Fax: 567-8401 Gsm: 863-3226 e-mail: pk@binet.is Aðgangur aó þriggja fasa rafmagni eykst jafnt og þétt: Brýnt að endurnýja hluta raforkukerflsins - segir i svari iðnaðarráðherra við fyrirspurn ð Alpingi Til sölu Til sölu er JCB 3 I) servo árg“ 1987. Með tvöfoklun. Ekin 7300 stundir. Mjög póð vél. Upiilýsingar í síma: 451-0090 eða 853-3890. Hannes. Valgerður Sverrisdóttir iðn- aðarráðherra telur brj'nt að endurnýja hluta raforkukerfis- ins ef marka má svar hennar við fyrirspurn Drífu Hjart- ardóttur á Alþingi um þriggja fasa rafmagn. I svarinu keniur fram að endurnýjun þessi verði með þriggja fasa jarðstrengj- um og muni allt í senn auka rekstraröryggi og flutnings- getu, bæta spennugæði, draga úr rekstrarkostnaði og veita notendum aðgang að þriggja fasa rafmagni. Því þurfi að hraða þessari endurnýjun svo sem kostur er. í svarinu kemur fram að 174 aðilar í sveitum landsins hafa tekið inn þriggja fasa rafmagn á orkuveitusvæðum Rafmagns- veitna ríkisins. Flestir þeirra voru á Suðurlandi eða 78, 40 voru á Vesturlandi, 22 á Austur- landi, 18 á Norðurlandi vestra og 16 á Norðurlandi eystra. Á orkuveitusvæði Orkubús Vestfjarða eru hins vegar flestar línur einfasa. 35 bæir eiga mögu- leika á að fá þriggja fasa rafmagn og eru 22 þeirra tengdir. Átta bæir fá hins vegar möguleika á þriggja fasa tengingu á næstu mánuðum. Einn bær hefur tekið slíka tengingu síðustu þrjú árin. Þá hefur Orkuveita Reykjavíkur frá ársbyrjun 1998 tengt 2.040 nýjar heimtaugar, þar af 1.261 þrífasa. Fram kemur að öll end- urnýjun rafdreifikerfisins í sveit- um sé með þriggja fasa rafmagni og með því rnóti fjölgi þeim allt- af jafnt og þétt sem hafi aðgang að því. Þá er einnig tekið fram að ef þrífasa á þá 4.400 km af dreifikerfi Rafmagnsveitna ríkis- ins sem nú eru einfasa muni það líklega kosta um 9 milljarða króna. Að mati ráðherra er sérstakt athugunarefni hvort rétt sé að leggja í slíkan kostnað eingöngu til að allir hafi aðgang að þriggja fasa rafmagni þar sem einfasa rafmagn dugi yfirleitt til heimilisnota og húshitunar. Þá er einnig bent á að knýja megi flesta þriggja fasa hreyfla sem þörf er á í almennnm búrekstri og léttum iðnaði með einfasa raf- magni í gegnum hraðabreyta. Umsékri um ilJii orlofsstyrk/orlofsdvöl Hér að neðan er að finna umsóknareyðublað um orlofsstyrk eða orlofsdvöl að Hólum sumarið 2001. Gert er ráð fyrir að, auk úthlutunar orlofsvikna að Hólum, verði í ár úthlutað u.þ.b. 70 orlofsstyrkjum til bænda. Upphæð hvers orlofsstyrks verður kr. 21 þúsund miðað við sjö sólahringa samfellda orlofsdvöl, innanlands en kr. 3 þúsund á sólarhring við styttri dvöl. Vinsamlegast raðaðu í forgangsröð hvort þú óskir frekar úthlutunar orlofsstyrks eða orlofsdvalar að Hólum með því að merkja 1 og 2 í viðkomandi reiti (bara 1 ef einungis annað hvort kemur til greina). Frestur til að skila inn umsóknum rennur út 28. febrúar 2001. Undirrituð/Undirritaður sækir hér með um: □ Orlofsdvöl að Hólum Tímabilið □ Orlofsstyrk Nafn umsækjanda Kennitala Heimilisfang Símanúmer Póstnúmer og staður Hvernig búskap stundar þú? Hefur þú fengið úthlutað orlofsdvöl eða orlofsstyrk hjá Bændasamtökunum áður? (Hér er eingöngu átt við sumarúthlutun). Orlofsstyrk árið Já Nei Ef já, hvar og hvenær fékkstu síðast úthlutað? I Asborgum árið Að Hólum árið Undirskrift og dagsetning Sendist til Bændasamtaka íslands. Bændahöllinni v/Haaatora. 127 Reykjavík. merkt: Orlofsdvöld sumarið 2001 fyrir 28. febrúar nk. m Stjúrn LK hefur áhyggjur aí innfliitningi mahröru Stjórn Landssambands kúa- bænda hélt fund í liðinni viku og samþykkti m.a. ályktun sem send var landbúnaðar-, um- hverfis- og heilbrigðisráð- herra. „Síðustu vikur hefur orðið nokkur umræða um eftirlit með innflutningi matvæla, m.a. hvernig eftirliti með innflutningi á kjöti, hráu eða unnu, er háttað. Vegna þessa hvetur stjórn Landssambands kúabænda yfirvöld til að huga sérstaklega að innflutningi á öllum vörum sem innihalda kjöt og kjötafurðir, þar með talið nautgripaafurðir. Til viðbótar hráu kjöti er slíkar afurðir er að finna í ýmsum unnum matvælum svo sem pizzum, kjötrúllum, fylltu pasta, tilbúnu lasagna, kjöt- krafti, kjötsósum og fleiru. Stjórn Landssambands kúa- bænda leggur áherslu á að eftirlit með þessum vörum sé tekið til endurskoðunar og fyllstu varkárni sé gætt við þann innflutning sem leyfður er með hagsmuni neytenda í huga. Þá skorar stjórn Landssambands kúabænda á stjórnvöld að nýta þær leiðir sem færar eru til að bregðast við ef upp koma vafaatriði varðandi innflutt matvæli." wtmmm Efling endurmennt- unar meðal bænda á Suðurlandi Landlnínaðarháskólinn á Hvanneyri og Búnaðarsamband Suðurlands hafa gert með sér samstarfssamning sem efla á búfræðimenntun og endur- menntun bænda á sam- bandssvæði BSSL. Samkvæmt samningnum ráða báðir aðilar sameiginlegan starfs- mann til verkefnisins þar sem 30% starfshlutfall er vegna verkefna sem tengjast endurmenntun og efl- ingu búfræðimenntunar á vegum LBH og 70% vegna verkefna fyrir BSSL, þ.á m. verkefna sem tengj- ast endurmenntun fyrir bændur á sambandssvæðinu. Þessi starfsmaður verður Runólfur Sig- ursveinsson, ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Suðurlands. Sveinn Sigurmundsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsam- bands Suðurlands, segir samning- inn munu auka tengsl sambands- ins við Landbúnaðarháskólann. „Við höfum haft ákveðið samstarf nú þegar og ráðunautar BSSL hafa unnið ákveðna vinnu í sambandi við nemendur í verknámi og námskeiðahald. Þetta hefur þá farið þannig fram að við höfum haldið námskeið sem eru á vegum endurmenntunardeildar Landbúnaðarháskólans. Við erum með þessu að staðfesta og form- gera það samstarf." Magnús B. Jónsson rektor Landbúnaðarháskólans á Hvann- eyri segir þennan samning efla starfsemi skólans á sviði endur- menntunar á þessu landssvæði. „Þetta gefur okkur einnig tækifæri til að víkka út okkar tengsl bæði við að endurmennta bændur og einnig í samstarfi okkar við Fjölbrautarskóla Suðurlands.“ Samningur þessi var gerður að frumkvæði BSSL og var svipaður samningur gerður við Búnaðar- samband Austurlands á sínum tíma. Magnús segir að ekki hafi verið rætt hvort fleiri slfkir samn- ingar verði gecðir á landinu., , .

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.