Bændablaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 6

Bændablaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 6
6 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur ló.janúar 2001 Samanburðartilraun með NRF og íslenskar kýr Allur undirbúningur saman- burðatilraunarinnar gengur vel. Tilraunanefndin, sem dr. Agúst Sigurðsson stýrir, hefur verið skipuð og ntun hefja störf innan tíðar. Samkvæmt samkomulagi sem LK, BÍ og Landbúnaðarráðuneytið hefur gert skulu tilraunaáherslur sam- anburðartilraunarinnar liggja fyrir nú í byrjun júní. Þá hefur verið unnið að breyt- ingum á einangrunarstöðinni í Hrísey og mun því verki ljúka á næstu vikum. Hvað snertir fósturvísana, þá er nú búið að forvelja þau naut sem notuð verða sem feður NRF- fósturvísanna. Um er að ræða 6 naut (þar af 5 kollótt) og eru þau öll arfhrein (A2A2) hvað snertir ákveðna þætti próteinsins beta casein, en próteinþættimir eru A1, A2 og B. Eins og mörgum er kunnugt hefur verið sett fram kenning um að há tíðni á beta ca- sein A1 próteinþætti hafi áhrif á nýgengi sykursýki hjá bömum. Islenski stofninn hefur lága tíðni á þessum próteinþætti og ákvað Fagráð í nautgriparækt að hafa tíðni á þessum þætti NRF-fóstur- vísanna eins lágan og unnt er. Mæðrahóp fósturvísanna er búið að velja (70 kollóttar kýr/kvígur) og þegar sjúkdónta- og erfðar- annsóknum er lokið (væntanlega á morgun) munu 8-10 af þeim verða sendar á einangrunarstöð til fósturvísaskolunar. Undanþágurfrá lyfjareglu- gerðinni A það skal bent að hægt er að fá undanþágu frá ákvæðum reglu- gerðar nr. 539/2000, um heim- ildir dýralækna til að ávísa lyfj- um. I 17. gr. reglugerðarinnar segir: „...er yfirdýralækni heim- ilt, að veita dýralækni und- anþágu frá kröfu um að hann heiji sjálfur sýklalyfjameðferð á búfé þar sem landfræðilegir staðhættir, veðurfar eða aðrar ytri aðstæður hindra dýralækni í að hefja meðferðina”. Sá sem óskar undanþágu vegna einhvers af ofangreindum atriðum, skal sækja um það skriflega til síns dýralæknis sem getur eftir mat á aðstæðum óskað eftir und- anþágu. Iskýr - samráðshópur Nú hefur verið ákveðið að skipa samráðshóp kúabænda, ráðu- nauta og tölvumanna til að vinna að áframhaldandi þróun á viðmóti forritsins gagnvart bændum. Fulltrúar okkar eru tveir og þeir sem hafa ábending- ar um atriði sem mætti lagfæra er benl á að senda athugasemdir til tölvudeildar BÍ á help- desk@bondi.is merkt: „b.t. Samráðshóps fyrir Iskýr”. Afleysingasjóður Minner á að frestur til að skila gögnum vegna afleysingasjóðs fyrir síðasta ársfjórðung 2000 rennur út 20. janúar. Vetrarleyfi Skrifstofa LK verður lokuð þessa vikuna og fram á miðviku- dag í næstu viku vegna vetrar- leyfa. Áfram verður þó hægt að ná sambandi við Snorra Sig- urðsson, framkvæmdastjóra með tölvupósti: naut@naut.is eða í síma 896-1995. frio>lnl fiu no^jAisA Fræðslufundur um nautgriparækt Fagráð í nautgriparækt efnir í samvinnu við Búnaðarsamtök Vesturlands tii fræðslufundar um nautgriparækt í matsal Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri föstudaginn 26. janúar kl. 13.30 í tengslum við aðalfund Fagráðsins. Fundarefni: Ræktunarmarkmið í íslenskri nautgriparækt Erindi og framsögumenn 1. Þarfir mjólkuriðnaðarins á komandi árum Birgir Guðmundsson, Mjólkurbúi Flóamanna 2. Hvernig kýr vilja íslenskir bændur? Guðný Helga Björnsdóttir, Bessastöðum 3. Áherslur um þessar mundir. Hvernig er stefnt að settu marki? Jón Viðar Jónmundsson, Bændasamtökum íslands 4. Ræktunaráherslur í nágrannalöndunum og nýir eiginleikar í ræktunarstarfinu. Baldur H. Benjamínsson, Landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn. Fyrirspurnir og almennar umræður Bændur eru hvattir til að mæta á fundinn Fagráð í nautgriparækt Búnaðarsamtök Vesturlands Búkolla Samtök áltugamanna um íslensku kúna Karlinn og eldurinn, konan og kýrin námu ísland í öndverðu og hafa búið hér saman síðan. Nú fylkja menn liði, karlar og konur, til varnar landnámskúnni þegar að henni er sótt með áformum um inn- flutning á norsku kúakyni hingað til lands. Mikil andstaða hefur verið meðal bænda við áform um inn- flutning á fósturvísum úr norskum NRF-kúm til innblöndunar við íslenska kúastofninn (í tilraunaskyni og síðar til kynbóta ef niðurstöður tiirauna benda til að það reynist ögn hagkvæmara). Niðurstöður skoðanakönnunar sem gerð var meðal kúabænda haustið 1997 Iiafa verið hafðar að engu eða snúið út úr þeim og innflutn- ingssinnar hafa barist gegn því á öllum stigum að fram færi al- menn atkvæðagreiðsla meðal kúabænda um innflutninginn. Nú hefur iandbúnaðar- ráðherra heimilað innflutning í tilraunaskyni, þrátt fyrir mikla andstöðu og óeiningu meðal bænda og við lítinn fögnuð þjóðarinnar. Þar verða lagðir að veði miklir fjármunir og nær öll tilraunaaðstaða okkar í nautgriparækt til margra ára, án þess að tilraunaáætlanir hafi verið lagðar fram, kostnaðar- áætlanir gerðar eða sýnt fram á þörf fyrir innflutning eða vœntanlegan ávinning af honum sem þó er skilyrði í lögum til þess að leyfi sem þetta se' veitt. Helstu varnir landsins gegn innflutningi landbúnaðarvara, framleiddum við óþekktar aðstæður úti í heimi, er sérstök staða búfjárstofna okkar sem eru eyjastofnar, ofurviðkvæmir fyrir jafnvef meinlausustu kvill- um sem ganga á meginlöndun- um. Hrossapestin sem hér geisaði er nýjasta vitnið um það. Nú stendur til að leggja nautgripina okkar í þessa hættu, einmitt þegar kúariða, nýr og skeifilegur sjúkdómur, breiðist út í Evrópu og herjar þar á menn og skepnur. Samkvœmt lögum skal, áður en yfirdýralœknir mœlir með inn- flutningi, liggja fyrir vottorð frá viðkomandi heilbrigðis- yfirvöldum um að í Noregi hafi ekki orðið vart neinna sjúkdóma í dýrum sem sérstaklega þarf að óttast hér á landi. Þetta vottorð höfum við ekki fengið staðfestað sé til, þó eftir hafi verið leitað. Nautgripir eru enn fluttir á fæti til Noregs frá Danmörku. Meðan þessu fer fram liggja bændur undir ámæli almenn- ings um að öryggi neytenda sé stefnt í hættu og vilji þjóðarinn- ar til að drekka mjólk úr íslenskum kúm sé hundsaður. Við sem alfa tíð höfum verið á móti hugmyndum um innblöndun erlendra kúa við íslenska kúakynið sitjum ekki þegjandi hjá. Undirbúningshópur að stofn- un samtaka áhugamanna um íslensku kiina skorar á landbúnaðarráðherra að aftur- kalla leyfi til innflutnings á erfðaefni úr norskum kúm í til- raunaskyni þar til tekist liefur að kortleggja umfang kúariðu í Evrópu, greina smitleiðir og koma upp varanlegum vörnum gegn átbreiðslu sjúkdómsins. Hópur kúabænda af landinu öllu vinnur nú að stofnun félags áhugamanna um íslensku kúna. Félagið hefur hlotið nafnið Búkolla, - samtök áhugamanna urn íslensku kúna. I drögum að stefnuskrá segir: Samtökin eru stofnuð til að: - standa vörð um íslenska kúakynið og verja það erfðamengun, - efla kúabúskap og ræktun kýrinnar, - halda í heiðri sögu og menn- ingu tengda kúnni, - tryggja velferð kýrinnar og hollustu afurða. Samtökin eru stofnuð af kúabændum og verður stýrt af þeim, en öðrum bændum og öllum almenningi er boðin þátttaka til stuðnings málefn- inu, enda varða svo viðamikil málefni sem matvælafram- leiðsla og búfjárstofnar í náttúru landsins alla þegna þjóðarinnar. Hægt er að skrá sig í félagið á netfanginu bukolla@isI.is á heimasíðu samtakanna, slóðin er www.bukolla.is, bréflega í pósthólf 264,802 Selfoss eða hjá undirrituðum sem einnig veita nánari upplýsingar um samtökin. Ásthildur Skjaldardóttir, Bakka, Kjalarnesi. 566-6053 Þorvaldur og Ólöf, Brekkukoti, Borgarfjarðarsveit. 435-1165 Birkir Friðbertsson, Birkihlíð, Súgandafirði. 456-6255 Rögnvaldur Ólafsson, Flugumýrarhvammi, Skagafirði. 453-8255 Hörður Snorrason, Hvammi, Eyjafjarðarsveit. 463- 1241 Sif Jónsdóttir, Laxamýri, S- Þingeyjarsýslu. 464- 2022 Ágústa Þorkelsdóttir, Refsstað, Vopnafirði. 473-1443 Elín Oddleifsdóttir, Selja- völlum, A-Skaftafellssýslu.478- 1482 Sigurjón Hjaltason, Raftholti, Rangárvallasýslu. 487-6607 Sigríður Jónsdóttir, Gýgjarhólskoti, Árnessýslu. 486-8621 lit á't niþl3nt>qh§iuiin iæl ríd j i BuJnuálö[rfi imwxtríulfi 6i/ bísbim

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.