Bændablaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 20

Bændablaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 20
20 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 16. janúar 2001 Hertar reglur um inn- flutning á landbúnaðara- furðum ðl Færeyja Með nýjum samningi Færeyinga við ESB taka nýjar reglur um inn- flutning á landbúnaðarafurðum til Færeyja gildi frá og með 1. febrúar nk. Samkvæmt Utherja, fréttabréfi Útflutningsráðs íslands, felast breytingarnar í stuttu máli í að ekki verður hægt að flytja út lambakjöt til Færeyja nema frá sláturhúsum sem eru viðurkennd af ESB. Sláturhús með leyfi til útflutnings á fersku og frystu kindakjöti til ESB eru alls fimm á landinu og fjögur þeirra eru einnig með viður- kennda pökkunarstöð fyrir hlutað kjöt. Hvað snertir útflutning á öðrum sauðfjárafurðum s.s. sviðum, saltkjöti og innmat er allt útlit fyr- ir að hann verði bannaður með öllu. I Útherja er haft eftir yf- irdýralækni Færeyja að ólíklegt væri að hægt yrði að flytja inn þessar vörur frá þriðja landi, jafn- vel þótt þær kæmu frá viður- kenndu sláturhúsi. Engin kjötvinnsla hér á landi er með leyfi til að flytja út unnar kjötvörur til ESB landa. Útflutningur á íslenskum eggjum er einnig umtalsverður og er markaðshluti þeirra stór í Færeyj- um. Frá og með 1. febrúar verður hins vegar ekki hægt að flytja út egg frá Islandi til Færeyja nema framleiðandinn sé viðurkenndur afESB. Ekki verður hægt að flytja út lif- andi hesta til Færeyja nema flytja þá fyrst t.d. til Danmerkur þar sem ekki verður úttektarstöð fyrir lifandi dýr frá þriðja landi í Færeyjum. Því verður að notast við stöðvar í öðrum löndum s.s. í Danmörku. Vænta má að með þessu leggist af útflutningur hrossa til Færeyja. I lok nóvem- ber 2000 höfðu 16 hross verið flutt út til Færeyja á árinu að verðmæti 1,7 millj. kr. samkvæmt verslunarskýrslum. Jón Pétur Líndal framkvæmda- stjóri hjá sambandi eggjafram- leiðenda segir að unnið sé að öflun tilskilynna leyfa fyrir þau eggjabú sem hafa selt egg til Færeyja. Færeyjamarkaður er stærsti markaður fyrir íslenskt dilkakjöt erlendis. Özur Lárusson framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda segir þessa breyt- ingu kalla á aukið samstarf slátur- leyfishafa um nýtingu erlendra markaða fyrir dilkakjöt. Að sögn Inga Más Aðalsteinssonar for- mannns Landssamtaka sláturleyf- ishafa hafa Færeyingar keypt nokkuð af sviðum og innmat af frá sláturhúsum á Austurlandi. Hins vegar ættu áhrif á útflutning á fersku og frosnu kjöti ekki að verða mikil þar sem fimm sláturhús eru þegar með leyfi til útflutnings til ESB og eitt kann að bætast í þann hóp fljótlega. Mestlram- leitt al mjúlk i SuMandl - en kjötframleiQsla nokkuS jöfn milli fimm kjördæma Sunnlendingar framleiddu mest af mjólk á árinu 1999, eða rúmlega 38 milljón lítra, sam- kvæmt svari landbúnaðar- ráðherra við fyrirspum um slátrun og framleiðslu landbúnaðarvara. Þetta eru 35,7% af allri mjólkurfram- leiðslu á landinu og er ríflega 10 milljón lítrum meira en lagt var inn í næsta kjördæmi á eft- ir, Norðurlandi eystra. Alls voru ríflega 107 milljón lítrar af mjólk lagðir inn hjá mjólkur- samlögunum sem er fimm milljónum umfram greiðslu- mark. Þegar innlegg á kindakjöti er hins vegar skoðað er hlut- fallið nokkuð svipað í kjördæmunum ef Reykja- nessvæðið og Vestfirðir eru frátaldir en þar var nokkuð minna lagt inn af kindakjöti en annars staðar. Mest var lagt inn á Norðurlandi vestra, rúm 1.720 tonn eða rétt um 20%. Suðurland kom næst á eftir með rúm 1.540 tonn eða tæp 18% og þar á eftir kom Austur- land með 1.509 tonn eða rúm 17%. A Vesturlandi og Norður- landi eystra voru lögð inn rúm 1.400 tonn, rúm 900 tonn á Vestfjörðum og rúm 67 tonn á Reykjanessvæðinu. Umsjón Erna Bjarnadóttir Yfirlit um framleiðslu og sölu ýmissa búvara Bráðabirgðatölur fyrir nóvember 2000 Nov-00 Sep-00 Dec-99 Breyting frá fyrra tímabili, % Hlutdeild % m.v. Framleiðsla 2000 Nov-00 Nov-00 November '99 3 mán. 12 mán. 12 mán. Alifuglakjöt 266,849 708,204 3,115,003 9.2 -5.0 5.3 14.0% Hrossakjöt 261,708 436,122 1,072,664 -2.3 -1.5 4.1 4.8% Kindakjöt* 450,619 9,291,697 9,679,430 28.3 12.3 12.3 43.4% Nautgripakjöt 296,581 925,468 3,642,505 -8.1 -0.3 0.0 16.3% Svínakjöt 473,889 1,326,126 4,779,945 5.1 11.6 3.2 21.4% 1,749,646 12,687,617 22,289,547 6.9 9.6 6.7 Samtals kjöt Innvegin mjólk 8,290,506 23,666,340 103,906,109 -1.6 -0.2 -3.4 Sala innanlands Alif uglakjöt 284,948 765,910 3,200,619 26.3 12.7 7.1 16.6% Hrossakjöt 97,424 229,856 662,643 -5.8 0.2 26.4 3.4% Kindakjöt 538,023 1,901,431 6,979,786 -16.4 -10.1 0.4 36.1% Nautgripakjöt 309,067 929,142 3,663,170 -1.5 0.7 1.3 19.0% Svínakjöt 494,440 1,319,269 4,811,923 9.0 13.2 4.4 24.9% 1,723,902 5,145,608 19,318,141 -0.9 0.7 3.3 Samtals kjöt Umreiknuð mjólk Umr. m.v. fitu 8,290,503 23,666,337 103,906,106 -1.6 -0.2 -3.4 Umr. m.v. prótein 8,987,469 26,768,821 106,122,569 1.4 2.0 2.8 'Kindakjöt lagt inn samkv. útflutningsskyldu sem flutt skal á erlenda markaði er meðtalið f framangreindri framleiðslu. **Sala mjólkur og mjólkuafurða umreiknuð á fitugrunni með leiðréttum stuðlum Samtaka afurðast.í mjólkuriðnaði frá því í september 1998. Besln hross Veslurlands árifl 2B00 í liðnum mánuði var efnt til haustfundar hjá Hrossaræktar- sambandi Vesturlands. Þar voru m.a. veittar verðlauna- viðurkenningar fyrir bestu kynbótahrossin í hverjum flokk, í eigu Vestlendinga. Hrvssur 4 vetra Gára 96236610 Sveinatungu, leirljós Fyrsti og núverandi eigandi: Þorvaldur Jósepsson, Skúlagötu 14, Borgarnesi F: Seimur 87175280 Víðivöllum- fremri M: Draumey 85236003 Sveina- tungu Sköpulag: 7,83 Hcefileikar: 7,99 Aðaleinkunn: 7,93 Knapi: Marjolyn Tiepen, Arbæjarhjáleigu Hrvssur 5 vetra Þóra 95235813 Skáney, Reyk- holtsdal, rauð Fyrsti og núverandi eigandi: Bjarni Marinósson, Skáney F: Skinnfaxi 91155195 Þóreyj- arnúpi M: Blika 86235800 Skáney Sköpulag: 8,14 Hœfileikar: 8,00 Aðaleinkunn: 8,06 Knapi: Haukur Bjarnason, Skáney Hrvssur 6 vetra Mýkt 94235474 Vestri- Leirárgörðum, rauð Fyrsti eigandi: Garðar Þorsteins- son, Galtalind 1 Eigandi nú: Karen Líndal Mart- einsdóttir, V-Leirárgörðum F: Hrappur 89136761 Leirulæk M: Svarta-Stjarna 78257587 Stokkhólma Sköpulag: 7,81 Hœfileikar: 8,40 Aðaleinkunn: 8,16 Knapi: Jón Gíslason Hrvssur 7 vetra og eldri Isbjörg 92237501 Olafsvík, leirljósblesótt Fyrsti og núverandi eigandi: Stefán Kristófersson Stekkjarhóli 7, Ólafsvík F: Kolfinnur 81187020 Kjarnholt- um M: Rjúpa 4881 Steðja Sköpulag: 7,68 Hœfileikar: 8,78 Aðaleinkunn: 8,34 Knapi: Vignir Jónasson, Reykja- vík Stóðhestar 4 vetra Flygill 96135467 Vestri- Leirárgörðum, grár Fyrsti og núverandi eigandi: Marteinn Njálsson, V- Leirárgörðum F: Kolfinnur 81187020 Kjarnholt- um M: Frægð 89235466 Vestri- Leirárgörðum Sköpulag: 7,78 Hœfileikar: 8,56 Aðaleinkunn: 8,25 Knapi: Jón Gíslason Stóðhestar 5 vetra Grímnir 95135715 Oddsstöðum Fyrsti og núverandi eigandi: Sigurður Oddur Ragnarsson, Oddsstöðum F: Dagur 84187003 Kjarnholtum M: Grána 6870 Oddsstöðum Sköpulag: 7,99 Hœfileikar: 8,29 Aðaleinkunn: 8,17 Knapi: Gísli Gíslason, Þingeyrum Stóðhestar 6 vetra og eldri Snerrir 94149841 Bæ, Stranda- sýslu, jarpnösóttur Fyrsti eigandi: Þórarinn Ólafsson, Bæl Eigandi nú: Þórarinn Ólafsson, Bæ I og Snerrisfélagið F: Svartur 88176100 Unalæk M: Fiðla 73288780 Kirkjubæ Sköpulag: 8,33 Hœfileikar: 8,13 Aðaleinkunn: 8,21 Knapi: Olil Amble, Selfossi Eigendur hrossanna. Talið frá vinstri: Stefán Kristófersson, Sigurður O. Ragnarsson, Marteinn Njálsson, Bjarni Marinósson, Karen Líndal Marteinsdóttir og Þorvaldur Jósefsson. Á myndina vantar eiganda Snerris frá Bæ.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.