Bændablaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 11

Bændablaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 16.janúar 2001 BÆNDABLAÐIÐ II Fyrir skemmstu fór hópur ráðunauta, dýralækna og starfsmanna annarra stofnana landbúnaðarins til Nj'ja Sjálands til að kynna sér þarlenda búskaparhætti. Ferðin var farin að frumkvæði Hagsmunafélags ráðunauta. Hér eru svipmyndir úr þeirri ferð sem bæði var fróðleg og skemmtileg að sögn þeirra sem fóru. Myndirnar tók Guðmundur Jóhannesson hjá Búnaðarsambandi Suðurlands. Fjórhjól sem viðkomandi bóndi hafði útbúið þannig að hann gat ekið beint yfir girðingar án þess að vera með hlið á þeim. Hér prófar Þorsteinn Ólafsson tækið. Nýja Sjáland er víða hæðótt en grasi vaxið. Víða er þétt beitt og hér má sjá nýsjálenskar mjólkurkýr á beit. 200 kýr í halarófu reknar á bæinn. Dádýrahjörð. Girðingarnar eru 2 metrar á hæð og ekki veitir af. ai'«'4>)ev.'Aw«' tnsrteV ■ Bændur á netínu í lauslcgri könnun sem Bænda- blaðið gerði meðal bænda sem eru með nettengingu kemur í ljós að netsamband til sveita er allt frá því að vera mjög lélegt upp í að vera sæmilegt. Nánast þeir einu sem eru verulega ánægðir með netsambandið hjá sér hafa komið sér upp ISDN- tengingu og segjast ekki einu sinni líkja því saman hvernig það var áður en hún kom til. Vandamálið sem menn lenda yfirleitt í á netinu til sveita er að það gangi einfaldlega mjög hægt að skoða vefsíður en einnig hefur nokkuð borið á því að tengingar hafi slitnað fyrirvaralaust. Þá er einnig nokkuð um að erfitt sé að hringja inn á netið, einkum á ákveðnum tíma dags sem er þá aðallega eftir hádegi fram að kvöldmat. Menn eru hins vegar ekki í vandræðum með að taka á móti hefðbundnum tölvupósti. Hér koma nokkur dæmi um það sem bændur höfðu að segja um netsambandið: Guðmundur Jón Guðmundsson, Holtsseli. Netsambandið er alveg dýrðlegt núna eftir að Landssíminn gerði mér kleift að fá ISDN-tengingu. Smáauglýsingar Bændablaðsins Sími 563 0300 Plastristar Margar tegundir og styrkleikar fyrir nautgripi, kindur og svin VÉLAVAL-Varmahlió w Simi 453 8888 Fax 453 8828 Veffang www.velaval.is Netfang velaval@velaval.is En áður en það kom var þetta al- veg skelfilegt. Það tók 1-2 mínútur bara að hringja inn og það tók óratíma að hlaða inn venjulegum heimasíðum. Tengingin var ein- faldlega léleg. Kristín Linda Jónsdóttir, Miðhvammi: Netsambandið er bara nokkuð gott héma en kannski geri ég ekki eins miklar tæknilegar kröfur og aðrir. Mér finnst þetta ekki mjög seint og ég lendi ekki í miklu veseni. Ég veit hins vegar að víða eru menn í vandræðum. Einu vandræðin sem ég lendi í er að ég á erfitt með að komast inn á vissum tímum, eink- um seinni part dags. Ég nota netið hins vegar aðallega á kvöldin þeg- ar fleiri línur virðast vera lausar. Oddur Gunnarsson, Dagverðareyri: Netsambandið er prýðilegt núna eftir að Landssíminn gerði mér kleift að nota ISDN-tengingu. En áður en hún kom til var sambandið hins vegar slæmt. Það gekk hægt að skoða vefsíður og tengingin átti það til að slitna fyrirvaralaust. Jórunn Svavarsdóttir, Drumboddsstöðum: Netsambandið er mjög hægt hjá mér en ég er að vísu nteð gamla tölvu og er ekki viss hvort orsakar- innar sé að leita í tölvunni eða net- sambandinu. Ég lendi líka stund- um í því að sambandið slitnar fyr- irvaralaust þegar ég er að skoða vefsíður. Yfirleitt er hins vegar vandræðalaust að komast inn en þó koma stundir þar sem ég kemst alls ekkert inn. Sigríður Bragadóttir, Síreksstöðum: Netsambandið hér um slóðir er slæmt. Það gengur afar hægt að skoða vefsíður en venjulegur tölvupóstur gengur vel. Sem dæmi um slæmt netsamband þá tekur það mig sex mínútur að borga einn reikning í heimabankanum. Ég hef hins vegar ekki lent í að tenging slitni en veit dæmi þess hjá fólki sem tengt er annarri netþjónustu en ég. ------------------------------------1 Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri auglýsir fyrstu námskeið ársins 2001 JANÚAR 19.-21. janúar Frumtamning „Samspil manns og hests“ V-Húnavatnssýslu 26.-28. janúar Frumtamning „Samspil manns og hests“ Suðurland 27.-28. janúar Járningar og hófhirða V-Húnavatnssýslu FEBRÚAR janúarlok Búbót- bókhaldsforrit V-Húnavatnssýslu 1.-2. febrúar Skipulagning og útdráttur vegna grisjunar Austurland 2.-3. febrúar Járningar og hófhirða Hvanneyri 9.-11. febrúar Upp í tölt V-Húnavatnssýslu 14. febrúar Beiðslisgreining Skagafjörður 15. febrúar Beiðslisgreining Eyjafjörður 16. febrúar Beiðslisgreining S-Þingeyjarsýsla 15.-16. febrúar Ræktun Castor Rex feldkanína Hvanneyri 16.-18. febrúar Frumtamning „Samspil manns og hests“ A-Skaft. 22.-24. febrúar Málmsuða I Hvanneyri Nýr endurmenntunarbæklingur með lýsingum námskeiða er væntanlegur innan nokkurra daga. Nánari upplýsingar og skráning: Sími: 437 0000, fax: 437 0048, tölvupóstur: lbh@hvanneyri.is Sjá einnig upplýsingar á heimasíðu: www.hvanneyri.is

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.