Bændablaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 5

Bændablaðið - 16.01.2001, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 16.janúar 2001 BÆNDABLAÐIÐ 5 í Bú 2000 Dómnefndin að störfum. F.v. Pétur Pétursson, Sigurður Sigurðarson og Jói í Stapa. Á BÚ 2000 - landbúnaðar- sýningunni nú í sumar, var haldin botnakeppni á vegum Friggjar í Garðabæ og vora vegleg verðlaun í boði fyrir 10 fyrstu sætin. Þrír fyrripartar voru lagðir fram og gat fólk síðan botnað. Mikil þátttaka var og hér koma svo úrslit keppninnar. Fyrsta sæti hlaut Bjöm Þór- leifsson skólastjóri á Akureyri, hann botnaði svo: Gæðin trygg hjá gömlu Frigg gleðja hygginn svanna. Þá hún liggur þreytt og stygg í þrifum bygginganna. Annað sætið hlaut Guðbjörg Karlsdóttir Gautsdal A-Barða- str.sýslu, hún botnaði svo: Vörur bestar býður Frigg, botna skaltu þetta vers. Alltaf gæðin eru trygg allir landsmenn njóta þess. Þriðja sætið hlaut Katrín Árnadóttir Hlíð Gnúpverjahreppi, hún botnaði svo: Húsmóðir sem vörur velur veit þau gæðin trygg. hundrað prósent sem að selur Sápugerðin Frigg. Fjórða sætið hlaut Skúli Gunn- laugsson Miðfelli 4 Flúðum, hann botnaði svo: Húsmóðir sem vörur velur veit þau gæðin trygg. Af lipurð þær með sóma selur Sápugerðin Frigg. Síðan datt niður í mjólkurbrúsann uppstytta frá Andrési Magnússyni í Hveragerði: (Víxlhend oddhenda) Vekur yndi auga mynd eftir hráan þráa, er flæsa í skyndi af fjallatind flæmir gráan ráa. (Hringhenda) Hækkar sól við heiðarbrún heyskapstólin bíða, eftir róli um akra og tún á gúmmíhjólum skríða. (Slikluvik) Loksins syngur sveitin öll, suðar skringilega. Búmenn slyngir snoða völl snýst í hringi hersing öll. Þökkum við Andrési fyrir þetta. Frigg vill þakka öllum þeim sem sendu inn botna og vonar að þessi keppni hafi ýtt undir kveðskap og vísnagerð, og skorum við á fleiri að halda slíkar keppnir. Einnig þakkar Frigg þeim heiðurs- mönnum úr kvæðamannafélaginu Iðunni, Sigurði Sigurðarsyni dýra- lækni og Jóa í Stapa kærlega fyrir þeirra störf í dómnefnd. Pétur Pétursson, Frigg Garðahœ. Svona var í Skagafirði í síðustu viku Fegurð dagsins fyllti lund fráleitt spillti mjöllin. Vetrarsólin gyllti grund geislar hylltu fjöllin. Við erum ekki alveg vissir um höfundinn en teljum að hann búi á Hólum. Gott ef einhver vildi gefa okkur upp nafn á höfundi og helst í bundnu máli.. BÚVÉLADEKK í MIKLU ÚRVAL AKUREYRI, S. 462-3002 FELLABÆ, S. 471-1179 BÚVÉLASAFNIÐ Hvanneyri - Borgarfiröi Kentárinn ___________________Lj_I__ Centaur-dráttarvélin dró nafn sitt af mannhestinum og er afar hugvit- samlega hönnuð vél: Mótorþunginn hvílir á drifhjólum vélarinnar og ekillinn situr aftarlega og sér því vel yfir verkið. Jóhannes Reykdal, bóndi og verksmiðjueigandi á Setbergi við Hafnarfjörð, keypti Centa- ur-dráttarvél árið 1927 og notaði í nokkur ár. Síðar var hún gefin verkfærasafninu á Hvanneyri er seinna varð Búvélasafnið. Vélin var 10 hestöfl. Henni fylgdi sláttuvél af McCormic-gerð, en ýmis önnur verkfæri mátti tengja við hana, svo sem plóg og snúnings- og múgavélar. Centaur-vélarnar sem til landsins komu urðu aðeins innan við tíu að tölu. Þær voru mikið notaðar á Korpúlfsstöðum og urðu hálfvegis einkenni hins tæknivædda búreksturs Thors bónda Jensen. Myndin sýnir einmitt „Kentár" að heyskap þar á bæ nokkru fyrir miðja síðustu öld. Það var hann Jón Thors sem færði Búvélasafninu myndina ásamt verðmætum bæklingi um þessar sérstæðu búvélar. Bj.Guðm. Erímup hehirorðið Jól og áramót eru liðin, ný öld er gengin í garð. Vafalaust fara heilsuræktarstöðvar að auglýsa til fólks nauðsyn þess að ná af sér aukakílóum sem komið hafa yfir hátíðamar. Þegar þessi orð eru sett á blað er verið að kynna nýja skýrslu sem segir okkur að ástand hafsins umhverfis ísland sé með því besta sem þekkist, mengun sé í lágmarki. Þetta fannst Grími ánægjuleg tíðindi. Vafalaust segja margir ‘’þetta vissum við nú fyrir”. Bændur halda þvf fram að þeir framleiði hér á landi einhverjar hreinustu og bestu landbúnaðarafurðir sem fáanlegar eru. A sama tíma skelfur öll Evrópa vegna kúaiiðuplágunnar. Nýjustu tíðindin eru að Ástralía og Nýja Sjáland hafa bannað allan innflutning á nautakjöti frá Evrópu. Skömmu áður en Grímur hlustaði á þetta í útvarpi og las svo í Mogga hafði hann einmitt keypt írskt nautakjöt fyrir aldna frænku sína. Sú gamla hafði nefnilega krafist þess að fá írskt kjöt, en hún er sigld sú gamla og gengur á dönskum skóm. Nú fór Grímur aldrei þessu vant að hugsa, vissulega átti hann að erfa þá gömlu en var þetta ekki „too much” eins og segir í alþýðlegu, innfluttu jólakvæði sem sungið er fyrir öll jól nútildags? Heimur viðskiptasamninga er undarlegur og ekki öllum ljós. Grímur gerir sér grein fyrir takmörkunum sínum en hann vissi ekki betur en að Ástralía og Nýja-Sjáland ættu aðild að GATT og WTO. Var ekki um tíma bannað að flytja nautgripaafurðir frá Bretlandi upp á fastalandið í Evrópu? Er það tilfellið að yfir 100 kúariðutilfelli hafi verið staðfest á írlandi á síðasta ári? Grímur heyrði það á dögunum í heita pottinum í sundlauginni að eðlilegt væri að það yrði upplýst hvaða búðir seldu írskt kjöt - og þar fyrir utan allt það kjöt sem kæmi í verslanir og væri ættað af þekktum kúariðusvæðum í Evrópu. Og pottveijar sögðu líka undarlegt að ekki heyrðist múkk í formanni Neytendasamtakanna sem ekkert aumt má sjá án þess að stíga á það og meiða meira. Það er þessi grafarþögn sem pirrar Grím. Heyrði einhver raust landlæknis? Hvar voru fjölmiðlar landsins þegar Grímur og fleiri hröðuðu sér út í búð og keyptu kjöt frá riðulandinu Irlandi? I gegnum tíðina hefur loftfréttamaðurinn Omar hraðað sér á milli landshluta til þess að mynda ársprænur og gamalt skrítið fólk - en hvorki hann né stéttarbræður hans voru nærri þegar innflutta kjötið kom í búðir. Enginn áhugi á málinu. Grímur sagði frænku sinni frá kjötinu og ættemi þess og vika leið án þess að tíst heyrðist frá þeirri gömlu og Grímur fór að velta því fyrir sér hvort kúariða væri bráðdrepandi. En svo hringdi frænka og sagði stundarhátt að hann væri að ganga í norðangarra á sunnudaginn. Og niðurstaðan? Auðvitað á frænkan og aðrir rétt á að vita hvað þeir em að borða - hvaðan maturinn kemur og hvaða kröfur em gerðar til innflutningsins. Það er alveg ljóst og Grímur veit það mætavel, að innflytjendur hafa ekki nokkum áhuga á að til landsins komi vara sem á sér vafasaman uppmna. Þeir kaupa bara það besta og jafnvel kjötbita sem gömul menningarþjóð á borð við Egypta neitar að kaupa frá írlandi... af því að þar grasserar kúariða. Einu sinni ... uAaUUBAH B BJBUU3>| jpUBJBAJJÁJ ‘!UÁssjB>|sp ;snu6B|/\| jb n6uo| j6jBUJ JjJÁJ Uj>(3) JBA puAuj jSSBc)

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.