Bændablaðið - 16.01.2001, Side 9
Þriðjudagur 16. jauúar 2001
BÆNDABLAÐIÐ
9
Grímur
líttu þer
nær!
í annars ágætu Bændablaði er einn
þáttur sem stundum hefur vakið
upp spurningu um tilgang. Það er
pistillinn Grímur hefur orðið.
Kannski er hér reynt að lfkja eftir
þeim félögum Dagfara í DV eða
Garra í Degi, en með ákaflega
lélegum árangri.
I 20. tbl. fjallar Grímur um
neikvæð skrif ónefnds stjórnar-
andstæðings sem með neikvæðni
sinni geti hugsanlega „eyðilagt og
skemmt annars heilbrigt efna-
hagslífÞetta er auðvitað voða-
legt ef satt reynist en gott er til
þess að vita að málgagn Bænda-
samtakanna er á verði gagnvart
slíkum niðurrifsmönnum. En er
neikvæður málflutningur ein-
göngu stundaður af þeim „sem eru
í andstöðu við stjórnvöld og
líklega máttarvöld að auki“?
Mér finnst að Grímur þurfi ef
til vill ekki að fara svo langt til að
finna hliðstæðu, eða hvað dettur
honum fyrst í hug þegar andlit
Bændasamtakanna kentur upp í
hugann? Er það brosandi andlit
sem flytur jákvæðar fréttir af
ástandinu í landbúnaði eða er mál-
flutningurinn ef til vill svipaður og
hjá stjórnarandstæðingnum sem
fer svo mjög í taugarnar á Grími?
Hafa áhyggjur bændaforystunnar
urn að bændur séu að offjárfesta í
vélum og húsum farið fram hjá
Grími svo að ekki sé nú minnst á
síendurtekið tal um að kúabændur
kaupi kvótann alltof dýru verði?
Ef þessi atriði hafa farið fram hjá
honum vil ég benda á frásögn af
fundi á Akureyri í 20. tbl. Bænda-
blaðsins á bls. 14 og 15 en ekki er
beint hægt að segja að bjartsýnin
ein ráði þar ríkjum. Þegar horft er
til framtíðar verður að vera hæfi-
leg bjartsýni, annars dregur svart-
sýnin allan mátt úr mönnum og
engar framfarir eiga sér stað. Hins
vegar verður samhliða bjart-
sýninni að hafa alla gát á, enda er
bændum langflestum það fullljóst
að þær fjárfestingar sem farið er út
í eru alfarið á þeirra eigin ábyrgð
og enginn kemur til hjálpar ef illa
fer. Hlutverk stjórnmálamanna og
ekki síður forystumanna bænda er
að búa landbúnaðinum ákveðin
ytri skilyrði sem bændum er ætlað
að vinna eftir, að öðru leyti taka
bændur eins og aðrir aðilar í
rekstri afleiðingum gjörða sinna.
Að lokum vil ég segja við Grím
þennan að hann þarf ekki að hafa
minnstu áhyggjur af því að missa
vinnu sína, því að það hefur ekki
tíðkast í Bæn(d)ahöll að segja upp
starfsfólki jafnvel þótt það komist
á aldur eins og hann veit manna
best sjálfur.
Með nýárskveðju.
Guðmundur Lárusson
Stekkum
Um leið og Bbl. óskar GL
gleðilegs nýárs er rétt að eftir-
farandi komi fram. A síðasta
áratug hefur um tíu manns, sem
starfaði hjá Búnaðarfélagi Islands
(nú Bændasamtökum Islands) eða
Framleiðsluráði landbúnaðarins
verið sagt upp störfum. Enginn
starfsmaður Bændasamtakanna
hefur verið á launaskrá BI né Fr.l
eftir að hafa náð hámarksstarfs-
aldri amk. síðastliðin 15 ár. Þess
má geta að Grími hefur verið gerð
erein fyrir þessu!
Ritstj.
„Árdegið kallar,
áfram liggja sporin “*
Landbúnaður á nýrri öld
Guðni Ágústson landbúnaðarráðherra boðartil almennra umræðufunda
um framtíð landbúnaðar á íslandi á eftirtöldum stöðum:
Fimmtudagur 25. janúar:
kl. 14.00 Miðgarður, Skagafirði
20.00 Hótel KEA, Akureyri
Fimmtudagur 1. febrúar:
kl. 14.00 Hótel Kirkjubæjarklaustur
20.00 Þingborg, Árnessýslu
Fimmtudagur 15. febrúar:
kl. 14.00 Sævangur, Strandasýslu
20.00 Dalabúð, Búðardal
Landbúnaðarráðuneytið
* Úr aldamótaljóði Hannesar Hafstein
A' DeLaval
HITAVATNSKÚTAR
Lágmúli 7
108 Reykjavík
sími 588 2600,
VÉIAVERP,ax 588 2601
Ryðfríir að utan og innan
Sérúttak í þvottavél
Hámarkshiti 95°C
Áreiðanlegir, öruggir og
endingargóðir
Sérhannaðir fyrir
mjólkurframleiðendur
Stillanlegur
blöndunarventill
Sér heitavatnsúttak f
þvottavél „95°C”
"Urhskíptanleg
taeringarvörn
Ytra byröi úr
ryðfríu stáli
„Polyurethane" einangrun
án umhverfiseyðandi efna
Innra byrði úr ryðfríu stáli
Hltaelement
Oryggisventill'