Bændablaðið - 26.02.2002, Qupperneq 4
4
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 26. febrúar 2002
Nám fyrir veiðileiðsögumenn
Margip bændur gætu
haft atvinnu af leiösögn
við ár ng vötn
- segir Bjarni Júnsson, lUnrOurlandsdeild VeiOimðlastnfnunar aO Húlum
Margir bændur hafa verulegar tekjur
af sölu veiðileyfa eða leigutekjum frá
leigutökum. Þær tekjur eru þó aðeins hluti
veltunnar í kringum veiðina. Rekstur
veiðihúsa og virðisauki við sölu veiðileyfa
skilar verðmætum en síðast en ekki síst þá
borga margir veiðimenn vel fyrir veiðil-
eiðsögn. Með vaxandi fjiilda erlendra
veiðimanna hér á Iandi hefur þörfin fyrir
fólk sem getur gefið góða veiðileiðsögn auk-
ist. Veiðileiðsögn er hins vegar að mestu í
höndum utansveitarmanna. Með því að
fjölga því fólki sem getur gefið lciðsögn við
ár og vötn í sínu heimahéraði er
stuðlað að því að meira af þeim
fjármunum sem verða til í tengslum
við veiðina verði eftir í héraði og
styrki þar búsetu.
“Margar ástæður eru fyrir því
að heimafólk kemur ekki meira að
leiðsögn í heimahéraði. Leigutakar
tjalda gjarnan fólki sem þeim
stendur nær af höfuðborgar-
svæðinu og leggja sig ekki nægjan-
lega eftir því að fá til starfa hcima-
fólk við veiðivötnin. Þrátt fyrir góða
staðþekkingu vantar fólk hvatningu
og tækifæri til að komast af stað
sem leiðsögufólk. Reynsla, mála-
kunnátta og sambönd skipta miklu
máli fyrir þá sem vilja leggja þennan
starfa fyrir sig. Það vantar einnig
hefðina og jafnvel stuðninginn heima fyrir.
Þessu er hægt að breyta. Það er tímabært
að boðið verði með skipulegum hætti upp á
nám og þjálfun fyrir veiðileiðsögumenn.
Veiðivertíðin gæti orðið góð búbót fyrir
marga bændur sem störfuðu við leiðsögn.
Veiðin skildi meira eftir sig í sveitunum og
styrkti þar búsetu,” segir Bjarni Jónsson,
Norðurlandsdeild Vciðimálastofnunar að
Hólum.
Hvaó þarftil ?
“Veiðileiðsögumenn þurfa að hafa
reynslu af stangveiði en það er margt fleira
sem gerir fólk að góðum veiðileiðsögu-
mönnum. Góð staðþekking og lipurð í sam-
skiptum og þjónustu er hér lykilatriði, eins
og í annarri ferðaþjónustu. Að geta
brugðist við óvæntum uppákomum, slakri
veiði eða slæmu veðri þannig að það besta
sé gert úr hlutunum, jafnvel með annarri
afþreyingu. Þekking á einkennum við-
komandi vistkerfa og hvaðeina er varðar
veiðistofna áa og vatna er nokkuð sem
marga veiðileiðsögumenn vantar í dag.
Slíkt á eftir vaxa að mikilvægi, ekki síst
fyrir þá sem þjónusta erlenda stangveiði-
menn. Þeir sem sinna erlendum veiði-
mönnum þurfa jafnframt að hafa þokka-
lega tungumálakunnáttu. Það sem til þarf
fyrir þá bændur sem vilja taka að sér
veiðileiðsögn er grunnur til að komast af
stað og tækifæri til að öðlast reynslu.”
Frumkvœði og samstarf lykilatriði
“Til þess að skipulegt nám fyrir veiði-
leiðsögumenn verði að veruleika þurfa
margir aðilar að taka höndum saman.
Mikilvægt er að Landsamband veiðifélaga
taki hér ákveðið frumkvæði með fulltingi
Bændasamtakanna og Landbúnaðarráðu-
neytisins.
Búnaðarháskólinn á Hvanneyri og
Hólaskóli eru best til þess fallnir í sam-
vinnu við Veiðimálastofnun að þróa og
bjóða upp á slíkt nám. Einnig geta komið
að því fleiri aðiiar, svo sem einstök
veiðifélög, stangvciðimenn, leigutakar og
fyrirtæki sem sérhæfa sig í þjónustu við
stangveiðimenn, ekki síst
varðandi veiðiþjálfun. Það má
hugsa sér ýmsar leiðir við
framkvæmd námskeiða sem ættu
það þó sameiginlegt aö bændur
gætu tekið þau samfara búskap.
Svo sem með því að taka nokkra
daga í senn yfir lengri tíma.
Grundvallaratriði er hér aö
væntanlegir leiðsögumenn fái
tækifæri til að öðlast reynslu sem
veiðimenn.
Hér er um mikið hagsmuna-
mál að ræða og tímabært að átak
sé gert í því að efla veiðileiðsögn
sem tekjuleið fyrir bændur sem
búa við hin fjölmörgu veiðivötn
landsins,” sagði Bjarni.
Kyotobókunin og kolefnis-
binding með landgnædslu
Á 7. aðildarþingi loftslagssátt-
málans, sem haldið var í
Marokkó haustið 2001, var
ákveðið hvernig staðið skuli að
framkvæmd Kyotobókunarinnar.
Þar var m.a. ákveðið hvers
konar kolefnisbindingu aðildar-
ríki bókunarinnar geta talið
fram í bókhaldi sínu um losun
gróðurhúsalofttegunda. Þessar
niðurstöður opna mikla mögu-
leika fyrir íslendinga í tengslum
við kolefnisbindingu með land-
græðslu og skógrækt.
Talið er að uppsöfhun svo-
kallaðra gróðurhúsalofttegunda í
lofthjúpnum geti valdið miklum
breytingum á veðurfari í heiminum.
Koltvísýringur, CO^, sem stafar
frá bmna eldsneytis og landhnignun,
veldur um ^/3 þessara áhrifa á
lofthjúpinn. Með samþykkt Kyoto-
bókunarinnar árið 1997 var iðn-
ríkjunum úthlutað losunarkvóta
yfir gróðurhúsalofttegundir, og á
losun þeirra á ámnum 2008-2012
að vera að meðaltali 5,2% minni
en 1990.
Tvær meginleiðir em til að
koma í veg fyrir hættu á loftslags-
breytingum af mannavöldum;
draga úr útblæstri gróðurhúsaloft-
tegunda með öllum tiltækum
ráðum og skila hluta af kol-
tvisýringnum aftur til jarðar með
aukinni gróðurræktun. Gróðurinn
umbreytir koltvísýringnum í lífræn
efni sem geymist að stómm hluta í
jarðvegi og undirstaða ffjósemi
jarðar. Styrkur koltvísýrings í
lofthjúpnum er nú þegar það hár að
þessi leið er óhjákvæmileg sam-
hliða því sem dregið er úr loft-
mengun.
Ovissa hefur ríkt um stöðu
landgræðslu gagnvart Kyoto-
bókuninni. Nú liggur það hins
vegar ljóst fyrir að telja megi kol-
efnisbindingu með landgræðslu,
skógrækt og stjóm beitilanda,
skóga og akra með í bókhaldi
gróðurhúsalofttegunda gagnvart
Kyotobókuninni. Þessi ákvörðun
staðfesti möguleika aðildarríkja
bókunarinnar á því að mæta hluta
af skuldbindingum sínum með kol-
efnisbindingu.
Kolefnisbinding er sjálfgefinn
hluti allra verkefna sem auka gróður,
svo sem landgræðslu og skógrækt.
Aukin kolefnisbinding í tengslum
við Kyoto bókunina gæti því
skapað góð sóknarfæri til að bæta
landkosti, efla atvinnu í sveitum
landsins, auðvelda framkvæmd
gæðastýringar í landbúnaði og
tryggja fæðuöryggi landsmanna í
ffamtíðinni. Með slíkum verkefnum
leggja íslendingar einnig sitt af
mörkum i vemdun loftslags á
jörðinni. Mikilvægt er að land-
búnaðurinn eigi stórt hlutverk í
kolefnisbindingu og leggi sitt af
mörkum í stefnumótun stjómvalda
um ffamkvæmd Kyotobókunarinnar.
/AA/Landgr. ríkisins.
Guðmundur
Jónsson,
iyrverandi
skúlastjnri 100 ára
Hinn 2. mars nk. verður Guð-
mundur Jónsson, fyrrverandi
skólastjóri á Hvanneyri, 100
ára. Guðmundur á sér langan
og merkan starfsferil. Hann
varð kennari við Bændaskólann
á Hvanneyri árið 1928 og skóla-
stjóri árið 1947 og gegndi því
starfl til ársins 1972 að hann fór
á eftirlaun. Á kennaraárum
sínum var hann jafnframt for-
stöðumaður Búreikningastofu
ríkisins.
Sama árið og Guðmundur varð
skólastjóri var stofnuð framhalds-
deild við skólann. Það var há-
skólanám í búfræði, hið fyrsta í
þjónustu atvinnuvegar hér á landi.
Hlutur Guðmundar i að byggja
það upp og verja verður seint
fullmetinn.
Eftir að Guðmundur fór á
eftirlaun, að loknu erilssömu en
farsælu starfi, helgaði hann starfs-
krafta sína ritstörfum og bóka-
útgáfu. Hann ritstýrði m.a. bóka-
flokknum „Bóndi er bústólpi"
sem kom út í sjö bindum, ritstýrði
ritinu íslenskir búfræðikandidatar
í tveimur útgáfum árin 1974 og
1985 og tók saman mikið rit „Skrá
um rannsóknir í landbúnaði 1965-
1980“ sem kom út árið 1998.
Guðmundur var kjörinn
heiðursfélagi Búnaðarfélags ís-
lands árið 1972.
Bændablaðið flytur Guðmundi
Þjónustumiðstöð
fyrir Massey
Ferguson og Fendt
dráttarvélar
Viðgerðir og
varahlutaútvegun
Byggjum á yfir 35 ára
reynslu
MF Þjónustan ehf
Grænumýri 5b,
270 Mosfellsbæ
Sími: 566-7217,
fax: 566-8317
Netfang: traktor@isl.is