Bændablaðið - 26.02.2002, Page 10
10
BÆNDABLAÐIÐ
Þriðjudagur 26. febrúar 2002
Nýja bókhaldskerfið verður boðið í þremur misöflugum útgáfum.
Notendur geta einnig valið á milli einmennings- og fjölnotaútgáfu.
Innan skamms verður verðskrá birt á heimasíðu Bændasamtakanna.
dkBúbót byggist að grunni
til á dk viðskipta-
hugbúnaðinum frá dkRetis
ehf. í Kópavogi en hefur
þó verið aðlagað að
þörfum bænda. Kerfið
nýtir sér alla kosti
Windows kerfa og býður
upp á góða yfirsýn og
fjölbreytta valmöguleika.
Greining á niðurstöðum
bókhaidsins á hverjum
tíma er leikur einn með
kerfinu.
dkBúbót er Windows kerfi til að aðstoða bændur við færslu bókhalds og framtalsgerð. dkBúbót kemur á markað næstu daga. Kerfið
tekur saman virðisaukaskattskýrslur samkvæmt innfærðu bókhaldi búsins og býður upp á að útbúa skattskýrslu, hvort sem er
landbúnaðarframtal (RSK 4.08) eða rekstrarframtal (RSK 1.04) fyrir árið.
Fjárhagur
Grunnur fjárhagsins hefur
að geyma bókhaldslykla
og dagbækur til að skrá
og bóka hreyfingar.
Öflugar uppflettivinnslur
auðvelda allar
fyrirspurnar- og
leitaraðgerðir. Færslur
má rekja þangað sem
þær enda, í fjárhag, eða
til upprunans í hvaða
undirkerfi sem er.
Nýir bók-
haldslyklar
Með dkBúbót koma
uppsettir bókhaldslyklar
og búgreinar. Búið er að
endurskoða
bókhaldslyklana sem
notendur eldri Búbótar
(dos) þekkja. Búið er að
bæta við ýmsum
bókhaldslyklum er varðar
hliðarbúgreinar eins og
garðyrkju, ferðaþjónustu
og ýmsa
verktakastarfsemi.
Innskráning
Mikilvægur hluti
fjárhagsins er innskráning
á fylgiskjölum. Við
hönnun á dkBúbót hefur
mikil áhersla verið lögð á
að gera þessa vinnslu
sem þægilegasta til að
auðvelda innslátt.
Notandi stofnar dagbók
(færslubók) og gefur
henni síðan heiti sem lýsir
innihaldi dagbókarinnar.
Allar uppflettingar og
fyrirspurnir eru til
fyrirmyndar í dkBúbót.
Haldið er vel utan um
allar færslur og hvernig
þær urðu til. Almennar
uppflettingar eru þannig
að skoða má hreyfingar á
t.d. einstökum
bókhaldslykli, skuldunaut,
lánardrottni eða vöru.
Afmarka má við nánast
hvað sem er, svo sem
dagsetningu, eindaga,
tilvísun eða fleira.
Skýrslur
Ýmsar fjárhagsskýrslur fyrir
stjórnendur, eins og árs-
reikning, sundurliðun árs-
reiknings, sjóðstreymi og
má prenta á prentara eða
skjáinn. Möguleiki er að
skoða þessar skýrslur með
samanburði við önnur
bókhaldstímabil eða fjár-
hagsáætlanir.
í dkBúbót er haldin ná-
kvæm skrá yfir allar eignir
búsins og á grundvelli
hennar eru reiknaðar út
afskriftir og endurmat og
það síðan bókað inn í fjár-
haginn. Ýmsar skýrslur má
prenta út, svo sem eigna-
skýrslu og fyrningarskýrslur
Greining á
framlegð
í dkBúbót er að finna
mjög öfluga
framlegðargreiningu. Sjá
má framlegð einstakra
búgreina og
framlegðarstig. Prenta
má út ýmsar
framlegðarskýrslur.
Skuldunautar
Skuldunautakerfið heldur
nákvæma skrá yfir alla
skuldunauta og viðskipti
þeirra. Það uppfyllir allar
helstu kröfur sem gerðar
eru til slíks kerfis í dag
varðandi skráningu á
grunnupplýsingum og
aðgengi upplýsinga.
Lánadrottnar
Lánadrottnakerfið heldur
nákvæma skrá yfir alla
lánadrottna og viðskipti
við þá. Það uppfyllir allar
helstu kröfur sem gerðar
eru til slíks kerfis í dag
varðandi skráningu á
grunnupplýsingum og
aðgengi upplýsinga.
Sölu-
reikningar
Sölukerfið er öflugt
stjórntæki við alla
sölumennsku. Það
uppfyllir allar helstu kröfur
sem gerðar eru til slíks
kerfis í dag varðandi
skráningu á
grunnupplýsingum,
aðgengi upplýsinga og
prentun á reikningi.
Birgðir
Birgðakerfið heldur utan
um lager og geymir
birgðasögu fyrirtækisins.
Það uppfyllir allar helstu
kröfur sem gerðar eru til
slíks kerfis í dag varðandi
skráningu á
grunnupplýsingum,
aðgengi að upplýsingum,
kostnaðarútreikning og
sölugreiningu.
Laun
Launakerfið heldur utan
um öll laun og launatengd
gjöld. Það uppfyllir allar
helstu kröfur sem gerðar
eru til slíks kerfis í dag
varðandi skráningu á
grunnupplýsingum,
aðgengi upplýsinga.
Öflugt hjálpartæki fyrir íslenska bændur
Félagið Handverkskonur milli heiða 10 ára:
Hefur eíll og styplrt búsetu á svæðinu
Fyrir 10 árum stofnuðu konur í
Háls-, Bárðdæla- og Ljósavatns-
hreppi félag sem fékk nafnið
„Handverkskonur milli heiða",
og er þar miðað við Fljótsheiði
og Vaðlaheiði. Nú hefur konum í
Reykdælahreppi verið boðið að
koma með í félagsskapinn vegna
þess að þessir hreppar eru aó
sameinast i eitt sveitarfélag. I
félaginu eru um eitt hundrað
konur. Markmið þessarar félags-
stofnunar var að sameina konur
í framleiðslu og sölu á hvers
konar íslenskum minjagripum,
listmunum og handverksmunum
af ölium tegundum. Konurnar
stofnuðu ári síðar hlutafélagið
Goðafossmarkað, sem annast
söluna yfir sumarmánuðina í
verslun að Fosshóli í Ljósavatns-
hreppi í S.-Þingeyjarsýslu.
„Allt sem selt er á Goðafoss-
markaðnum er handunnið af
félagskonunum, en síðan hafa
nokkrir karlmenn líka selt hjá okkur
sínar vörur. Goðafossmarkaðurinn
tekur vörumar í umboðssölu. Þar
er á boðstólum úrval af peysum og
öðrum prjónavörum. Mikið er líka
unnið af munum úr horni og beini
að, ógleymdum trévörunum.
Sömuleiðis eru á markaðnum
skartgripir og ýmis konar nytja-
hlutir, svo sem steikarhnífar með
sérstökum tré- eða jafnvel
beinsköftum. Einstaka sinnurn hefúr
fólk náð í hvaltennur til að vinna
úr, og þá frekast skartgripi," segir
Kolbrún Bjamadóttir frá Ystafelli í
Kinn, en hún
er formaður
markaðsins.
Skiptir okkur
utiklu
Hún segir
að félagið og
Goðafoss-
markaðurinn
skipti konumar
mjög miklu
máli, bæði
hvað varðar
afkomu og
ekki síður
félagslega.
„Það sjá allir
sem koma út í
hinar dreifðu
byggðir að
landbúnaður
er að dragast
saman. Þar
að auki
vélakostur
sveitum
orðinn það
mikill að
færri hendur
þarf til starfa en áður. Urn leið er
tæplega nóg fyrir konuna að gera á
búinu og hún finnur sér ekki al-
mennilega stað. En með þvi að
fara út í þetta hjá okkur skapar hún
sér atvinnu, aflar fjár
og nýtur félagsskapar.
Félagið okkar hefúr því
geysilega mikið að
segja fyrir samfélagið," segir
Kolbrún.
Hún segir að hver kona vinni
sín verk heima en síðan séu haldnir
vinnufundir. Konumar skipta sér
niður í hópa og hefur hver hópur
sína hópstým, sem kallar saman
fundi. Sumir hópanna koma sarnan
á tveggja vikna fresti en aðrir
Konurnar framleiða
ótrúlega fallega
hluti.
þegar talin er þörf á að hittast.
Kolbrún segir fjölda kvenna
hafa umtalsverðar tekjur af fram-
leiðslu sinni og nefnir hún þar
sérstaklega handprjónakonumar.
Nokkrar konur stunda glerlist og
em þeirra gripir eftirsóttir og færa
þeim nokkrar tekjur. Ein kona er
með leirbrennslu og selur vel. „A
Goðafossmarkaðnum má eiginlega
finna allt sem nöfnum tjáir að
nefna á sviði handverks og
listiðnaðar," segir Kolbrún Bjama-
dóttir.
Styrkir búsetu á svceðinu
Helga Erlingsdóttir í Landa-
mótsseli er oddviti Ljósavatns-
hrepps og hefur verið ein af
forystukonum i félaginu Handverk
milli heiða, enda ein þeirra þriggja
sem beittu sér fyrir stofnun þess.
Hún segir engan vafa leika á því að
starfsemi félagsins og Goðafoss-
markaðurinn styrki búsetu á
svæðinu.
Hún segir margar konur hafa af
þessu umtalsverðar tekjur en aðrar
séu með til að sýna samstöðu og
sér til gamans og ánægju. „Þegar
við fómm af stað með þetta fann
ég strax fyrir því hve félagið var
mikilvægt fyrir samfélag kvenna á
svæðinu. Nú er búið að sameina
þau þrjú sveitarfélög sem konumar
komu úr í byrjun og ég efa ekki að
félagið okkar hefur haft þar áhrif.
Og nú er fjórði hreppurinn,
Reykdælahreppur, að koma þar inn
og því er konum þar boðin inn-
ganga í félagið okkar," segir
Helga Erlingsdóttir.