Bændablaðið - 26.02.2002, Síða 11
Þriðjudagur 26. febrúar 2002
BÆNDABLAÐIÐ
11
Hér má sjá fallið sem kaldvigtað vó 459,5 kg. Til samanburðar er t.h.
„íslenskt" naut sem vó 323,5 kg. /Bbl.Óli Þór
Stærsta nautið sem hefur
verifi iellt i slðturhúsi SAH
Fyrir nokkrum dögum var afar
stóru nauti slátrað í sláturhúsi
Sölufélags A-Húnvetninga. Um
var að ræða 26 mánaða
Límósínblending, en fallið af
honum vó hvorki meira né
minna en 459,5 kg. Eigendur
bola voru hjónin Eymundur
Þórarinsson og Sigríður Sveins-
dóttir, bændur á Saurbæ í
Skagafirði.
Sigríður sagði að þau hefðu
sent þrjú naut í sláturhúsið að
þessu sinni og þessi blendingur
hafi verið þyngstur. Þau hjón eiga
nokkra Límósínkálfa og segir
Sigríður það korna strax í ljós hvað
þeir eru stærri en aðrar kálfar og
vaxi hraðar. „Þessi tarfur okkar er
sá stærsti sent við höfum átt og sá
stærsti sem lagður hefur verið inn
hjá Sölufélagi A-Húnvetninga,"
sagði Sigríður Sveinsdóttir.
Ógiftir íslendingar á aldrinum 35 - 39
gætu fengið 200 g bita af dönskum bola
Þegar Baldur Helgi Benjamínsson var á Agromek sýningunni I Danmörku
leitaði hann uppi staersta nautið á svæðinu. Þessi boli er sex vetra, af
Simmentalkyni og vegur 1.756 kg. Aftan við nautið - i öruggri fjarlægö má sjá
Jón Elvar Hjörleifsson, kúabónda á Hrafnagili i Eyjafjarðarsveit. Jón er ríflega
meðalmaður á hæð þannig að Ijóst má vera að nautið er ekkert smáflykki. Eftir
sýninguna var Baldur Helgi að reikna það út sér til gamans að ef kjötprósentan
á tarfmum væri 55% mætti bjóða 4.829 manns í mat - og fengi hver og einn
200 g. Gestafjöldinn samsvarar því að öllum íþúum á Seltjarnarnesi yrði þoðið -
eða öllum ógiftum islendingum á aldrinum 35-39 ára!!!!!!!!!!!!!!
Lágmörk á landsmóti
Ákveðin hafa verið lágmörk
kynbótahrossa inn á Landsmót
hestamanna sem Italdið verður á
Vindheimameium 2-7 júlí nk.
Lágmörkin eru eins og fyrir
síðustu landsmót nema hvað sú
breyting er að mörkin fyrir elstu
flokka kynbótahrossa hækka
nokkuð frá því sem verið hefur.
Með því móti ætti fjöldi kyn-
bótahrossa að vera u.þ.b. 200
miðað við reynslu síðustu ára.
Mörkin má sjá í meðfvlgjandi
töflu.
Rétt er þó að geta þess að
heimildir eru fyrir því að lækka
mörkin ef sýnt þykir að lítil þátt-
taka fáist en það er engin ástæða til
þess að ætla að svo verði. Það er
talið mjög mikilvægt að sýna góða
breidd í kynbótahrossunum á
landsmótum og með endurbótum í
ljósi reynslunnar frá LM 2000 í
Reykjavík má auðveldlega skipu-
leggja sýningardagana með þeim
Aldur Hryssur Hestar
4 7.85 7.95
5 7.95 8.05
6 8.00 8.20
7 v.o.e. 8.10
hætti að mikill fjöldi góðra hrossa
komi fram án þess að fólk fái á því
leið eða þyki dagskráin ofhlaðin.
/ÁS.
Vatnsrör - Hitaveiturör
Alhliða lagnaefni
fyrir íslenskan landbúnað
Aðrennslisrör
Fyrir vatnsaflsstöðvar
og smærri virkjanir.
Plast vatnsrör
Fyrir flutning á heitu og köldu
vatni, snjóbræðslu og jarðvegshitun
Hitaveiturör - stá
Foreinangruð stálrör í
plastkápu fyrir hitaveitulagnir.
Hitaveiturör - PEX plas
Foreinangruð hitaþolin PEX plaströr
fyrir hitaveitur. Tilvalið í sumarhúsahverfi
Stálrör
Svört stálrör og suðufittings
til lagna og í smíði.
Annað efni frá SET
Kúlulokar fyrir hitaveitur, hliðlokar fyrir vatnsveitur,
brunahanar, spjaldlokar fyrir vatns- og fráveitur,
flangstengi, koparfittings, plastsuöufittings,
plastrafsuðufittings, samskeytahólkar, krumpmúffur
og þenslustykki.