Bændablaðið - 26.02.2002, Blaðsíða 24
24
BÆNDABLAÐIÐ
Þnðjudagíir Í2 'jú'iíi 2001
SauHIMr
II Miliim
Stofnfundur félags áhugamanna
um sauðfjársetur á Ströndum
var haldinn í félagsheimilinu
Sævangi í Kirkjubólshrcppi
sunnudaginn 10. þessa mánaðar.
„Ég er feikilega bjartsýnn á að
þetta gangi upp og menn virðast
taka vel í verkefnið,” sagði Jon
Jónsson á Kirkjubóli, einn for-
göngumanna um stofnun sauð-
fjársetursins, en þrjátíu manns
gengu í félagið á ftindinum. „At-
vinnuþróunarfélag Vestfjarða ætlar
að aðstoða okkur við undirbúning
og áætlanagerð fyrir heilsárs-
vinnustað sem við vonum að geti
orðið í framtíðinni."
Hlutverk sauðfjársetursins er
meðal annars að skapa atvinnu á
svæðinu og treysta byggð, styrkja
menningarlíf og mannlíf, auk þess
að vinna markvisst að jákvæðri
kynningu á sauðfjárbúskap. Þá
verði félaginu heimilt að hafa
samstarf við einstaklinga, fyrir-
tæki, félög, stofhanir, sveitarfélög
og ríki.
Nokkrir aðilar hafa nú þegar
ákveðið að styrkja starfsemina.
Þar á meðal eru landbúnaðarráðu-
neytið, héraðsnefnd Strandasýslu
og Kirkjubólshreppur.
Anna Karlsdóttir lektor við
Landbúnaðarháskólann á Hvann-
eyri hélt erindi og vakti meðal
annars athygli á því að vaxandi
áhugi væri á menningartengdri
ferðaþjónustu og að uppbygging
menntunar í dreifbýli væri
mikilvæg.
Stjóm félagsins skipa: Jón
Jónsson þjóðfræðingur á Kirkju-
bóli er formaður og meðstjóm-
endur em Matthías Lýðsson bóndi
í Húsavík og Sverrir Guðbrands-
son á Hólmavík.
Stefnt er að því að opna
sýningu um sauðfjárbúskap fyrr og
nú um miðjan júní næstkomandi
og er áætlaó að hafa sýninguna
opna að sumrinu. „Við höfúm
fengið Sævang til afnota fyrir
sýninguna næstu fimm sumur, en
félagsheimilið er litið nýtt á þeim
tíma árs," sagði Jón./G.F.
LANDSTÚLPI
- Fjós eru okkar fag -
• Weelink fóðrunarkerfi
• Innréttingar og básadýnur
- ath! bæði i legubásafjós og básafiós.
• Steinrimlar og flórsköfukeríl í gripahús
• Veitum aðstoð og ráðgjöf við hönnun fjósa
- hafið samband, við mætum á staðinn
• Loftræstingar
- í nýjar og eldri byggingar
Lárus
s: 437 0023 / 869 4275
Arnar Bjarni
s: 486 5656/898 9190
Surair komast aOeins
á nei á nóttunni!
Víða urn land eiga bændur í
hinum mestu erfiðleikum viö að
vinna á netinu vegna lítillar
burðagetu símalína. Þetta á rneðal
annars við um Dalasýslu, en sumir
bændur á þeim slóðum verða að
vinna á netinu á nóttunni eða fyrir
klukkan átta á morgnana. Hörður
Hjartarson bóndi í Vífilsdal segist
vinna á netinu á nóttunni, þvi það
þýði varla fyrir sig að reyna að ná
sambandi á daginn. „Við emm bara
með venjulegar símalínur og
flutningsgeta þeirra er ekki meiri en
þetta. Allir þekkja mslpóstinn sem
sendur er út á netinu. Það kemur off
fyrir að ég þarf að hringja og fá
aðstoð við að fleygja honurn úr
pósthólfinu því hann stöðvar allan
aðgang að netinu hjá mér. Annað
dæmi get ég nefnt sem er að
símanúmerabirtirinn á símanum hjá
mér er óvirkur. Það er ekki hægt að
tengja hann vegna lélegs
símasambands og tæknilegra
örðugleika. Það hafa komið menn
frá símanum til að reyna að tengja
hann en þeir segja að það sé ekki
hægt. Svona er nú ástandið í
símamálum víðast hvar i
Dölunum,'” segir Hörður. Hann
segir að menn voni að ástandið
batni irtnan skamms því búið sé að
leggja ljósleiðara að tengiskúr sem
er á svæðinu, en hvenær hann
verður tengdur segist Hörður ekki
vita.
„Hér hjá okkur er nær vonlaust
að reyna að vinna á netinu eflir
klukkan átta á morgnana þar til
seint á kvöldin eða nóttunni. Ef
maður kemst á netið á daginn er
nær öruggt að sambandið slitnar,”
segir María Líndal í Neðri-
Hundadal. Hún segir mikinn
kostnað fylgja því að netið er svona
seinvirkt og nefhir sem dæmi að
hún tók inn skattaforrit í gegnum
netið og það tók 6 klukkustundir að
hlaðast inn hjá henni. Sams konar
forrit var ekki nema 20-30 mínútur
að hlaðast inn í Búðardal.
„Ástandið er svona víðast hvar í
Dölunum, nema hjá þeim sem em
allra næst þessum svokölluðu
tengiskúrum. Við erum ekki nema
svona 8 til 10 km. frá tengiskúr og
samt er ástandið svona hjá okkur.
Ástæðan fyrir þessu er fýrst og
fremst sú að símalínumar em svo
lélegar og hafa alltof litla
burðagetu," segir María Líndal.
Ordóra hefur sannað nlldi sitt
„Notkun Örflóru hefur vaxið
jafnt og þétt hjá bændurn, og ég
tek eftir því að sá sem einu sinni
prófar efnið fær sér annan brúsa,"
sagði Guðmundur Jón Guðmunds-
son bóndi í Holtaseli í Eyja-
fjarðarsveit í samtali við Bænda-
blaðið. Hann gerði á sínum tíma
tilraunir með efnið áður en viður-
kenning fékkst á þvi frá yfír-
dýralækni. Síðan hafa menn verið
að þreifa sig áfrarn ineð hvemig
best sé að nota efnið við mis-
munandi aðstæður. Örflóra er rot-
hvati, blanda af loftháóum og loft-
fælnunt lifandi örvemm sem hafa
verið sérstaklega einangraðar og
ræktaðar vegna hæfni þeirra til að
mynda ensím. Örflómnni er blandað
saman við mykju og hún vinnur
gegn samloðun hennar en veldur
ekki hitamyndun. Hana má einnig
nota í rotþrær, niðurföll, skólp-
leiðslur, fituskiljur, fitutanka og
salemi, jafnt úti sem inni.
Minni fluga íJJósinii
Trausti Kristjánsson á Syðri-
Hofdölum i Skagafirði hælir Ör-
flórunni. Hann segir æskilegt að setja
efnið í haughúsin þegar tiltölulega
lítið er í þeim eins og gjaman er á
haustin. Örflóran kemur í veg fyrir
myndun harðra köggla en ef þeir em
komnir í homin þá tekur það
nokkum tíma fýrir Örflómna að
vinna á þeim. Trausti nefhir líka
aðra eiginleika efhisins. Annars
vegar hve vel það eyðir lykt og svo
hitt að það er mun minni fluga í
fjósunum yfir sumarið hjá þeim sem
nota Örflóruna. Miðað við venju-
legan rothvata i rótþrær er Örflóran
ódýr að sögn Trausta Kristjánssonar.
Það er Véla- og skipaþjónustan
Framtak sem flytur Órflómna inn.
Ai DeLaval
HITAVATNSKÚTAR
Ryðfríir að utan og innan
Sér úttak í þvottavél
Hámarkshiti 95°C
Áreiðanlegir, öruggir og
endingargóðir
Sérhannaðir fyrir
mjólkurframleiðendur
Stillanlegur
blöndunarventill
Sér heitavatnsúttak
þvottavél „95°C"
Umskiptanlég _______
tæringarvörn
Ytra byrði úr L
ryðfríu stáli
2Polyuretháhe”'einahgrun
án umhverfiseyöandi efna
Innra byrði úr ryðfríu
Hitaelement
TSryggisventill'
Lágmúli 7
108 Reykjavík
sími 588-2600,
fax 588-2601
Akureyri
JitEÁáAýjLLb'lÉ'.- SÍmL461 -4007
Til sölu
notaðar
vélar
Fiat 88-95, Alö 640
ámoksturstæki, árg. 1993,
4WD, 3000 Vstd. Verð kr.
1.250.000 án vsk.
Case 885, Vetö F-15
ámoksturstæki, árg. 1989,
4WD, 3500 Vstd. Kr. 690.000
án vsk.
CLAAS ROLLANT 46, 1,8 m
sópvinda, Netbindibúnaður.
Kr. 925.000 án vsk.
Case 695 XL, Árg. 1991,
4WD, 3000 Vstd. Kr. 710.00
án vsk.
Welger RP 12, árg. 1991. Kr.
290.000 án vsk.
Krone 130, breið sópvinda,
árg. 1997. Verð kr. 725.000
án vsk.
Ingvar Helgason hf
Sævarhöfða 2
Sími: 525 8000