Bændablaðið - 26.02.2002, Side 25

Bændablaðið - 26.02.2002, Side 25
Þriðjudagur 15. maí 2001 BÆNDABLAÐIÐ 25 Islenski hestnrinn seiddi Pétun Behrens til fslands „Ástæðan fyrir því að ég kom til íslands fyrir 40 árum var íslenski hesturinn. Ég heillaðist af honum og sú aðdáun hefur ekkert dvínað. Það er ekkert eitt heldur allt við íslenska hestinn sem veld- ur þessari aðdáun minni. Hann er einfaldlega besti hesturinn í veröldinni,” segir Pétur Behrens, hrossaræktandi og myndlistarmaður á Höskuldsstöðum í Breiðdal, í samtali við Bændablaðið. Hann hef- ur frá því hann kom til íslands unnið við tamn- ingar og hrossarækt, auk myndlistarinnar. Pétur er fæddur í Þýskalandi og var um tvítugt þegar hann kom til íslands. Svo vel talar hann íslenskuna að ókunnugum sem heyra hann tala dettur ekki annað í hug en að hann sé íslendingur. Það er ekki sjálfgefið að útlendingar nái svona góðum tökum á íslenskunni, jafnvel þótt þeir búi hér í áratugi. En Pétri þykir það eðlilegt. „Það væri nú annað hvort að mynd. Það er vandasamt að ná fram færslu hverrar fótahreyfmgar hjá hestinum. Það tók langan tima að ljúka verkinu. Hins vegar var að mínum dómi nauðsynlegt að gera svona mynd þannig að kennarar, bæði hér á landi og erlendis, gætu notað hana til að kenna nemendum sínum mun- inn á gangtegundum íslenska hestsins. Ég veit að myndin hefur komið að gagni þegar menn hafa verið að útskýra tölt og skeið. Fólk sem sér tölt og skeið í fyrsta sinn, verður undrandi og spyr hvað þetta sé. Þá er gott að útskýra það með teikningum. Það reynist oft betur en að nota ljósmyndir." Pétur segir að þó hann teikni og máli mikið af hestamyndum einskorði hann sig ekki við það, hann máli hvað sent er eins og aðrir myndlistarmenn. Hann hefur haldið málverkasýningar í Reykj- avík og sem stendur er hann með sýningu á nýju kaffihúsi á Breiðdalsvík sem heitir Kaffi maður tali málið eftir 40 ára dvöl í landinu. Þeir sem ekki gera það leggja sig ekki fram við að læra íslenskuna. Ég er búinn að búa hér svo lengi að ég man varla eftir að hafa búið í Þýskalandi," segir Pétur. Hestar og myndlist Pétur og kona hans, Marietta Maissen, eru bæði myndlistar- menn auk þess að sjá um hrossa- ræktina og tamningar á sínum hestum. Þau eru með um 40 hross á Höskuldsstöðum. Það var eins með Mariettu og Pétur að aðdáun hennar á íslenska hestinum varð til þess að hún kom til íslands. Hún ólst upp við islenska hesta ffá blautu bamsbeini, þar sem hún átti heima í Sviss. Pétur gerir mikið af því að teikna íslenska hestinn. Hann teiknaði hið fallega merki Fengs, en ef til vill er frægasta verkið hans mynd sem hann teiknaði af öllum gangtegundum íslenska hestsins. Sú mynd er tær snilld. „Ég skal játa að það kostaði töluverða yfirlegu að teikna þá Margrét. Útlendingur í Þýskalandi Pétur var spurður hvort það hafi aldrei hvarflað að honum að flytjast aftur út til Þýskalands. „Það hvarflaði að mér tvö eða þrjú fyrstu árin en aldrei eftir það. Nú orðið þegar ég fer til Þýska- lands finnst mér ég eiginlega vera útlendingur. En auðvitað hef ég haldið móðurmáli mínu við. Og við erum með þannig blandaðan búskap hér á Höskuldsstöðum að við vinnum að myndlist, ræktum og temjum hross og vinnum að þýðingum úr og á þýsku. Við sjáum um að þýða allan texta í þýsku útgáfuna af Eiðfaxa. Við er- um líka í samstarfi við mann sem heitir Philip Vogler og er frá Texas, en er með þýðingarþjónustu á Eg- ilsstöðum og vinnur fyrir mjög marga. Hann tekur að sér þýðingar á og úr hinum ýmsu tungumálum og við sjáum að stórum hluta um þýskuna. Þetta fer allt afskaplega vel saman," segir listamaðurinn, hestamaðurinn og þýðandinn FRAMLEIÐNISJÓÐUR /7 LANDBÚNAÐARINS ',L' AUGLÝSIR Framleiðnisjóður landbúnaðarins styður með styrkjum og lánum verkefni til nýsköpunar og framleiðniaukningar í landbúnaði og við aðra eflingu atvinnu í dreifbýli, sbr. lög nr. 89/1966. Framleiðnisjóður leggur áherslu á að fjármagn sjóðsins verði til viðbótar frFmlögum frá ábyrgðaraðilum verkefna, bæði eigin fjár og því sem þeir kunna að afla frá öðrum. Framleiðnisjóður leggur á árinu 2002 áherslu á viðfangsefni sem hafi þessi markmið: a. að auka framleiðni búgreina með rannsókna- og þróunarverkefnum b. að styrkja tekjumöguleika á einstökum búum með nýsköpun í búrekstri c. að efla kunnáttu og færni í búrekstri d. að efla og styrkja markaði fyrir búvörur og þjónustu búa e. að styðja hagræðingu í úrvinnslu búsafurða og efla atvinnufyrirtæki í dreifbýli. Mikilvægt er að í umsókn sé • markmið verkefnis sett fram með skýrum og mælanlegum hætti, • sýnt fram á faglega og fjárhagslega möguleika umsækjanda til þess að leysa verkefnið af hendi, • glögg grein gerð fyrir kostnaði við verkefnið og hvernig það skuli fjármagnað; einkum er mikilvægt að gera grein fyrir eigin framlagi umsækjanda til verkefnisins, • sýnt fram á fýsileika verkefnis og áætlaðan ábata af því á fyrirsjáanlegum tíma. Framleiðnisjóður landbúnaðarins áskilur sér rétt til þess • að meta með sjálfstæðum hætti getu umsækjenda til þess að standa undir fyrirætlunum sínum og taka tillit til hennar við úthlutun styrkja (einkum hvað snertir faglega kunnáttu/færni á sviðinu og fjárhagslega burði/möguleika/stöðu), • að meta framvindu og árangur verkefnis sem styrkur hefur verið veittur til og haga greiðslu hans samkvæmt niðurstöðu slíks mats. í því sambandi er styrkþegum skylt að veita sjóðnum þær upplýsingar sem hann telur sér nauðsynlegar í allt að fimm ár frá lokaúthlutun. Umsóknum skal skilað til skrifstofu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Engjaási 2 - 310 Borgarnes, á umsóknareyðublöðum sem þar fást. Umsóknareyðublöð fást einnig á skrifstofum búnaðarsambandanna og á heimasíðu sjóðsins, veffang: www.fl.is. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Engjaási 2, 310 Borgarnes. Sími 430-4300 / myndsími 430-4309 / netfang fl@fl.is Umboðsaðili á íslandi: Pharmaco Hörgatúni 2, 210 Garöabær Sími 535 7000

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.