Bændablaðið - 16.04.2002, Blaðsíða 1
7. tölublað 8. árgangur Þriðjudagur 16. apríl 2002 ISSN 1025-5621
Raunlækhun
búvttrverös á öllum
nioröurlttndunum
Á blaðsíðu 10 er fjallað um þróun
búvöruverðs á Norðurlöndunum á
árunum 1990 til 2000. Fram
kemur að búvörur hafa hækkað
mun minna en vísitala neyslu-
verðs. Hér er því um að ræða
hlutfallslega lækkun. Athylgi
vekur að á þessu tíu ára tímabili
hefur launavísitala á Islandi
hækkað um 67,2% en íslenskar
búvörur liafa á sama tíma hækkað
um 17,6%.
Fyrir alþingi liggur nú frumvarp
til laga um breytingar á
búvörulögum, sem felur í sér
lögfestingu aðlögunarsamnings
um starfsskilyrði garðyrkjunnar
sem gerður var í vetur.
Frumvarpið gerir ráð fyrir heimild
til landbúnaðarráðheija að semja
við Bændasamtök Islands, eða
aðra aðila, um framkvæmd
beingreiðslna líkt og í öðrum
búgreinum. Framkvæmdin verður
kynnt nánar þegar alþingi hefur
afgreitt frumvarpið.
Einkaljósleiðari
Sóknarpresturinn í Gnúpverja-
hreppi greiddi tæpar 10
milljónir til að komast í
ljósleiðarasamband. Sjá bls. 4
Sieingrímnr staBfesd
stóra sannleik
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra svarar Steingrími J.
Sigfússyni. Sjá bls. 6
Listsýning ó vefnum
Brátt getur handverks- og
listafólk í sveitum landsins
sýnt verk sín á vefnum
landbunaður.is sem ætlar að
opna „gallerí” sem gæti orðið
til þess að auka sölu á lista- og
handverksvörum. Sjá bls. 9
Dregið hefur
ór markaskoðun
i slóturhósum
Gunnar Sæmundsson í Hrúta-
tungu og Olafur R. Dýnnunds-
son fullyrða að dregið hafí úr
markaskoðun í sláturhúsum
vegna spamaðar. Skylda að
lesa af ör- og frostmerkjum á
hrossum í sláturhúsum. Sjá
bls. 13 og 23
Hannes Magnússon heitir ungur fjárbóndi á Eystri-
Leirárgörðum í Leirársveit. Hann er með 350-360 fjár í fjárhúsi
sem byggt var 1998. Hannes og faðir byggðu húsið en teiknistofa
Bændasamtakanna teiknaði. Efnis- og byggingarkostnaður - fyrir
utan vinnu þeirra feðga - nam átta milljónum króna. Húsið er 15 x
27,3 m. En Hannes er ekki einungis sauðfjárbóndi því hann er að
læra vélvirkjun og vinnur hálfa vinnu utan bús að auki. En hvernig
gengur að láta dæmið ganga upp? „Það er bara að vakna fyrr á
Þórólfur Sveinsson, formaóur LK um framleiðslumálin
morgnana,“ segir Hannes glaðbeittur.
Hannes kemur í húsið tvisvar á dag. í því er öll nýjasta tækni og
auðvelt fyrir einn mann að gefa kindunum. Gjafagrindurnar í
húsinu voru keyptar hjá fyrirtækinu Vírneti í Borgarnesi. í loftinu
er hlaupaköttur en greipina smíðuðu þeir feðgar. Sauðburður hefst
af alvöru þann 10. maí og þá fer Hannes í sumarleyfi og vinnur
iíklega allan sólarhringinn í einar tvær til þrjár vikur.
Líklega gneitt fyrin prútein úr allri umframmjólk á verðlagsárinu
„Ekki hefur um árabil orðið jafn mikil
aukning í sölu á mjólk og mjólkurvörum og
undanfama mánuði. Þegar greiðslumark var
ákveðið fyrir tæpu ári var því spáð að
próteinþörf verðlagsársins kallaði á 106
milljónir lítra mjólkur. Miðað við síðustu 12
mánuði þá er salan komin í 108 milljónir
lítra,“ sagði Þórólfur Sveinsson, fomiaður
Landssambands kúabænda á aðalfundi
kúabænda á Suðurlandi. Eins og kunnugt er þá
hefur mjólkuriðnaðurinn þegar ákveðið að
kaupa prótein úr þremur milljónum lítra af
umframmjólk. Þórólfur sagðist ekki sjá annað
en greitt yrði fyrir prótein úr allri umfram-
mjólk á verðlagsárinu.
„í ljósi þess að kúm hefur fækkað talsvert
og búið er að breyta ráðstöfun beinna
greiðslna þá hef ég ekki ástæða til ætla annað
en bændur reyni nú að fá eins mikla mjólk úr
kúnum og unnt er. Við virðumst þurfa á allri
þeirri mjólk að halda sem kýmar geta framleitt
þetta verðlagsárið," sagði Þórólfur. Innvigtun í
mánuðunum september til og með mars er
ofurlítið minni en á sama tímabili í fyrra.
Greiðslumark er nú einni milljón lítra hærra en
var þá, og í ljósi góðrar sölu er þörf fyrir
prótein úr umframmjólkinni á innanlands-
markaði eins og áður sagði. C-greiðslur verða
nú í fyrsta skipti greiddar á mjólk innlagða í
júlí og ágúst og breytir það forsendum
verulega að sögn Þórólfs.
Á næsta stjómarfundi LK verður fjallað
um ráðstöfun beinna greiðslna og greiðslu-
mark næsta verðlagsárs. „Nú liggur fyrir að
greiðslumark næsta árs mun hækka," sagði
formaðurinn en bætti við að á þessari stundu
væri erfitt að spá um hvort hækkunin næmi
einni eða tveimur milljónum litra. Varðandi
ráðstöfun beinna greiðslna sagði Þórólfúr að
aðalmálið væri að nota C-greiðslumar til að
tryggja jafna innvigtun, en fari hún niður í 7
milljónir lítra þá er hún einfaldlega of lítil
miðað við þörf markaðarins. Verð á greiðslu-
marki hefur lækkað umtalsvert frá sama tíma í
fyrra og líklegt er að sú þróun haldi áfram við
þessar aðstæður.