Bændablaðið - 16.04.2002, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 16.04.2002, Blaðsíða 8
8 BÆNDABLAÐIÐ Þriðjudagur 16. apríl 2002 Drífa Hjartardóttir 1. þingmaður Suðurlands og formaður landbúnaðarnefndar Hvers vegna á að endursknða Iðg um iniutning dýra? Við upphaf seinna námskeiösins. Talið frá vinstri: Sigurður Frostason, Sauðárkróki; Eyþór Einarsson, Syðra-Skörðugili; Gunnar Rögnvaldsson staðarhaldari á Löngumýri; Elvar Einarsson, Syðra-Skörðugili; Bryndís Bjarnadóttir kennari; Gísli Gunnarsson, Glaumbæ og Jósep Þóroddsson, Sauðárkróki. Bændablaðið/Örn. Matur er mannsins megin Undirrituð, ásamt nokkrum öðrum þingmönnum, hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þings- ályktunar um endurskoðun laga um innflutning dýra. Hinn 11. desember 1994 öðlaðist gildi hér á iandi samningur Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjöl- breytni sem gerður var í Ríó de Janeiró 5. júní 1992 og undir- ritaður af íslands hálfu 12. júní sama ár. Markmið samningsins er að vernda líffræðilega fjöl- breytni, sjálfbæra notkun efnis- þátta hennar og réttláta skiptingu hagnaöar sem stafar af nýtingu erfðaauðlinda. Samkvæmt samn- ingnum er viðurkennt aó aðildar- ríkin eigi fullveldisrétt yfír eigin líffræðilegu auölindum og jafn- framt að þau beri ábyrgð á verndun þessara auðlinda. Undanfarið hefur mikið verið rætt um innflutning á erlendu erfðaefni búfjár og ljóst er að gildandi lög um innflutning dýra eru lítið í takt við ákvæði Ríó- samningsins. Hin norrænu kyn og stofnar nautgripa, sauðfjár, hrossa, geita og alifugla sem hér hafa verið ræktuó þarfnast verndar, m.a. vegna þess að þrjú þessara kynja standa undir hefðbundinni búfjárframleiðslu í landinu og í þeim eru fólgnar verðmætar erfðaauðlindir. Undan- þáguheimildir landbúnaðarráð- herra samkvæmt lögum um inn- tlutning dýra eru alltof rúmar og ekki í samræmi við nútíma- sjónarmið. Helstu atriði sem taka þarf til endurskoðunar eru: 1. Herða þarf skilyrði um innflutning erfðaefnis, einkum þegar það getur leitt til þess að innlendir stofnar veröi undir í samkeppninni og þannig lent í útrýmingarhættu. 2. í gildandi lögum er hvergi minnst á aö íslenskir stofnar og eiginleikar þeirra séu auðlind sem beri að varðveita. í Ríó- samningnum eru hugtökin líf- fræðileg auðlind og erfðaauðlind skilgreind og væri rétt að laga íslenska löggjöf til samræmis við þau hugtök. I 6. gr. laga um innflutning dýra er landbúnaðar- ráöherra veitt heimild til að fela búnaðarsamböndum og ræktunar- félögum framræktun kynja. Hug- takið “ræktunarfélag" er hvergi skilgreint í lögum eða lög- skýringargögnum en telja verður nauðsynlegt að það liggi alveg Drífa Hjartardóttir 1. þingmaður Suðurlands og formaður landbúnaðarnefndar Ijóst fyrir hvers konar félög rnegi takast á hendur svo ábyrgðar- mikið starf sem framræktun innfluttra kynja óhjákvæmilega er. 3. Gera þarf meiri kröfur til rökstuðnings fyrir hugsanlegum ábata af innflutningi, en ljóst er aö innflutningur erfðaefnis getur haft verulega neikvæð áhrif á innlenda stofna ef illa tekst til. 4. Gera ætti sérstakt verndunarmat áður en ráðist er í kynblöndun en í 12. gr. laga um innflutning dýra er þess aðeins getið að þess skuli gætt að verðmætir eiginleikar í íslenskum búfjárkynjum tapist ekki við blöndun við innflutt kyn. Tvímælalaust ætti verndunarmat að fara fram á kostnað þess sem fer fram á innflutning erlends kyns. Þá skal á það bent að í lokamálslið 2. mgr. 12. gr. er ráðherra veitt heimild til að setja reglugerðarákvæði uin að aðeins megi nota hið innflutta kyn til einblendingsræktar ef ástæða þykir til. Slíkt verndunarákvæði hefur ekki verið sett og í lögunum er ekki að finna ákvæði sem með virkum hætti vernda innlent erfðaefni í búfé. Með sérstöku verndunarmati væri betur hægt að koma í veg fyrir stórslys á þessuin vettvangi. Slíkt mat gæti m.a. falið í sér ítarlega skoðun á kostum, göllum og eiginleikum erfðaefnis og efnahagslegir hagsmunir vegnir og metnir gagnvart verndarhags- munum til lengri tíma litið. Þá gæti slíkt mat einnig kveðið á um hvemig unnt væri að varðveita hið innlenda erfðaefni sem best í samkeppni við innflutt erfðaefni ef innflutningur yrði leyfður. 5. Setja þarf skýrar reglur urn ábyrgð innflutningsaðila á sjúk- dómum eða erfðagöllum sem fylgt geta innfluttu erfðaefni. Iðnaðarráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um líftækniiðnaó (þskj. 856, 548. mál). í skýringum við 1. gr. frumvarpsins er tekið skýrt fram að það gildi ekki um hagnýtar rannsóknir sent miði að hefð- bundnum kynbótum i land- búnaói. I 9. gr. búnaðarlaga, nr. 70/1998, segir að markmiö bú- fjárræktar sé að tryggja frantfarir í ræktun búfjár í þeim tilgangi að auka samkeppnishæfni íslensks búfjár og búfjárafuróa og að bú- fjárræktin skuli taka mið af skuldbindingum Islendinga um varðveislu líffræðilegrar fjöl- breytni. Markmiðið er ágætt svo langt sem það nær, en efnis- reglur skortir að mestu og hugtakanotkun er ekki samræmd við Ríó-samninginn. I frumvarpi sem landbúnaðar- ráðherra hefur lagt fram á Alþingi urn breytingu á búnaðar- lögum (þskj. 485, 350. mál) eru lagðar til breytingar 16. gr. Iaganna sem fjallar um erfðanefnd búfjár. Hugtakanotkun í því frumvarpi víkur nokkuð frá Ríó- samningnum og frumvarpi iðnaðarráðherra um líftækniiðnað og færi best að lög á þessu sviði sættu heildarendurskoðun hið fyrsta. Á Löngumýri í Skagafirði var um langt skeið rekinn hús- mæðraskóli þar sem ungar stúlkur fengu tilsögn í flestum þeim listum sem verðandi húsfreyjur þurftu að kunna. Kvennaskólarnir gegndu ekki einungis menntunarhlutverki, heldur voru og ákjósanleg gull- náma fyrir unga karla í konu- leit. Mörg hjónabönd má því rekja til þess tíma og ekki síst þess samgangs sem var milli bændaskólans á Hólum og Löngumýrar. Tímamir hafa breyst og ekki er sjálfgefið að húsmæður telji að þeirra eini rétti staður sé eldhúsið, Nýlega undirrituðu Garð- yrkjuskólinn, ísgraf ehf. og tími sé til þess kominn að karl- menn leggi sitt af mörkum við heimilshaldið. Til að mæta þessari þörf var skömmu fyrir síðustu jól boðið upp á matreiðslunámskeið fyrir „sjálfstæða karlmenn“ Löngumýri. Áhersla var lögð á hefðbundinn heimilismat sem hentaði fyrir útivinnandi menn, svo sem bændur. Viðbrögðin voru mjög góð og fýlltist námskeiðið um hæl, en kennari var Bryndís Bjamadóttir á Ytra-Skörðugili. Þótti námskeiðið heppnast svo vel að boðið var upp á annað í síðasta mánuði og er Iíklegt að framhald verði á námskeiðum af þessu tagi næsta vetur. /ÖÞ. Loftmyndir ehf. samstarfs- samning um kennslu og rannsóknir byggðar á gögnum og gagnagrunni fyrirtækjanna sem þau heimila skólanum að nota endurgjaldslaust. Einnig var samþykkt verkáætlun um ýmis verkefni tengd uppsetningu og notkun búnaðarins við kennslu og endurmenntun. Samningurinn er tvískiptur, annars vegar afnot af loftmynda- og hæðarlínu gagnagrunni Loftmynda ehf. sem í dag þekur 60% af öllu Islandi. Hins vegar veitir samningurinn skólanum aðgang að hugbúnaði frá Bentley og InterGraph til stafrænnar vinnslu á landfræðilegum gagnasöfnum. Er ekki að efa þessi rausnarlegi stuðningur fyrirtækjanna muni fela í sér gjörbreytingu á kennslu- möguleikum skólans í stafrænni kortatækni sem mun ekki síst gagnast mjög vel í hinum fjölbreyttu endurmenntunar- námskeiðum skólans, sem og reglulegu námi. bondi.is Arshátíð kúabœnda Miðaverð á árshátíðina er aðeins kr. 3.900,- •Glæsileg þriggja rétta máltíð •Frábær skemmtiatriði. Aðalskemmtikraftar kvöldsins verða þeir félagar Örn Árnason og Karl Ágúst W Úlfsson •Um tónlist og dansleik sér hinn víðfrægi kúabóndi Skúli Einarsson á Tannstaðabakka og hljómsveit hans. jk Veislustjórn: Kristín Linda Jónsdóttir, Miðhvammi í Aðaldal, og Halla Guðmundsdóttir, Ásum í Gnúpverjahreppi. Húsið opnar kl. 19:30 með fordrykk í boði Aburðarverksmiðjunnar hf. Dregnir veröa út veglegir vinningar úr seldum miöum, en miöapantanir fara fram í síma: 563 0300 Ennfremur má panta miöa meö því aö senda tölvu- póst á lk@naut.is MIÐAR SELDIR TIL FÖSTUDAGSINS 19. APRÍL. Gisting á Sögu er á frábæru veröi í tilefni árshátíöarinnar - aðeins kr. 2.790,- á mann. Þeir sem hyggjast panta gistingu þurfa aö gera þaö hjá bókunardeild hótel Sögu í síma 525 9930. Föstudagskvöldið 26. apríl nk. verður haldin árshátíð kúabænda í Súlnasal Hótel Sögu. Frá undirritun samningsins, talið frá vinstri: Karl Arnar Arnarsson frá isgraf, Sveinn Aðalsteinsson skólameistari og Jón Heiðar Ríkharðsson frá Loftmyndum.Bændablaðsmynd: MHH Garðyrkjuskölinn, Loftmyndir og ísgraf gera meO sér samning

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.