Bændablaðið - 16.04.2002, Blaðsíða 13
Þríðjudagur 16. apríl 2002
ni«a ia»nuao
BÆNDABLAÐIÐ
13
wmáÉm
mmm
mmm
Markaskoðun hefur dregist saman vegna sparnaðar:
Ríkari (örf en áður að
markaskoða fé í sláturhúsum
Gunnar Sæmundsson, bóndi í
Hrútatungu og stjórnarmaður í
stjórn Bændasamtakanna, hefur
sett fram gagnrýni á að dregið
hefur úr markaskoðun í
sláturhúsum landsins. „Það er
staðreynd að markaskoðun í
sláturhúsum hefur farið aftur
frá því sem var hér áður fyrr.
Markaskoðunarmenn voru í
öllum sláturhúsunum til að
fylgjast með marki þess fjár sem
verið var að slátra. Það hefur
dregið úr þessu, en er samt
misjafnt milli sláturhúsa. Ég veit
dæmi þess að markaskoðun
hefur verið lögð til hliðar í
sláturhúsi. Ástæðan fyrir því að
dregið hefur úr henni er sú að
sláturhúsin eru að spara. En því
er ég að nefna þetta að ég veit
um mistök í þessum efnum, sem
áttu sér stað vegna þess að
markaskoðun fór ekki fram við
slátrun. Þegar slíkt kemur upp,
eftir að búið er að slátra, vekur
það alltaf leiðinda umtal,“ sagði
Gunnar Sæmundsson í samtali
við Bændablaðið.
Hann bendir á að mannleg
mistök geti alltaf átt sér stað. Því
geti það alltaf gerst að með sláturfé
manna fari lömb sem aðrir eiga.
Markaskoðun eigi að koma í veg
fyrir slík mistök. Gunnar segir að
því verði þetta að vera i lagi og
sláturhúsin verði að hafa marka-
skoðunarmenn í húsunum.
„Það er fyrst og ffemst slátur-
leyfishafanna að sjá til þess að á
staðnum fari ffam markaskoðun og
ef verið er að draga úr henni eða
leggja hana niður verða bændur að
þrýsta á um að hún verði ekki
aflögð," sagði Gunnar Sæmunds-
son.
Ekkert í lögum
um markaskoðun
Olafúr R. Dýrmundsson ráðu-
nautur segir að það hafi verið
Landbúnaðar-
framtal
Bókhðld • Usk.uppgjör
Komdu með pappírana
til okkar og uið
önnumst skrifstofustörfin
fyrir þig.
Census
Skrifstofuþjónusta
^Dugguuogi 17-19 « Sími 568 4468J
Bændablaðið er
áhrifamikill
auglýsingamiðill
Skágrindur
pas^gajaafrii.
VELAVAL-Varmahliö m
Simi 453 8888 Fax 453 8828
Veffang www.velaval.is
Netfang velaval@velaval.is
fastur siður um langt árabil að vera
með sérstakan markaskoðunar-
mann í sláturhúsum landsins. Það
hafi verið talið eðlilegt með tilliti
til marka og eignarhalds.
„Nú bendir margt til þess að i
sumum sláturhúsum sé farið að
slaka á kröfúm til markavörslunnar.
Eg tel það vera mjög miður og sú
spuming vaknar þá eðlilega hvort
ekki sé að frnna ákvæði í lögum
eða reglugerðum þar um. En svo er
því miður ekki. Málið hefur verið
rætt töluvert í sambandi við
landbúnaðarlöggjöfina og ég hef
tekið þátt í slíkum umræðum á
síðustu ámm, en staðreyndin er sú
að það em hvorki laga- né
reglugerðarákvæði til um skyldu
sláturleyfíshafa til að vera með
sérstaka markaskoðunarmenn í
húsunum.
Ríkari þörf en áóur
Eg vil benda á að haldi einhver
því fram að það sé minni þörf en
áður fyrir markaskoðunarmenn, þá
er það mikill misskilningur. Þörfrn
er meiri nú en áður. Það er vegna
þess að sláturhúsunum hefur
fækkað mjög mikið og fyrir
bragðið er farið að flytja féð um
langan veg til slátrunar, jafnvel
landshlutanna á milli og þá verður
ríkari þörf en nokkm sinni fyrir að
vera með markaskoðunarmenn,"
segir Olafur.
Hann segir að þess séu dæmi
að þurft hafi að taka fé i sláturhúsi
sem hafí verið komið þangað í
óleyfí frá öðmm, annað hvort af
misgáningi eða ætlunin hafí verið
að stela því. Hann segist sjálfúr
hafa orðið vitni að slíkum atburði í
sláturhúsi.
„Þess vegna veit ég að þetta
hefúr komið fyrir og getur komið
fyrir. Því tel ég eðlilegt að for-
svarsmenn bænda geri mjög
ákveðnar kröfur um að haldið
verði áfram að markaskoða fé í
sláturhúsum,“ segir Ólafúr R. Dýr-
mundsson.
Mú er rétti timinn
til áð eignast nýjan
john deere trahtori
Af hverju að hanga á gamla traktornum þegar þú getur eignast nýjan
JOHN DEERE SE traktor fyrir jafn hagstætt verð og þér býðst nú?
Við bjóðum núna takmarkað magn JOHN DEERE SE traktora, 90 og 100 ha, fullbúna með blautkúplingu,
kúplingsfríum vendigír, kúplingsfríum þrepagírum, grindarbyggingu ofl. ofl. á sérstöku tilboðsverði.
Taktu af skarið og láttu fara vel um þig í nýjum JOHN DEERE SE traktor. Þú kemst fljótt að því að enginn traktor
jafnast á við JOHN DEERE.
Hafðu samand og tryggðu þér JOHN DEERE SE traktor fyrir vorið. - Takmarkað magn véla í boði.
RS. Við bjóðum hagstætt uppftökuverð fyrir núverandi
traktor þinn - sama hvaða litur er á honum.
.°$0‘
Afar vönduð
og ítarleg
eigendahandbók
á íslensku
fylgir JOHN DEERE
6010 traktorunum
.
ÞOR HF
REYKJAVÍK - AKUREYRI
Jmw&œœ
REYKJAVÍK: Ármúla 11 -sími: 568-1500 - AKUREYRI: Lónsbakka - sími: 461-1070 - www.thor.is