Bændablaðið - 16.04.2002, Blaðsíða 21

Bændablaðið - 16.04.2002, Blaðsíða 21
Þriðjudagur 16. apríl 2002 BÆNDABLAÐIÐ 21 Aðaindur Búnaðar- sambands Suðurlands í næsln viku í Þinghorg Aðalfundur Búnaðarsambands Suðurlands verður haldinn 24. apríl í Þingborg. Sveinn Sigurmundsson, framkvæmda- stjóri, sagði að fundurinn yrði með hefðbundnu sniði en líklega yrði talsverð umræða um lög sambandsins. Taisverð umræða hefur verið um mismunandi vægi fulltrúa þegar kemur að kosningum á aðalfund búnaðar- sambandins og hefur m.a. verið rætt um að félagar í BSSL geri upp við sig í gegnum hvaða aðildarfélag þeir vilji koma að sambandinu, en í dag er hægt að hafa áhrif á fulltrúakjör til aðalfundar eftir því í hversu mörgum félögum menn eru. Laganefnd mun leggja fram hugmvndir að brevtingum sem verða ræddar á aðalfundinum. 1 húsnæði BSSL eru skrifstofur Suðurlandsskóga, Skógrækt ríkis- ins, héraðsdýralæknir og Veiói- málastpfnun. Tilraunastjórinn á Stóra-Ármóti hefur einnig aðstöðu í húsnæði BSSL á Selfossi. Hjá BSSL starfa nú liðlega 20 manns - þar af eru ffjótæknar 5 talsins, ráðunautar eru 8 og starfslið skrifstofu, bændabókhalds og tilraunabúsins ásamt yfírstjóm og bókhaldi fyrirtækjanna mynda afganginn. Á svæði BSSL em rösklega 800 býli en félagar í sambandinu em rétt tæplega 1500. -Hvérnig hafa Sunnu- og Sómayerkéfnin gengió? „Ég er sannfærður um að þau hafa skilað bændum miklu og em komin til að vera. Nú taka 65 bændur þátt í Sunnu en 15 bændur Aðalfundur Búkollu Aðalfundur Búkollu samtaka áhugamanna um íslensku kúna verður haldinn á Hótel KEA á Akureyri laugardaginn 20 apríl n.k. og hefst hann klukkan 13:00. Venjuleg aðalfundastörf. Stjórnin. í Sóma sem er ráðgjafarverkefni fyrir sauðfjárbændur. Auðvitað breytast svona ráðgjafarverkefni stöðugt og í Sunnu emm við t.d. að taka upp svokallaða SMS-hópa. Þar skipuleggja ráðunautar fundina en draga sig svo í hlé og bændumir taka við og ráða gangi fundanna. Þannig geta bændur betur borið saman bækur sínar.“ Fjósbyggingahópurinn - Fjósbyggingahópurinn hefur notið mikilla vinsælda. Hvert er markmióið með honum? „Hann hefur verið í gangi síðustu þrjú árin en markmiðið er að ffæða bændur um það sem er að gerast í fjósbyggingum. Þannig höfurn við t.d. stuðlað að því aö bændur fari til Danmerkur til að sjá það sem danskir bændur em að gera. Einnig höfúm við fengið sér- fræöinga til að flytja erindi á fundum fjósbyggingahópsins og bændur hafa sagt reynslusögur. Síðustu árin hefur nánast orðið bylting í aðbúnaði nautgripa þannig að miklu máli hefur skipt aó fylgjast með. Bændur em að fara af því sem ég kalla "vinnu- stigið” yfir á "tæknistigið”. Það er dýrt að byggja og taka upp nýja tækni og þess vegna reynum við að aðstoða bændur eftir föngum við að gera áætlanir sem standast. Bændur verða að halda vel á spöðunum því hlutimir hafa breyst frá því að búin voru lítil ljölskyldufyrirtæki.” Sínialíitur vandamál - Búnaðarsamband Suðurlands hefur haldið úti heimasíðu um nokkurt skeið. Hver er ykkar reynsla af því? „Tölvunotkun bænda eykst stöðugt og heimasíðan okkar er sniðin að þörfum þeirra, en þama fá þeir upplýsingar um allt það sem er að gerast í landbúnaði. Við emm líka með tengingar í aðrar góðar heimasíður eins og vef Bændasamtakanna. BSSL hefúr efnt til námskeiða fyrir bændur í tölvunotkun og nú mun sambandið taka þátt í verkefhinu “Tölvu- væðing í sveitum” og efna til gmnnnámskeiða fyrir bændur. Ég býst við að þar verði 15 - 20 manns. Okkar vandi er hins vegar sá að víða em lélegar símalínur á svæðinu en þau mál em smám saman að breytast til batnaðar, nú síðast í Gnúpverjahreppi eins og ffam hefúr komið í fréttum. Betra og öruggara samband er forsenda þess að bændur tölvuvæðist.” -Samþykkt búnaðarþings um lækkun búnaðargjalds skerðir tekjur BSSL um tvær milljönir. Hvaða áhrif hefur það á reksturinn? „Reksturinn verður að standa undir sér. Ef hann gerir það ekki munum við annað hvort reyna að auka tekjumar - hugsanlega með aukinni gjaldtöku - eða draga úr útgjöldum.” Líklega koma málefni Stóra- Ármóts til umræðu á aðalfundi BSSL, en eins og kunnugt er rekur BSSL Stóra-Ármót í samvinnu við RALA sem sér um tilraunaþáttinn. „Við höfum viljað breyta fyrir- komulaginu á tilraunastarfinu og fá Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri inn í þetta samstarf. Ég tel líka rétt að ræða þann möguleika að útvíkka þetta enn frekar og fá Bændasamtökin líka til liðs við okkur. Tilraunastjórinn gæti allt eins verið landsráðu- nautur í fóðurfræói og haft kennsluskyldu við LBH. Þannig mætti samþætta kennslu, rann- sóknir og leiðbeiningar,” sagði Sveinn. -En er ekki sérstakt að bún- aðarsamband skuli standa að rekstri bús sem í raun vinnur.fyrir alla bændur landsins? „Jú. þaó er dálítið sérstakt að búnaðarsamband reki tilraunabú sem að sjálfsögðu kemur öllunt bændum landsins til góða. Þegar það var í uppbyggingu lögðu sunnlenskir bændur mikið fé til stöðvarinnar en síðustu fjögur árin hefur starfsemin verið sjálfbær. Afurðatekjur, aðrar tekjur og ffamlög hafa dugað fyrir útgjöldum. Við viljum hins vegar opna þann ntöguleika að fleiri aðilar geti kornið aö rekstrinum og því var stofnað einkahlutafélag um tilraunabúið sem verður borið undir aðalfundinn i vor. Við höfum alla möguleika á að starf- rækja öfluga tilraunastöð í naut- griparækt. Þama er góð aðstaða til einstaklingsfóðrunar; mikiö af tún- um með hreinum grastegundum, sérstakt tilraunafjós sem hentar vel fyrir nákvæmnisathuganir á fóðri og góður efniviður af velættuöum kvígum sem tilheyra ræktunar- kjamanum sem settur var á stofn fýrir 10 árum,” sagði Sveinn að lokum. Nautakjötsframleiðsla á tímamótum Ráðstefna um nautakjöts- framleiðslu á íslandi Fimmtudaginn 18. apríl 2002, Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6 KI. 10:30- 11:00 Kaffl Kl. 11:00 Setning - Guðmundur B. Helgason, ráðuneytisstjóri landbúnaðarráðuneytis Kl. 11:05 Ávarp - Þórólfúr Sveinsson, fomiaður LK KI. 11: 15 Nautakjötsframleiðslan árið 2001 - Snorri Sigurðsson, ffamkvæmdastjóri LK Kl. 11:35 Tollkvótar og innflutningur á nautakjöti sfðustu ár - Ólafur Friðriksson, deildarstjóri landbúnaðarráðuneytinu Kl. 11:55 Söluhorfur með nautakjöt á komandi árum - Steinþór Skúlason, forstjóri SS (ekki staðfest) Kl. 12:30 Hádegismatur Kl. 13:15 Ráðgjöf til bænda í nautakjötsframleiðslu - Runólfur Sigursveinsson, nautgriparæktarráðunautur BSSL Kl. 13:35 Kjötmat, samanburður á íslenska og EUROP-kerfinu - Guðjón Þorkelsson, verkefnisstjóri hjá RF Kl. 13:55 Aðferðir til að auka meyrni nautakjöts - Dr. Magnús Guðmundsson, formaður kjöthóps MATRA - Dr. Helga Gunnlaugsdóttir, sérfræðingur hjá MATRA Kl. 14:35 Styrkir til nautakjötsbænda í Noregi - Snorri Sigurðsson, framkvæmdastjóri LK Kl. 14:55 Styrkir til nautakjötsbænda í Evrópusambandinu - Ema Bjamadóttir, forstöðumaður Félagssviðs BÍ Kl. 15:15 Kaffi í boöi Landbúnaðarráðuneytis Kl. 15:45 Umræður um framlögð erindi og framtíð nautakjötsframleiðslunnar Kl. 17:00 Ráðstefnulok Eftir ráðstefnuna geta allir þátttakendur farið á sýninguna Matur 2002, en sýningin er haldin í nýja sýningar- og íþróttahúsinu í Kópavogi og er opin þennan dag til kl. 20:00. Ráðstefnugjald kr. 1.000,- (innifalinn boðsmiði á sýninguna Matur 2002) Ráðstefnustjóri: Guðmundur B. Helgason, ráðuneytisstjóri landbúnaðrráðuneytis TRAKTORSDEKKA SÉRTILBOÐI ÚT MAÍ ALLT AÐ 25% AFSLÁTTUR Eigum allar helstu STÆRÐIR AF BÚVÉLA- OG VINNUVÉLADEKKJUM FRÁ Alliance Á LAGER. Hafðu samband og athugaðu hvað við getum gert fyrir Þig! heimasíðu okkar: www.dekkjahollin.is BEINN INNFLUTNINGUR hagstaát verð ************************ AKUREYRI, S. 462 3002 FELLABÆ, S. 471 1179

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.